Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.2016, Qupperneq 22

Ægir - 01.02.2016, Qupperneq 22
22 Kælismiðjan Frost hannar og afhendir á þessu og næsta ári frysti- og kælibúnað í tíu nýsmíðaverkefni. Um er að ræða sjö ferskfisk- togara sem eru í smíðum fyrir þrjú íslensk sjávarútvegsfyrirtæki í Tyrklandi. Þau skip verða afhent 2016 og 2017. Auk þess eru þrír frystitogarar sem smíðaðir verða í Noregi, tveir fyrir útgerð í Þýska- landi og einn fyrir útgerð í Kanada. Fyrsta frystiskipið verður af- hent í lok árs 2016 og hin tvö árið 2017. Frost hannar og afhendir allan kæli- og frystibúnað í þessi þrjú skip fyrir 80 til 140 tonna af- köst á sólahring. Verðmæti þessara samninga eru á bilinu 100 til 500 milljónir króna, en verkefni eru nú í pantanabók fyrirtækisins yfir 2 milljarða inn á þetta ár. „Við erum með samninga upp á tíu nýsmíðaverkefni og liggur fyrir að tvö bætist við svo þau eru í raun 12 þar sem við hönnum allan búnað og svo er mikil áskorun í því að við förum erlendis og setjum búnaðinn upp sjálfir í skipin. Við vorum að ganga frá samningum við Vinnslustöðina í Vestmannaeyj- um um verulega stækkun á uppsjávarfrystingunni hjá þeim, en þar verður frystigetan færð upp í 450 tonn á sólarhring í nýjum blástursfrystum sem á að vera komin í gagnið í júlí. Við erum einnig að vinna að byggingu nýrrar frystigeymslu hjá Loðnuvinnslunni á Fá- skrúðsfirði og ljúkum því verki nú í mars. Við erum ennfremur nýbúnir að ljúka verkhluta okk- ar í nýrri frystigeymslu Eimskips í Hafnarfirði. Og erum að leggja Kælismiðjan Frost Afhenda búnað í 10 nýsmíðaverkefni og fleiri í farvatninu Guðmundur Hannesson, sölu- og markaðsstjóri Kælismiðjunnar Frosts. Þ jón u sta

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.