Ægir - 01.02.2016, Side 15
15
veiðum til markaðar. Við viljum snúa þessu
við og tala um að vinna frá markaði til veiða
því það er markaðurinn sem stýrir því sem
við gerum. Ef markaðurinn þarf að fá mikið
magn af ferskum þorski á þriðjudegi þá
bregðumst við strax við með stýringu á
veiðunum. Á þennan hátt snýst okkar starf í
vinnslunni um að vinna mjög náið með
annars vegar markaðnum og hins vegar út-
gerð skipanna. Því er enginn vafi að einn af
helstu styrkleikum Samherja sem sjávarút-
vegfyrirtækis er að hafa stjórn á öllum þess-
um þáttum, reka öflugt markaðsstarf við
hlið útgerðar og vinnslu og vera með gott
fólk úti á mörkuðunum. Markaðstenging
sjávarútvegfyrirtækjanna er komin til að
vera og mun aðeins halda áfram að aukast
á komandi árum,“ segir Gestur.
Afhendingaröryggið mikilvægt
Afhendingaröryggi segir Gestur vera einn
allra mikilsverðasta þátt nútíma fiskvinnslu,
það að viðskipavinum sé tryggð sú vara
sem þeir þurfa og á þeim tíma sem þeir
þurfa. Geti stórmarkaðir erlendis ekki treyst
því að fiskurinn frá Íslandi skili sér á réttum
tíma verði hann undir í samkeppninni.
„Þessi þjónusta sem ég nefndi áðan og
samspil stöðugra gæða og afhendingar-
öryggis eru lykilþættirnir í okkar daglega
starfi. Okkar vara á sitt hillurými í stórmörk-
uðunum og ef hún ekki skilar sér þá kemur
eitthvað annað í staðinn, hvort heldur það
er kjúklingur eða annar fiskur. Við vinnum í
miklu samkeppnisumhverfi og keppum til
dæmis við Norðmenn, bæði framleiðslu
þeirra á hvítum fiski og laxi. Það vill stund-
um gleymast hversu gríðarlega öflug vara
laxinn er út um allan heim. Hann hefur
hækkað í verði undanfarin ár og það kann
líka að skapa okkur Íslendingum tækifæri
að bjóða þorskinn sem ódýrari vöru en há-
gæða matfisk við hliðina á laxinum. Íslensk-
ar fiskafurðir eru þannig í stöðugri sam-
keppni og okkar starf snýst um að standa
alltaf sem best að vígi í henni,“ segir Gestur
Geirsson.
Pökkunarlínur fyrir ferskar afurðir. Hér er verið að pakka þorskhnökkum og vart hægt að segja að mannshöndin komi mikið við sögu. Sjálfvirknin
er í fyrirrúmi.
Frosnir bitar á leið úr lausfrystingu áfram til pökkunar. Þrír hleðsluróbótar eru á gólfinu í pökkunarstöðinni og sjá um að stafla
bæði frosnum og ferskum afurðum á vörubretti.