Ægir - 01.02.2016, Blaðsíða 23
23
lokahönd á nýja laxafrystingu í
blástursfrystum í Færeyjum hjá
fyrirtækinu Hiddenfjörd,“ segir
Guðmundur Hannesson, sölu-
og markaðsstjóri Kælismiðjunn-
ar Frosts.
Krefst skipulags að manna mörg
verk samtímis
Guðmundur segir að það felist í
því mikil áskorun að vera með
öll þessi nýsmíðaverkefni í
gangi samtímis, en áður hafi
þeir verið með eitt til tvö slík í
gangi í einu. Það sé meira að
segja í pípunum að tvö slík
verkefni bætist við. Hann segir
að það sé töluverð skipulags-
vinna að manna öll þessi verk-
efni og það hafi gengið alveg
ágætlega fram að þessu.
Allur búnaður og kerfi eru
hönnuð og teiknuð hjá Kæl-
ismiðjunni Frost á Akureyri og í
Garðabæ og að hluta til smíðað
fyrir norðan, en sumt er samsett
í verksmiðjum erlendis og er
sent beint á verkstað. „Við
sjáum svo um alla uppsetningu
í skipunum og skilum kerfunum
í gangi,“ segir Guðmundur.
Spennandi tímar framundan
Hann er mjög ánægður með
verkefnastöðuna og umsvifin
hjá félaginu. „Það eru bara
spennandi tímar framundan en
jafnframt krefjandi. Það er stöð-
ugt verið að þrengja að sjávar-
útveginum með vaxandi kröf-
um frá markaðnum, og svo ekki
sé meira sagt með undarlegum
aðgerðum stjórnvalda og með
afskaplega neikvæðri umfjöllun
um útveginn hér á Íslandi sem
er virkilega þreytandi umræða.
Fólk almennt áttar sig held ég
ekki almennilega á því hvaðan
tekjur þjóðarbúsins komi og
það þurfi að huga vel að rekstr-
arumhverfi sjávarútvegsins til
lengri tíma litið,“ segir Guð-
mundur.
Auk þessara verkefna þá
hefur Frost í samstarfi við Skag-
ann og Rafeyri gert samning við
Eskju á Eskifirði um uppbygg-
ingu á nýrri uppsjávarvinnslu
sem í fyrsta áfanga mun afkasta
allt að 900 tonnum á sólarhring.
„Þessi verksmiðja á að vera
komin í gang seinni hlutann í
september á þessu ári. Verkefn-
ið er risavaxið og verður unnið
á afar skömmum tíma og reynir
því á slagkraft þessara fyrir-
tækja sem þau hafa svo sannar-
lega sýnt í fyrri sambærilegum
verkefnum í Færeyjum á síð-
ustu árum,“ segir Guðmundur
Hannesson.
Kælikerfi sem Frost setti upp í
uppsjávarvinnslu Vardin í Fær-
eyjum.
Meðal verjefna Kælismiðjunnar Frosts á komandi mánuðum er frystibúnaður í tvo nýja frystitogara DFFU í Þýskalandi en togararnir verða smíðaðir
í Kleven skipasmíðastöðinni í Álasundi í Noregi.