Fréttablaðið - 30.01.2017, Side 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
V ið vorum að gera smá tilraun með hvernig við skrifum,“ segir Salka Valsdóttir, meðlimur Reykja-víkurdætra, um nýtt
fyrirkomulag í textaskrifum. „Venju-
lega er eitthvað þema og þá fara allir
í sitt horn og skrifa sitt vers, svo
púslum við öllu saman. Við
höfum líka skrifað heilt
lag saman, þá hitt-
umst við geðveikt
oft og púslum
einni og einni
s e t n i n g u
saman. Það
eru skemmti-
legar leiðir til
að skrifa en
nú prófuðum
við nýja leið
þannig að allt
myndi flæða
betur. Við Þuríð-
ur Blær skrifuðum
sem sagt öll versin
í þessu nýja lagi. Við
skrifuðum vers fyrir hverja
og eina og svo komu hinar með sitt
„input“ og sumar bættu við textann
eftir á.“
Salka segir þessa tilraun vera
skemmtilega og planið er að halda
áfram að vinna með þessu fyrir-
komulagi. „Næst munu þá kannski
einhverjar aðrar skrifa textann.
Þá verður útkoman örugglega allt
öðruvísi því við erum allar með
ólíkan stíl. Það sem einkennir okkur
er mikill texti, við erum náttúrulega
svo margar, og það heldur sér alveg.“
Eins og áður sagði er þetta í fyrsta
sinn sem Reykjavíkurdætur vinna
með Marteini og þar af leiðandi er
nýr og ferskur blær á nýja laginu, að
sögn Sölku. „Marteinn er að vinna
með mjög skemmtilegan hljóð-
heim, mikið af brotnum hljómum,
svolítið hart og offbít. Hann kemur
með annan blæ.“
Fá hvort sem er
alltaf einhvern skít
Lög Reykjavíkurdætra eiga það til
að valda uppnámi og Salka segir
margt fólk vera upptekið af því að
reyna að lesa á milli línanna þegar
það hlustar á textana. „Fólk á það til
að kryfja textana okkar alveg rosa-
lega. Fólk verður oft mjög reitt og
gerir ráð fyrir að lögin okkar hafi
mikil og marglaga skilaboð, þó að
við séum bara stundum, eins og svo
margir aðrir, að leika okkur.“
„Það eru örugglega margar ástæð-
ur fyrir því,“ segir Salka aðspurð af
hverju fólk taki texta þeirra gjarnan
bókstaflega. „Ég held að almennt
sé meiri smásjá yfir því sem konur
gera, fólk hefur áhyggjur af því að
lögin okkar séu ekki barnvæn eða
viðeigandi. Það er oft minna rými
fyrir ólíka kvenkaraktera og raddir.
Það er minna rými fyrir að konur
segi hluti án þess að það hafi ótrú-
lega miklar afleiðingar. En við [í
Reykjavíkurdætrum] höfum komist
að þeirri niðurstöðu að það er bara
best að segja það sem maður vill og
meinar, maður mun hvort sem er
alltaf fá einhvern skít,“ segir Salka
og hlær.
Salka spáir því ekki að nýja lagið
muni valda neinu uppnámi. „Nei,
ég held ekki en maður veit reyndar
aldrei. Eins og t.d. þegar við löbb-
uðum út úr þætti Gísla Marteins á
sínum tíma þá ræddum við það að
við hefðum kannski átt að gera eitt-
hvað meira, ganga eitthvað lengra
með það. En svo fannst fólki það
alveg brjálað, þannig að maður veit
aldrei. En þetta nýja lag er ekki að
skjóta neinum föstum skotum á
neitt ákveðið.“
Það sem er á döfinni hjá Reykja-
víkurdætrum er gerð myndbands
við nýja lagið. „Það kemur út
14. febrúar, á Valentínusardaginn.“
Þess má geta að nýja lagið kemur á
allar veitur 14. febrúar en þangað til
verður það í útvarpsspilun.
Þegar Salka er spurð út í hvort
von sé á nýrri plötu frá Reykjavíkur-
dætrum svarar hún neitandi. „Við
erum ekki að fara að gefa út plötu á
næstunni, en það er mikil gróska og
það er að koma mikið af nýju efni á
næstunni, í formi nokkurra singúla
örugglega. Það er fullt á leiðinni.“
gudnyhronn@365.is
Spáir því ekki að nýja
lagið valdi uppnámi
Hljómsveitin Reykjavíkurdætur sendi frá sér glænýtt lag í síðustu
viku. Lagið, sem heitir Kalla mig hvað, unnu þær ásamt Marteini,
betur þekktum sem Bngrboy, en þetta er í fyrsta sinn sem þær
vinna með honum. Texti lagsins er svo skrifaður með öðru fyrir-
komulagi en meðlimir Reykjavíkurdætra hafa notað hingað til.
Salka Valsdóttir er ein þeirra sem sáu að mestu um að skrifa textann við nýjasta lag Reykjavíkurdætra, Kalla mig hvað.
MyND/HREFNA BJÖRG GyLFADÓTTIR
Ég held að almennt
SÉ meiRi SmáSjá yfiR
því Sem konuR geRa,
fólk hefuR
áhyggjuR af
því að lögin
okkaR SÉu
ekki
baRn-
væn eða
við-
eigandi.
TAMPA
tungusófi
Aðeins 89.925 kr.
Dökk- eða ljósgrátt slitsterkt áklæði.
Hægri eða vinstri tunga.
Fullt verð: 119.900
14
3
cm
240 cm
25%
AFSLÁTTUR
Mjúk og falleg
„satin striped“
Policotton sængurföt.
Sængurver 140x200 cm
Koddaver 50x70 cm
Fullt verð: 6.490 kr.
DORMA HOME
sængurföt
Aðeins 4.868 kr.
Stillanlegur hægindastóll.
með skemli. Ljósgrátt
slitsterkt áklæði.
Fullt verð: 69.900 kr.
WESTFIELD
hægindastóll
með skemli
ÚTSALA DORMA
NÚ Á FJÓRUM STÖÐUM
Nýttu tækifærið
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 12–16 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
25%
AFSLÁTTUR
Aðeins 41.940 kr.
40%
AFSLÁTTUR
NATURE’S REST
heilsurúm m/classic botni
Verðdæmi
120 x 200 cm
Fullt verð: 79.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
af 120x 200 cm á meðan
birgðir endast.
Svart PU
leður á botni.
Aðeins 59.920 kr.
OPIÐ Á SUNNUDÖGUM Í
DORMA SMÁRATORGI
ÚTSALAN
LOKAVIKAN
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
Hluti af Reykjavíkurdætrum.
FRÉTTABLAÐIÐI/ERNIR
3 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 M Á n U D a G U r26 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð
3
0
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
1
8
-0
1
0
4
1
C
1
7
-F
F
C
8
1
C
1
7
-F
E
8
C
1
C
1
7
-F
D
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K