Morgunblaðið - 11.07.2016, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er mikið um að vera hjá þér
þessa dagana og því tekur fólk vel eftir þér.
Gott hjá þeim! Ekki vera hræddur um að virka
vitlaus, spurningarnar þína sýna fram á ann-
að.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú átt gott með að vera umburðarlynd/
ur og víðsýn/n í dag, ekki síst gagnvart fólki
frá framandi menningarheimi. Láttu and-
stöðu samstarfsfélaga ekki verða þér fjötur
um fót.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú vilt gjarnan afla meira fjár. En
gættu þín, margur verður af aurum api.
Reyndu ekki að kasta ryki í augu annarra, því
þeir hefna sín bara þegar upp er staðið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert upptekin/n við að útbýta
hrósi, aðdáun og aðstoð og hækkar þar með
hinn alkunna standard. Af ýmsum ástæðum
er samband þitt við aðra mun dýpra en
venjulega.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Til þess að fá réttu svörin þarf að spyrja
réttu spurninganna. Notaðu tækifærið til að
ganga frá lausum endum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú verður þú að axla þá ábyrgð sem
þú hefur í raun að þér tekið. Sem betur fer
ert þú svo hlýr að þú gætir brætt hvað sem
er.
23. sept. - 22. okt.
Vog Stjórnsýsla er alger forsenda þess að
knýja málin áfram. Svarið er innan seilingar,
þú þarft bara að koma auga á það.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Leggðu þig fram um að halda
góðu samkomulagi við samstarfsmenn þína.
Stutt ferðalag yrði þér til góðs, skelltu þér út
á land eða í borgarferð til að hlaða batteríin.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú horfir til vina þinna sem eru
að ganga í gegnum það sama og þú. Við-
brögð þín við áreiti eru lítt þroskuð og eiga
ekki við þann lífsstíl sem þú hefur tamið þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert yndislega opin/n þar sem
þú hefur ekki enn ákveðið hver þú átt að vera
í nýrri stöðu. Spurðu sjálfa/n þig að því hvort
það sem um ræðir skipti raunverulega svo
miklu máli.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú nýtur mikilla vinsælda þessa
dagana. Láttu ekki á neinu bera þótt ýmislegt
komi þér á óvart, allt fer á besta veg í lokin.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver laðar það besta fram í þér.
Reyndu að stilla þig því annars er hætt við að
þú leggir steina í þína eigin götu.
Kerlingin á Skólavörðuholtinu
sendi karlinum á Laugaveginum
línu: „Rétt er það, ég hef lítið
gert af því að elta bolta, enda
ósköp að sjá fullfríska menn við
þá iðju um hábjargræðistímann.
En:
Lítt ég nenni að lufsast eftir leð-
urtuðrum,
spyrnt þó get í rækallsrassa
rekið frá mér gamla hjassa.
Þegar ég hitti karlinn á
Frakkastígnum við hús Kristjáns
vagnasmiðs veifaði hann bréfinu
framan í mig og sagði:
Það er sól og sumarblíða, – en svo
er fleira:
Í morgun fékk ég orð í eyra.
Í sér kerling lætur heyra!
Kerlingin á Skólavörðuholtinu
fékk bakþanka:
Sjaldan mig prýða og punta,
pilsgopi, kjóll eða svunta.
Menn hefi blekkt
en mest er ég þekkt
sem makalaus leiðindatrunta
Karlinn á Laugaveginum kann-
aðist við það en vildi vera sann-
gjarn:
Mér ber hún mjög af um gæði
en mishittin erum við bæði.
Eins og þungbúið loft
er lund hennar oft
lægð eða háþrýstisvæði.
Kerlingin á Skólavörðuholtinu
lét aftur í sér heyra:
Lítt er borubrött,
bringan rýr og flött,
mjög hef elst
og minni helst
á malbiksgráan kött.
Karlinn á Laugaveginum vissi
hvað henni leið:
Kerling mín hún berst og berst
bölvað tak inn í hrygginn skerst;
vitið truflast og viljinn merst –
hún veit það gerst
að þursabit er bitið verst.
Karlinn hafði opnað heimasíðu
á fésbók og ekki stóð á því að
Helgi Zimsen léti í sér heyra:
Ef að Fjas- á -bók mig ber
bögum um mig fleygi.
Kvæðasprok í kátur fer
hjá karli á Laugavegi.
Óðar mun ég yrkja þá
ef að veitast föngin
Boðnarmiði bergi á,
brest í kvæðasöngin
Halldór Blöndal
(halldorblondal@simnet.is)
Vísnahorn
Kerlingin og karlinn
kveðast á
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI
HVERSU LATUR ÞÚ ERT
ÞAÐ KEMUR
MÉR EKKI Á
ÓVART
JÓN VAR EINNIG HISSA ÞEGAR
HANN KOMST AÐ ÞVÍ AÐ
JÖRÐIN VÆRI HNÖTTÓTT
HVERNIG FÆ ÉG ÞESSA KONU
TIL ÞESS AÐ LÍKA VIÐ MIG?
FÁÐU HANA
TIL AÐ HLÆJA!?
MÆTTI ÉG BJÓÐA
ÞÉR Á STEFNUMÓT?
„GÆTI ÞETTA BEÐIÐ FRAM Í NÆSTU
VIKU? ÉG ER BARA HÉRNA Í FRÍI
ÞANGAÐ TIL.“
„HVAÐ ERTU AÐ TAKA MEÐ ÞÉR? VIÐ ERUM
BARA Á LEIÐINNI Í DÝRAGARÐINN.“
... að láta fjölskyldu
hans líða eins og
heima hjá sér
Á dögunum var Víkverji að blaða íbókinni Hátíð í hálfa öld hvar
segir frá hátíðahöldum 17. júní í
Reykjavík frá lýðveldisstofnun til
1994. Reifað er hvernig hátíðahöld-
um hafi verið háttað og vissulega
var breytingin mikil á hálfri lýð-
veldisöldinni. Í seinni tíð er dag-
urinn orðinn með allt öðrum hætti
og vægi hans ef til vill minna, en áð-
ur. Kemur þar til að almenn viðhorf
almennings hafa breyst, auk þess
sem þjóðleg gildi skipta í huga
þeirra sem nú stjórna í borginni
kannski ekki sama máli og var fyrr
á tíð. En almennt sagt þá hefur
hver tími sitt svipmót og áherslur
og enginn stöðvar tímans þunga
nið.
x x x
En þó að 17. júní hafi kannski ekkisömu viðhorf og var virðast
gildi og boðskapur dagsins enn í
fullu gildi þótt margir ætli annað.
Suma hendir – sakir misskilnings –
að leggja að jöfnu harðlífiskennda
þjóðernishyggju og góðan þjóðlegan
metnað. Slíkt er fráleitt nálgun.
Heilbrigt stolt fyrir hönd þjóðar
sinnar birtist í sinni bestu mynd í
ævintýrinu á dögunum þegar karla-
landsliðið í knattspyrnu tók þátt í
EM. Árangur Íslands var framar
öllum væntingum og Víkverja
fannst einstök upplifun að vera á
Arnarhóli á sunnudag um þarliðna
helgi meðal þeirra þúsunda sem þar
stóðu og fylgdust með leik Íslend-
inga og Englendinga. Þar og þá var
sannarlega þjóðhátíð.
x x x
Fánahyllingar, fornbílasýningar,fínimannasamkomur á Aust-
urvelli og fjölskyldugaman í Hljóm-
skálagarðinum – eins og jafnan ger-
ist 17. júní – er ágætt svo langt sem
það nær. En velta má fyrir sér
hvort hátíðahöld í óbreyttri mynd
virki ekki lengur. Þarf þjóðhátíð
hugsanlega að vera einskonar sig-
urhátíð með skýrum boðskap og til-
svörun í nútímann, lík því sem fót-
boltinn bauð upp á. Sannarlega eru
Íslendingar ekki árlega á EM, en
þá má finna eitthvað annað svo
þjóðin geti sameinast stöku sinnum
undir einu merki og gengið til móts
við þrautirnar „djörf og sterk“ eins
og skáldið orti. víkverji@mbl.is
Víkverji
Fagnið með fagnendum, grátið með
grátendum.
(Róm. 12.15.)
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár