Morgunblaðið - 28.06.2016, Síða 25

Morgunblaðið - 28.06.2016, Síða 25
Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2016 Raðauglýsingar Til leigu Iðnaðar- og lagerhúsnæði TIL LEIGU Iðnaðar- og lagerhúsnæði til leigu að Smiðjuvegi 3, Kópavogi Stærð 270 fm Laust strax Stórar innkeyrsludyr Upplýsingar í síma 892 1529 Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrifstofu embættisins Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduósi, sem hér segir: EYJÓLFUR ÓLAFSSON HU100, (skskr. 2175), Húnavatnssýsla, (FISKISKIP), fnr. 2175 , þingl. eig. Áróra ehf, gerðarbeiðandi Sandgerðishöfn, mánudaginn 4. júlí nk. kl. 11:30. Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra 27. júní 2016. Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðar og útskurður með leiðbeinanda kl. 9.30-16. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. MS fræðslu-og félagsstarf kl. 14-16. Boðinn Handavinnustofan opin frá kl. 9-15, brids og kanasta kl. 13. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14 Garðabær Bútasaumur kl. 13. Bónusrúta kl. 14.45, heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30, meðlæti selt með síðdegiskaffiinu frá kl.14- 15.50. Gullsmári Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, kanasta kl. 13. Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum. Allir velkomnir! Hraunbær 105, 110 Reykjavík Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9. Opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9–14. Morgunleikfimi kl. 9.45. Gönguhópur kl. 10.30 – þegar veður leyfir. Botsía kl.10.30. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. David Layton verður með tónleika kl. 14.30 í félagsmiðstöðinni, allir velkomnir, kaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, púttvöllurinn er opinn, bókabíll kl.14.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu nánar í síma 411-2790. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp- lestur kl.11, ganga með starfsmanni kl. 14, botsía, spil og leikir kl. 15.30. Upplýsingar í síma 4112760. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness kl. 7.15.Tölvu- námskeið í Valhúsaskóla kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Botsía í Gróttu kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Kaffi á könnunni kl. 8.30-10.30, hádegismatur kl.11.30-12.30, síðdegiskaffi kl.14.30-15.30, dagblöð, púsl og kross- gátur til afþreyingar. Munið bókahornið okkar. Vitatorg Félagsmiðstöðin opin spilum félagsvist í dag. Dýrahald Maltese hvolpar til sölu Þeir eru fæddir 08 .04.2016 .Verða tilbúnir til afhendingar (17.06.2016) þeir verða með ættbók frá HRFÍ. Fleiri upplýsingar má fá í síma 846 4221 eða e-mail laudia92@hotmail.com Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Ýmislegt Sundbolir • Tankini Bikini • Strandfatnaður Undirföt • Náttföt Sloppar • Undirkjólar Inniskór • Aðhaldsföt Frú Sigurlaug Fylgstu með á facebook Mjódd s. 774-7377 10.9 00. - 10.9 00. - 10.9 00. - 11.9 00. - Mikið úrval af sundfatnaði TILBOÐ TILBOÐ meðan birgðir endast! Stærðir M,L,XL á kr. 2.500,- Stærðir M,L,XL á kr. 2.500,- Laugavegi 178 Sími 551 2070 Opið mán.-fös. 10–18. Lokað á laugardögum í sumar. Sendum um allt land. Erum á Facebook. Teg: 1659 Þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Litir svart og hvítt. St. 36 - 41 Verð: 15.985.- Teg: 9952 Þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Litur: rautt. St. 37 - 41 Verð: 14.685.- Teg: 2211303 Þægilegir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Litur: svart / lakk St. 36 - 41 Verð: 14.875.- Laugavegi 178 Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10–18, lokað á laugardögum í sumar. Sendum um allt land Erum á Facebook. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Smáauglýsingar Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Vantar þig aukapening? það var aldrei spurning um að sam- band milli hans og HSSR yrði lang- tímasamband. Starf í björgunar- sveit byggist á trausti og ef það væru gefnar einkunnir fyrir traust væri Kristjón á toppnum. Hann varð undanfari og sinnti þannig mörgum erfiðum verkefnum. Seinni árin hafa verkefnin að mestu snúist um fjáraflanir. Steinvöru og fjölskyldu eru sendar samúðarkveður. Traustur félagi er fallinn frá og hans verður saknað. Fyrir hönd félaga í Hjálparsveit skáta í Reykjavík, Haukur Harðarson. Minn góði vinur. Eftir hetjulega baráttu þína við erfið veikindi langar mig að rita þér kveðju. Allt frá árinu 1992 þegar við kynntumst sem nýliðar í Hjálp- arsveit skáta í Reykjavík tókum við báðir þá stefnu að sigra fjöll eins og kostur var og verða sjálfbjarga við sem flestu. Atgervi okkar var ólíkt, mátti ég hafa mig allan við til að verða samferða þér, en þú sýndir mér alla tíð skilning sem fljótlega leiddi til margra krefjandi og skemmtilegra ferða. Gerðir þú það með þínu æðruleysi en jafnframt krafti sem hvatti mig til frekari verka. Mig langar að þakka þér fyrir þau ár sem við áttum saman. Þú hafðir þá mannkosti sem fáir geta státað af; gæsku, hjálpsemi og óeigingirni. Mættu fleiri temja sér þá hugsun sem var bak orðum þín- um sem oft einkenndu samtöl okk- ar, þá af rósemi og yfirvegun sem voru í öndvegi. Ekki lést þú smá- borgaralegar vangaveltur og vin- sælar skoðanir raska ró þinni, né beittir þú orðræðu sem gat skaðað nokkurn mann. Fylgdir ætíð þínum skoðunum og gættir réttlætis öll- um stundum. Þakklæti mitt er ekki síst vegna áhuga þíns til þátttöku í hverju því sem okkur datt í hug að framkvæma. Hvort sem fjöllin voru hér heima eða erlendis. Saman sigruðum við erlend fjöll og hæstu fjöll Íslands. Hvort sem það var kletta- eða ísklifur, jöklaferð- ir skíðandi, akandi eða hellaferðir. Á þessum ferðum var mikið rætt um tónlist og kvikmyndir, oft gafst tæki- færi til að skiptast á textabútum og smásöng og rifja upp atriði sem höfðu haft áhrif á okkur báða og var oft mikið hlegið en líka nauðsynlegar þagnir. Hlátur þinn gat smitað hvern sem er og var ég engin undantekn- ing. Með okkur í þessum ferðum til margra ára var góður vinur, Hildur Nielsen, og urðum við brátt að loknu nýliðastarfi samheldin og tilbúin til allra verka innan Hjálparsveitarinn- ar. Málmsmíði og viðgerðir hinna ýmsu tækja virtust leika í höndun- um á þér. Naut ég oft krafta þinna þar og einnig útsjónarsemi, gat það komið sér vel þar sem nokkur af mínum ökutækjum í gegnum tíðina uppfylltu ekki alla tíð lágmarks kröf- ur. En lífið heldur áfram og því verð- ur sjálfsagt best lifað eins og þú náð- ir að gera svo vel í okkar vinskap, án allrar tilgerðar. Ég mun alla tíð minnast þín sem trausts vinar, ferðafélaga og afburða fjallamanns. Síðustu dagana sem ég átti með þér voru mér dýrmætir og minntu mig á hversu góður og tryggur vin- ur þú varst. Þér var meira umhug- að að við gætum gert eitthvað sam- an og lagðir á þig bílferðir sem eflaust hafa verið sársaukafullar frekar en ræða um daglega baráttu þína við veikindin. Þú varst dugleg- ur að hrósa öðrum ef svo vildi til en eyddir því ef það beindist að þér. Hjarta mitt og hugur dvelur hjá fjölskyldu þinni sem ég vil votta mína dýpstu samúð. Elsku Steina, Kristín og Þórhildur, megi æðri máttur veita ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Ég veit, minn kæri, að okkar leiðir munu liggja saman að nýju en á meðan óska ég þér góðrar ferðar. Þinn vinur, Valgeir (Valli).  Fleiri minningargreinar um Kristjón Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.