Fréttablaðið - 30.01.2017, Page 20

Fréttablaðið - 30.01.2017, Page 20
1 Stjaki eftir hjón-in Hafstein Júlíusson og Karitas Sveinsdóttur. „Ég þennan stjaka heima og hann er í algjöru uppá- haldi. Mér dett- ur ekki í hug að taka hann niður þótt jólin séu að baki. Hann verður uppi hjá mér allan ársins hring.“ Stjakinn er úr stáli, pólýhúðaður og hægt að nota hann bæði undir sprittkerti og venjuleg.“ 2 Kría skart. „Ég held mikið upp á Jóhönnu Metúsalems- dóttur og skartgripamerkið henn- ar, Kríu. Ég fékk einmitt fallegt men eftir hana í jólagjöf.“ 3 Staflanlegt kaffistell eftir Ingegerd Råman. „Mér finnst hún stórkostlegur hönnuður. Inge- gerd hefur verið að frá 1968 og er stórt nafn í hönnunarheiminum í Svíþjóð. Ég á ekkert eftir hana enn þá en mig langar mikið í kaffi- stell eftir hana , svart og hvítt með loki. Ég væri líka til í handrennda hluti eftir hana.“ 4 Loftljós eftir Sergei Mouille. „Hann gerir afar falleg ljós og ég er sérstaklega hrifin af þriggja arma loftljósi sem er eins og kónguló. Það væri ég til í að eiga.“ 5 Halo eftir Kjartan Óskarsson. „Ef ekki ljós eftir Sergei þá væri ég líka mjög til í að eignast ljós eftir Kjartan.“ Dreymir um stell Ingegerd Råman Guðbjörg Káradóttir, keramiker og hönnuður Postulínu, er mikil smekkmanneskja. Nokkrir hlutir eru í sérstöku uppáhaldi hjá henni og einhverja á hún heima en aðrir eru enn á óskalistanum. Stjaki frá HAF stúdío sem hún eignaðist um jólin mun ekki fara ofan í skúffu í bráð. Egill Arnar Birgisson, framkvæmdastjóri Birgisson ehf., segir flesta vilja hafa gólf í hlutlausum litum svo einfalt sé að breyta um stíl á heimilinu. Hér má sjá sýnishorn af harðparketgólfefnum í gráum tónum sem eru vinsæl þessa dagana. Birgisson er fjölskyldufyrirtæki sem byggir á rúmlega þrjátíu ára gömlum grunni og er nú í flokki framúrskarandi fyrirtækja að mati CreditInfo. Það eru feðgar sem reka fyrirtækið og þeir byggja sín viðskiptasambönd á mjög sterkum grunni og hafa verslað við sömu birgjana nánast frá stofnun fyrir- tækisins. Egill Arnar Birgisson fram- kvæmdastjóri er nýkominn heim af gólfefnasýningu erlendis. „Fók- usinn þar er á gráan og hlýjan grá- brúnan lit og svo er hvíttuð eik líka vinsæl. Harðparket eða „laminate“ eins og það heitir á ensku er mest tekið í dag enda stærðirnar fjöl- breyttar og mikið úrval af litum. Harðparket er í grunninn endur- unninn viður með tilbúinni filmu. Þetta er þó ótrúlega líkt alvöru viðargólfi og sterkara en venjulegt parket. Gamla góða parketið fer samt aldrei úr tísku.“ Hver er kosturinn við gráu lit- ina? „Kosturinn er náttúrlega sá að þú býrð til ramma inni á heimilinu þínu og þú vilt að hann endist og standist tímans tönn þótt þú skipt- ir um húsgögn eða málir veggi. Ramminn þarf að vera einfaldur svo hægt sé að leika sér með liti og form í húsgögnum og húsmunum.“ Hurðir fást líka í þessum gráu litbrigðum en að sögn Egils eru hvítar hurðir vinsælastar hjá Birgis son. „Það er hægt að fá hurðirnar í ýmsum útgáfum og sem dæmi má nefna gereftislaus- ar hurðir þar sem gereftin eru spörsluð inn í vegginn og hurðirn- ar eru þá í sama lit og veggirnir og falla inn í þá. Yfirfelldu hurðirnar eru þó mest teknar hjá okkur.“ Hann segir flísar fara stækk- andi. „60x60 cm eru algengastar en svo eru til stærri flísar allt upp í 120x240 cm. Svo er verið að brjóta upp veggina með mynstruðum flís- um eða í sterkari litum, það er allur gangur á því.“ Egill segir konur yfir 25 ára aldri vera markhóp fyrirtækis- ins. „Það eru yfirleitt konur sem taka ákvarðanir um þessa hluti. Þær eru þó ekki að velja það sama, yngri kynslóðin er kannski djarf- ari og þær eldri íhaldssamari, meira að taka klassíkina, venju- lega ólitaða eik, sem er auðvitað ekkert verra.“ Hann segir að enginn einn stíll sé ráðandi í dag. „Stundum hefur verið hjarðhegðun í Íslendingum og allir að kaupa það sama en núna er fólk að velja meira eftir eigin stíl. Við erum svo heppnir að vera með vel þjálfað starfsfólk sem getur að- stoðað kúnnann og gefið ráðlegg- ingar. Það höfum við kannski fram yfir stærri verslanir sem við erum í samkeppni við. Við erum með meira úrval á sama verði og gott og vel þjálfað starfsfólk sem getur veitt persónulega ráðgjöf.“ Útsala stendur nú yfir í Birgisson en henni lýkur á miðvikudaginn. Ramminn þarf að vera einfaldur Egill Arnar Birgisson, framkvæmdastjóri hjá Birgisson, er nýkominn af gólfefnasýningu þar sem gráir tónar voru allsráðandi. Hann segir að Íslendingar velji sér oftast gólfefni eftir eigin smekk og stíl þrátt fyrir að tískustrauma gæti vissulega þar eins og annars staðar. 1 4 5 3 2 Allt fyRIR HEImIlIð Kynningarblað 30. janúar 20174 3 0 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 1 8 -2 3 9 4 1 C 1 8 -2 2 5 8 1 C 1 8 -2 1 1 C 1 C 1 8 -1 F E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.