Morgunblaðið - 11.07.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2016
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Nokkur móttökueldhús sem þjón-
usta íbúðir eldri borgara í Reykjavík
eru lokuð í einn mánuð yfir sum-
artímann. Íbúum gefst kostur á að
fara í önnur eldhús í borginni eða að
fá sendar máltíðir sem þeir hita upp
eftir að fá þær í hendur.
Að sögn Þórunnar Sveinbjörns-
dóttur, formanns Félags eldri borg-
ara, eru sumir í þeirri stöðu að sjá
sér ekki fært að hita matinn upp og
mikla fyrir sér það ferli að panta mat
á hverjum degi. „Fyrir vikið er al-
gengt að fólk veikist á þessum tíma.
Bæði versnar sykursýki og aðrir
sjúkdómar. Þetta vandamál hefur
farið vaxandi síðustu ár og veikasta
fólkið þarf meiri stuðning, “ segir
Þórunn.
Hún segir það vissulega bót í máli
að fólk geti fengið matinn sendan
þegar eldhúsin eru lokuð. „En fólk
þarf að hita þetta í örbylgjuofni eða
potti og þegar þú ert orðin/n las-
burða þá er það líka hindrun,“ segir
Þórunn. Maturinn sem sendur er til
fólks er snöggkældur og settur í
bakka. Eins er plastað yfir hann með
filmu. „Þó að það sé öryggi sem
fylgir því að fá svona mat, þá reynist
þeim sem eru lélegir til heilsunnar
erfitt að opna þetta og hita þetta
rétt,“ segir Þórunn.
Alla jafna getur fólk fengið mat í
móttökueldhúsum í þeim bygg-
ingum sem það býr en eldhúsin í
minnstu byggðarkjörnunum eru lok-
uð samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg.
Geta fengið hjálp við upphitun
Í móttökueldhúsi kostar stök mál-
tíð 740 kr., en ef fólk er með mat-
armiða þá kostar hún 680 kr. Þegar
um heimsendan mat er að ræða þá
kostar máltíðin 680 kr. og heimsend-
ingar kostnaður er 200 kr. „Fólk
sem er um og yfir 85 ára aldri er
ekki vant því að umgangast svona
mat, nema kannski þeir sem hafa
keypt sér 1944. Þetta er að sjálf-
sögðu einstaklingsbundið. Sér-
staklega getur þetta reynst þeim
erfitt sem eru með lítinn stuðning
eða eru langt frá sínum ættingjum.
En þetta er erfitt fyrir marga og það
er mikilvægt að það komi einhver til
þess að hjálpa þeim að hita matinn.
Það á að vera hægt en stundum veit
fólk einfaldlega ekki af því,“ segir
Þórunn. Hún bætir því við að fjölgun
hefur verið í þessum aldurshópi og
fyrirséð að aukningin muni halda
áfram á komandi árum. „Það kallar
á aukna hjálp,“ segir Þórunn.
Morgunblaðið/Ómar
Eldri borgarar Sumir eldri borgarar lenda í vanda þegar móttökueldhús eru
lokuð að sögn Þórunnar Sveinbjörnsdóttur, formanns Félags eldri borgara.
Eldri borgarar veikjast
þegar eldhús eru lokuð
Sumarlokanir eldhúsa fyrir þjónustuíbúðir valda vanda
Vertu upplýstur!
blattafram.is
VIÐ HÖFUM TÆKIFÆRI
TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR
ATBURÐ SEM FELUR Í SÉR
OFBELDI.
NOTUM VIÐ TÆKIFÆRIN?
LISTHÚSINU
Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið virka daga kl. 11-18, lokað laugardaga
Sumarútsala
25% - 40%
afsláttur
Friðrik Kristjánsson,
fyrrv. framkvæmda-
stjóri, lést eftir skamm-
vinn veikindi á hjúkr-
unarheimilinu Skjóli
mánudaginn 4. júlí, 85
ára að aldri.
Friðrik fæddist 18.
nóvember 1930 á Ak-
ureyri og ólst þar upp.
Foreldrar hans voru
Kristján Kristjánsson,
forstjóri Bifreiðastöðv-
ar Akureyrar (BSA) og
Ford-umboðsins Kr.
Kristjánsson, og Mál-
fríður Friðriksdóttir
húsfreyja. Systkini hans eru Krist-
ján (látinn) og Kolbrún.
Friðrik lauk viðskiptanámi við
Samvinnuskólann í Reykjavík árið
1950 og sótti framhaldsnám við Pit-
mans College í London og síðar í
Michigan í Bandaríkjunum. Hann
tók við umsjón Ford-umboðsins Kr.
Kristjánsson að námi loknu og vann
að uppbyggingu Hót-
els Esju við Suður-
landsbraut ásamt föð-
ur sínum. Hann varð
síðan framkvæmda-
stjóri beggja fyrir-
tækja.
Friðrik gegndi
margvíslegum trún-
aðar- og félagsstörf-
um. Hann sat m.a. í
stjórn Olís, var í stjórn
Knattspyrnufélagsins
Þróttar í Reykjavík og
sá um byggingu fyrsta
félagsheimilis Þróttar
við Holtaveg, ásamt
æskuvini sínum Magnúsi Óskarssyni
hrl. Auk þess sinnti hann trún-
aðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn. Friðrik var einn stofnenda
Lionsklúbbsins Njarðar og var fé-
lagi til dauðadags.
Eftirlifandi eiginkona Friðriks er
Bergljót Ingólfsdóttir og eignuðust
þau fimm börn.
Andlát
Friðrik Kristjánsson,
fyrrv. framkvæmdastjóri
—með morgunkaffinu