Fréttablaðið - 30.01.2017, Page 14
Víkingaklappið boðar bara vandræði á Anfield
Aðra helgina í röð hljómaði víkingaklappið á Anfield eftir ósigur heimaliðsins fyrir Íslendingaliði. Jón Daði Böðvarsson fékk mikið hrós fyrir innkomu sína gegn Liver-
pool og var mjög óheppinn að skora ekki. Hjólin hafa losnað undan Liverpool-vagninum í janúar en liðið er án sigurs í deildinni og fallið úr báðum bikarkeppnunum.
fótbolti Fastlega má reikna með að
stuðningsmenn Liverpool vilji aldr-
ei heyra víkingaklappið fræga aftur
eftir tvo ósigra í röð fyrir Íslend-
ingaliðum. Stuðningsmenn Wolves
fetuðu í fótspor stuðningsmanna
Swansea og fögnuðu vel og innilega
í leikslok undir styrkri stjórn Jóns
Daða Böðvarssonar eftir frækinn
sigur liðsins á Liverpool í fjórðu
umferð FA-bikarsins um helgina.
Líkt og gegn Swansea bjuggust fáir
við ósigri Liverpool um helgina en
heimaliðið átti fá svör við öguðu og
gríðarlega vel skipulögðu liði gest-
anna. Paul Lambert, stjóri Wolves,
stýrði liði sínu af mikilli festu og átti
keppinautur hans, Jürgen Klopp, fá
svör við varnarleik Wolves. Það tók
Liverpool um klukkustund að hitta
rammann og fyrir utan uppbótar-
mark Divock Origi undir lok leiks-
ins átti Liverpool engin teljandi færi.
Öflug innkoma Jóns Daða
Það voru liðnar 70 mínútur þegar
Jón Daði fékk að spreyta sig. Hann
fór beint í fremstu víglínu og fékk
það hlutverk að létta á þrýstingn-
um sem lá á vörn Wolves undir lok
leiksins. Óhætt er að segja að Jón
Daði hafi unnið fyrir kaupi sínu en
varnar menn Liverpool fengu enga
hvíld með Selfyssinginn á hælum
sér.
Litlu munaði að Jón Daði fetaði í
fótspor Gylfa Sigurðssonar og klár-
aði leikinn fyrir gestina á Anfield en
hann fékk tvö góð færi til að skora
þriðja mark Wolves. Það síðara bjó
hann til upp úr þurru með ekkert
nema áræðið að vopni. Djöflaðist
hann inn í teiginn án aðstoðar frá
liðsfélögum sínum og aðeins löppin
á Lucas Leiva kom í veg fyrir að Jón
Daði ætti minningu sem hefði enst
honum út ævina.
Vinsæll þrátt fyrir markaþurrð
Það er augljóst að Jón Daði, eða Bod
líkt og stuðningsmenn Wolves kalla
hann, er mjög vinsæll meðal þeirra.
Um sex þúsund stuðningsmenn
gestanna yfirgnæfðu Anfield með
söngvum um Jón Daða er hann kom
inn á og í hvert skipti sem hann létti
á þungri pressu heimamanna með
því að halda boltanum í fremstu víg-
línu fékk hið fræga „húh“ að hljóma.
Mörkin hafa þó látið á sér standa
í vetur eftir frábæra byrjun hjá Jóni
Daða sem skoraði tvö mörk í ágúst.
Síðan hefur Jón Daði tekið þátt í
25 leikjum án þess að skora mark.
Framherjar sem ekki skora mörk
eiga sjaldnast upp á pallborðið hjá
stuðningsmönnum en það and-
stæða virðist eiga við um Jón Daða
og stuðningsmenn Wolves.
Ástæðan er einföld líkt og stuðn-
ingsmenn íslenska landsliðsins
þekkja enda gefur Jón Daði allt sitt
inn á vellinum. Það er eitthvað sem
stuðningsmenn elska, sérstaklega
þeir ensku, og það er hægt að fyrir-
gefa framherjum ýmislegt ef þeir
vinna fyrir liðið sitt á öðrum víg-
stöðvum, líkt og Jón Daði gerir svo
vel.
„Sýndi nákvæmlega hvernig á að
leiða framlínuna og átti skilið að
skora. Ef hann væri markamaskína
spilaði hann hvern einasta leik en
í augnablikinu er hann samt besti
Rómantíkin lifir
Utandeildarliðin Lincoln City og Sutton er á allra vörum eftir að slegið
Championship-liðin Brighton og Leeds út úr ensku bikarkeppninni um
helgina.
Lincoln leiðir efstu deild utandeildarinnar en Sutton er í 16. sæti sömu
deildar. Á milli Lincoln og Brighton eru 72 sæti en 83 sæti skilja að Sutton
og Leeds.
Saga Lincoln er afar fátækleg og féll félagið nýverið í utandeildina eftir
langa veru í kjallara ensku deildakeppninnar. Félagið á það vafasama
met að vera það lið sem lengst hefur verið í ensku deildakeppn-
inni án þess að komast upp í efstu deild. Þjálfari liðsins er hinn
38 ára gamli Danny Cowley en þangað til í sumar starfaði hann
sem íþróttakennari samhliða stjórastarfinu. Hann trúði vart sínum
eigin augum eftir leikinn.
„Ég sagði fyrir leikinn
gegn Ipswich að það
væri eins og að klífa
fjall,“ sagði Cowley
fyrir leikinn. „Að
sigra Brighton
jafngildir því að
fljúga til tungls-
ins.“
Cowley er kannski ekki á
leiðinni til tunglsins en hann
getur látið sig dreyma um að
mæta stóru strákunum í úr-
valsdeildinni í næstu umferð,
líkt og kollegi hans hjá Sutton.
Rómantík bikarsins lifir.
kosturinn í framlínunni,“ skrifaði
einn stuðningsmanna Wolves um
Jón Daða á spjallborði þeirra eftir
sigurinn á Anfield.
Ráða ekki við leikjaálagið
Tapið fyrir Wolves kórónaði afleitan
janúar hjá Liverpool sem hefur
aðeins unnið einn leik af átta, gegn
Plymouth í þriðju umferð FA-bik-
arsins. Ólíkt undanförnum mán-
uðum hefur Liverpool mátt þola
það að spila leiki á 3-5 daga fresti
allan janúar.
Enska bikarkeppnin
Úrslit 32-liða úrslita 2016-17
Liverpool - Wolves 1-2
0-1 Richard Stearman (1.), 0-2 Andreas
Weimann (41.), 1-2 Divock Origi (86.).
Tottenham - Wycombe 4-3
0-1 Paul Hayes (23.), 0-2 Hayes, víti (36.), 1-2
Son Heung-Min (60.), 2-2 Vincent Janssen,
víti (64.), 2-3 Garry Thompson (83.), 3-3
Dele Alli (89.), 4-3 Son (90+7.).
Oxford - Newcastle 3-0
1-0 Kane Hemmings (46.), 2-0 Curtis Nelson
(79.), 3-0 Toni Martínez (87.).
Lincoln - Brighton 3-1
0-1 Richard Towell (24.), 1-1 Alan Power, víti
(57.), 2-1 Fikayo Tomori, sjm. (62.), 3-1 Theo
Robinson (85.).
Chelsea - Brentford 4-0
1-0 Willian (14.), 2-0 Pedro Rodríguez (21.),
3-0 Branislav Ivanovic (69.), 4-0 Michy
Batsh uayi, víti (81.).
Rochdale - Huddersfield 0-4
0-1 Collin Quaner (42.), 0-2 Isiah Brown, víti
(66.), 0-3 Michael Hefele (72.), 4-0 Hefele
(84.).
Burnley - Bristol 2-0
1-0 Sam Vokes (45.), 2-0 Steven Defour (68.).
Blackburn - Blackpool 2-0
1-0 Sam Gallagher (9.), 2-0 Elliott Bennett
(22.).
Boro - Accrington St. 1-0
1-0 Stewart Downing (69.).
C. Palace - Man. City 0-3
0-1 Raheem Sterling (43.), 0-2 Leroy Sané
(71.), 0-3 Yaya Touré (90+3.).
S’ton - Arsenal 0-5
0-1 Danny Welbeck (15.), 0-2 Welbeck (22.),
0-3 Theo Walcott (35.), 0-4 Walcott (69.),
0-5 Walcott (84.).
Millwall - Watford 1-0
1-0 Steve Morison (85.).
Fulham - Hull 4-1
1-0 Sone Aluko (17.), 1-1 Evandro (49.), 2-1
Chris Martin (54.), 3-1 Ryan Sessegnon (66.),
4-1 Stefan Johansen (78.).
Sutton - Leeds 1-0
1-0 Jamie Collins, víti (53.).
Man. Utd - Wigan 4-0
1-0 Maraoune Fellaini (44.), 2-0 Chris Small-
ing (57.), 3-0 Henrikh Mkhitaryan (74.), 4-0
Bastian Schweinsteiger (81.).
Okkar menn
Íslendingar í bikarkeppninni í
Englandi um helgina
Wolverhampton Wanderers
Jón Daði Böðvarsson
Lék síðustu 19 mínúturnar
í frábærum sigri Wolves á
Liverpool. Átti kröftuga innkomu.
Fulham
Ragnar Sigurðsson
Var ekki í leikmannahópi
Fulham sem rúllaði yfir
úrvalsdeildarlið Hull City.
Bristol City
Hörður B. Magnússon
Kom ekkert við sögu þegar
Bristol City laut í lægra
haldi fyrir úrvalsdeildarliði Burnley.
Jón Daði Böðvarsson stýrði víkingaklappinu fræga eftir frækinn sigur Wolves á Liverpool í ensku bikarkeppninni um helgina. Jón Daði spilaði síðustu 19 mínútur leiksins, lét vel að sér kveða og var í tvígang nálægt því að skora. NORDiCPHOTOS/gETTy
Burnley
Jóhann Berg guðm.
Var í byrjunarliðinu þegar
Burnley vann Bristol City.
Lagði upp seinna mark
Burnley fyrir Steven Defour.
DrEGið Í BiKArnUM Í KvöLD
Dregið verður í 5. umferð ensku
bikarkeppninnar í kvöld. Aðeins
þarf að endurtaka einn leik úr 4.
umferðinni, á milli Derby County
og Leicester City. Sjö úrvalsdeildar-
lið eru í pottinum auk þess sem
Leicester getur bæst í þann hóp. Þá
eru tvö utandeildarlið í pottinum,
Lincoln City og Sutton United.
Leikirnir í 5. umferðinni fara fram
17.-20. febrúar næstkomandi.
3 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r14 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
3
0
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
1
8
-0
1
0
4
1
C
1
7
-F
F
C
8
1
C
1
7
-F
E
8
C
1
C
1
7
-F
D
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K