Fréttablaðið - 30.01.2017, Qupperneq 45
Í dag
Guðmundur
Andri Thorsson
Járn & Gler hf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin
104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is
Bjóðum upp á sjálfvirkan
hurðaopnunarbúnað,
hringhurðir, hurðir og
gluggakerfi ásamt
uppsetningu og viðhaldi
á búnaði.
Áratuga reynsla.
Fríða Rut Heimisdóttir
Hárgreiðslumeistari
Úr einu fræi varð bylting.
Moroccanoil hárvörumerkið er
innblásið af ferskum vindum,
bláma sjávarins og landslagsins
í kringum Miðjarðarhafið.
Upphafið er sjálf Moroccanoil
Treatment olían sem er góður
grunnur fyrir hvaða hárgerð sem
er. Einnig góð í krakka og skegg.
Til að fá sem bestu næringarefnin
er gott að setja hana alltaf í blautt
hárið og blása það eða leyfa því að
þorna eðlilega.
Olíurnar eru þrjár og nýjust er Blow Dry Concentrate sem hönnuð er fyrir gróft og erfitt hár.
Moroccanoil Treatment hentar öllum hárgerðum og LIGHT fyrir fíngert og mikið ljóst hár.
Regalo ehf Iceland
www.gilbert.is
FRISLAND CLASSIC
TÍMALAUS GÆÐI
VIÐ KYNNUM
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni, Kjarval og Húsasmiðjunni
...ómissandi í eldhúsið!
Jólagjöfin í ár - Algör snilld!
Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
• Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
Engar flæk
jur
Ekkert vese
n
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni, Kjarval og Húsasmiðjunni
...ómissandi í eldhúsið!
Jólagjöfin í ár - Algör snilld!
Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
• Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
Engar flæk
jur
Ekkert vese
n
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni, Kjarval og Húsasmiðjunni
...ómissandi í eldhúsið!
Jólagjöfin í ár - Algör snilld!
Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
• Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setj í ppþvottavél
Engar flæk
jur
Ekkert vese
n
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni, Kjarval og Húsasmiðjunni.
• Klippir álfilmur og plast
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setj í up vottavél
• Afar auðvelt í notkun
...ómissandi í eldhúsið!
Leonardo Di Caprio hefur með mynd sinni „Before the Flood“ vakið aukna athygli á loftslags-
málum en myndin var nýlega sýnd
á RÚV. En RÚV hefur nýlega staðið
fyrir góðri og fróðlegri umfjöllun
um loftslagsmál. Í myndinni hans
Leonardos er fjallað um staðreynd-
irnar varðandi loftslagsmál, engar
ýkjur. En þegar horft er á slíka mynd
vaknar spurningin: hvað get ég gert?
Stjórnvöld og fyrirtæki spila
lykilhlutverk þegar kemur að því
að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda. Stjórnvöld geta notað fjár-
hagslega hvata til að stýra markaðn-
um, sett boð og bönn, ásamt því að
fara fram með góðu fordæmi og rutt
markaðinn fyrir metnaðargjörnum
lausnum í umhverfismálum. Einnig
geta yfirvöld hjálpað okkur að velja
rétt og auðveldað okkur að verða
umhverfisvæn. Fyrirtæki geta sýnt
samfélagslega ábyrgð, dregið úr
losun og verið hluti af lausninni
með því að framleiða vörur og veita
þjónustu sem veldur lágmarks
losun.
En hvað get ég gert? Það er ótal
margt sem hægt er að gera til þess
að draga úr losun. Mikið hefur
verið talað um matarsóun. Með því
að nýta matinn okkar vel erum við
að draga úr losun, allt skiptir máli.
Ef allir gera eitthvað þá erum við
fljót að tala um fleiri þúsund kíló
á ári. Auðlindanotkun er minni
við grænmetisbúskap en vegna
framleiðslu á kjötvörum. Þó svo að
maður verði ekki alveg vegan þá
er hægt að draga eitthvað úr kjöt-
neyslu, en síðustu ár hefur kjöt-
neysla heldur verið að aukast.
Íslendingar flytja inn mikið
magn af neysluvörum frá löndum
þar sem umhverfiskröfur eru ekki
eins strangar og á Íslandi og orku-
notkunin háð bruna á jarðefnaelds-
neyti. Um 85% af allri orkunotkun
í heiminum eru byggð á jarðefna-
eldsneyti. Þannig að þegar við
kaupum innfluttar vörur getum við
nánast gert ráð fyrir því að fram-
leiðsla vörunnar hafi valdið losun
á gróðurhúsaloftegundum. Í þessu
samhengi sést mikilvægi þess að
draga almennt úr neyslu á nýjum
vörum.
Líftími vara er ekki eins langur
og hann var áður. Fatnaður verður
fljótt snjáður og nýja þvottavélin á
líklegast ekki eftir að endast eins
lengi og þvottavélin hennar ömmu,
sem var orðin meira en 40 ára. Það
er afar slæmt fyrir umhverfið að
það þurfi að framleiða t.d. þrjú pör
af skóm í staðinn fyrir eitt par. Með
því að lagfæra, nýta skiptimarkaði,
kaupa notað erum við að draga úr
losun á koltvísýringi vegna fram-
leiðslu og flutnings á varningi.
Hver ferð skiptir máli
Í samgöngumálum getum við sam-
einast í bíla þegar verið er að skutla
krökkum í frístundir eða fara til
vinnu, hjólað, gengið eða notað
almenningssamgöngur. Hver ferð
skiptir máli. Rafmagnsbílar og aðrir
bílar sem ganga fyrir vistvænu elds-
neyti eru einnig hluti af lausninni,
þó að það sé ekki sjálfbært að allir
fari og kaupi sér nýjan bíl þegar
tekið er tillit til alls framleiðslu-
ferlisins. Flugumferðin í heiminum
er sífellt að aukast og stendur fyrir
um 3,5 prósentum af heildarlosun
á gróðurhúsaloftegundum í heim-
inum. Þegar verið er að plana fríið
eða vinnuferð, þá er kannski hægt
að velja annan farkost en flug ein-
hvern hluta ferðarinnar? Eða taka
vinnufundinn í gegnum Skype?
Það er líka hægt að láta gott af sér
leiða í hinum ýmsu verkefnum t.d.
á vegum Landverndar sem tengjast
skógrækt eða endurheimt votlendis.
Di Caprio kemur líka inn á eyð-
ingu regnskóganna þar sem verið
er að ryðja regnskóga til ræktunar
á pálmaolíu. Með því að sniðganga
pálmaolíu, getum við sem neyt-
endur reynt að stuðla að minni
eftirspurn eftir henni sem vonandi
skilar sér til matvælaframleiðenda
sem þá finna nýjar lausnir. Við
neytendur höfum vald til þess að
breyta.
Þó svo að loftslagsbreytingarnar
sem við erum að sjá nú þegar séu
fremur ógnvekjandi, þá megum við
ekki gefast upp, við þurfum bara að
bretta upp ermarnar. Enginn getur
gert allt, en við getum öll gert eitt-
hvað.
Hvað getum við gert?
Þórhildur Fjóla
Kristjánsdóttir
framkvæmda
stjóri Vist
byggðar ráðs
Þuríður Helga
Kristjánsdóttir,
framkvæmda
stjóri Menningar
félags Akureyrar
Trump var ekki kosinn þrátt fyrir ókosti sína heldur vegna þeirra. Öll súpum við seyðið
af þessu kjöri, afleiðingarnar kunna
að verða skelfilegar fyrir alla heims-
byggðina og nú þegar eru teknar að
streyma frá honum tilskipanir sem
hafa beinlínis áhrif til hins verra
á líf venjulegs fólks sem ekkert
hefur til saka unnið, en hefur orðið
fyrir barðinu á þeim ofstækisfullu
stríðsmönnum sem Trump lætur
sem hann berjist gegn, en tekur nú
höndum saman við.
Við störum á þennan mann í
forundran. Trúum naumast eigin
augum þegar hann sést þagga rudda-
lega niður í brosandi konu sinni eða
ryðst fram fyrir hana, talar eins og
fábjáni yfir CIA-mönnum og fer að
þrátta um mannfjöldatölur á inn-
setningarathöfn sinni, sem liggja
þó fyrir og blasa við öllum nema
honum og höfundi Staksteina.
Raunveruleikaþáttaforsetinn
Stundum heyrist að kjör hans sé sök
einhverra. „Góða fólkið“ er þá nefnt
í því sambandi, aðallega af þeim
sem telja að heiminum stafi um
þessar mundir einkum ógn af fólki
sem viðrar frjálslyndar skoðanir,
umburðarlyndar og mannúðlegar.
Kenningin er þá sú að þessi eilífa
pólitíska rétttrúnaðarkrafa um góð-
vild í garð annarra og jafnrétti fólks
burtséð frá kyni, stétt eða uppruna,
sé svo íþyngjandi og þrúgandi að
hún hafi hrakið fólk í fang Donalds
Trump og viðlíka afla sem gefi fólki
nauðsynlega útrás fyrir þörf sína
að viðra andúð á öðru fólki. Sam-
kvæmt þessum þankagangi er hatur
og fordómagirni nokkurs konar
grunnhvöt hjá öllum manneskjum
og sá eða sú sem predikar kærleika,
jafnrétti og mildi í dómum sé þá að
hræsna, að þykjast, til þess að ná
völdum í samfélaginu og „þagga“
niður „umræðuna“ sem „þarf að
taka“.
Ég veit það ekki. Er ekki nær-
tækara að líta svo á að kjör Trumps
sé fremur þeim að kenna sem kusu
hann en hinum sem kusu hann ekki?
Að vísu má segja sem svo að allt
það fólk sem sat heima í forseta-
kosningunum – meirihluti þjóðar-
innar – eigi sína sök á þessu, og eins
má færa rök fyrir því að Hillary hafi
mistekist að kveikja í mörgu fólki
sem ekki vildi Trump – en nennti
ekki heldur að kjósa hana. Við
megum að vísu ekki gleyma því að
hún fékk skýran meirihluta atkvæða
á þjóðarvísu, en Trump krækti hins
vegar í kjörmennina. Af hverju tap-
aði svo augljóslega hæf kona fyrir
svo augljósum labbakút? Þar kemur
ýmislegt til: íhaldssemi í kynja-
málum; það er til fólk sem frekar
treystir vanhæfum karli til manna-
forráða en hæfri konu: en líka hitt:
Hillary var fulltrúi 20. aldarinnar,
gamaldags stjórnmála. Trump var
kallinn í sjónvarpinu sem réð og rak
og réð öllu. Hann er raunveruleika-
þáttaforsetinn.
Já en af hverju?
Eftir stendur samt spurningin: Af
hverju kusu svona margir Banda-
ríkjamenn þennan andstyggilega
mann? Vissu þeir ekki betur? Jú – en
annað vegur þyngra í huga þeirra.
Nefnum fernt: Hann lofar óhá-
skólagengnu fólki að taka á afleið-
ingum alþjóðavæðingar og skapa
störf með nýrri tegund af merkant-
ílisma sem á eftir að breyta mjög
andrúmsloftinu í heiminum, og í
leiðinni herða mjög á ágangi á nátt-
úruauðlindir, með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum fyrir Jörðina og framtíð
mannkyns. Annað: hinni fjölmennu
millistétt, sem er vellaunuð en hefur
ekki jafnmikið milli handanna og
hún telur sig þurfa lofar hann stór-
felldum skattalækkunum og afnámi
sjúkratryggingakerfis, en hjá mörgu
slíku fólki hafa slíkar greiðslur
hækkað til muna eftir að Obama-
stjórnin innleiddi sitt tryggingakerfi.
Þannig nær hann bæði að höfða
til háskólagengins fólks í sérhæfðum
störfum og fólks í láglaunastörfum
sem keppir um störfin við fólk úr
öllum heiminum.
Og það þriðja er svolítið óljóst
en mikilvægt. Aftur: Trump er ekki
kosinn þrátt fyrir galla sína heldur
vegna þeirra. Hann er ófyrirleit-
inn, óútreiknanlegur reglubrjótur.
Hann er kallinn í sjónvarpinu sem
við skellum okkur á lær yfir: upp á
hverju tekur hann nú? Hann höfðar
til okkar verri manns.
Mótþróinn er innbyggður í
þjóðar sálina þar vestra; persónur
með mótþróaröskun eru þar í
hávegum hafðar í kvikmyndum,
bókum og rokkmúsík-kúltur; við
höfum séð ótal bíómyndir um þessa
týpu sem gerir aldrei það sem ætlast
er til af henni, er með dónaskap og
ljótan munnsöfnuð – vart húsum
hæf – en endar svo á að bjarga öllu
út af hyggjuviti sínu og þvermóðsku.
Þessi mannshugsjón einstaklings-
hyggjunnar endurspeglar sjálfsmynd
hvítra karla, sem hafa gníst tönnum
yfir Obamahjónunum, svo elegant
og gáfuð og framúrskarandi sem þau
eru. Og virðast hafa þar með nært
djúprætta vanmetakennd í þessu
furðufyrirbæri sem er hinn miðaldra
hvíti karlmaður. Og hefndi sín með
því að senda okkur Trump.
Við getum ekkert nema vonað
að upphafslínur lagsins sem hann
valdi að láta syngja yfir sér eigi bara
við um valdatíð hans: „And now the
end is near …“
„Líður nú að lokum …“
Þessi mannshugsjón ein-
staklingshyggjunnar endur-
speglar sjálfsmynd hvítra
karla, sem hafa gníst tönnum
yfir Obamahjónunum, svo
elegant og gáfuð og framúr-
skarandi sem þau eru.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17M Á n u d a g u R 3 0 . j a n ú a R 2 0 1 7
3
0
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
1
8
-1
4
C
4
1
C
1
8
-1
3
8
8
1
C
1
8
-1
2
4
C
1
C
1
8
-1
1
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K