Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.2016, Qupperneq 19

Ægir - 01.02.2016, Qupperneq 19
19 Marás ehf. Miðhrauni 13 210 Garðabæ Sími 555-6444 www.maras.is maras@maras.is Við leggjum metnað okkar í að bjóða aðeins fyrsta flokks búnað og þjónustu Yanmar vélar eru góður valkostur þegar kemur að nýsmíði eða endurnýjun á vélbúnaði í skipum og bátum. Eyðslugrannar og hagkvæmar í rekstri. Norðmanna, líkt og hjá okkur, þá hafa þeir þurft að leita víðar eftir þessari vöru. Þannig er framleiðslan til komin hjá okk- ur. Þetta er áhugaverð nýsköp- un fyrir okkur,“ segir Ívar. Strangt gæðaeftirlit tryggir gæðaframleiðslu Verksmiðja Dögunar á Sauðár- króki er vel búin tæknilega. Eftir að búið er að þýða frosið hrá- efnið upp í tönkum fer það í sjóðara og þaðan í vélbúnað sem flettir skelinni af og síðan fer rækjan í gegnum tvöfalt myndavélarkerfi og tengdan búnað sem gegnumlýsir hverja einustu rækju og flokkar frá þá sem ekki hefur hreinsast full- komlega í ferlinu. Gæðaeftirlitið er með öðrum orðum mjög strangt. Lokaferlið er síðan frysting og pökkun en í heild tekur þessi ferill um 45 mínútur frá því hráefnið fer í sjóðarann. „Störf í rækjuverksmiðjum eins og þessari eru talsvert frá- brugðin því sem var á árum áð- ur þegar rækjan var handpilluð. Við erum mjög meðvituð um að við erum að framleiða við- kvæma neytendavöru í hæsta gæðaflokki, vinnum undir mjög ströngum gæðavottunarkerf- um og þurfum að uppfylla þær kröfur sem kaupendur okkar gera. Stærstu viðskiptavinir koma í heimsóknir árlega og fara yfir allt framleiðsluferlið. Þannig er á allan hátt reynt að tryggja hámarksgæði. Kröfurnar hafa í áranna rás farið vaxandi og sú þróun mun halda áfram. Það er að mínu mati jákvætt fyrir alla aðila; okkur sem fram- leiðendur og viðskiptavini okk- ar. Gæði eru aðalatriðið,“ segir Ívar Örn. Um 45 mínútur tekur rækjuna að fara í gegnum vinnsluferlið í Dögun, þ.e. frá uppþýðingartönkum og þar til rækjan er komin frosin í poka.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.