Ægir

Volume

Ægir - 01.02.2016, Page 33

Ægir - 01.02.2016, Page 33
33 skipta máli í daglegri keyrslu í flökun. Hver og einn notandi á vélinni hefur sitt lykilorð á hana og vélin stillir sig á mismunandi hátt eftir því hver notandinn er. Þetta er atriði sem við vitum af reynslu okkar síðustu ár að skiptir umtalsverðu máli vegna þess að það getur verið veru- legur munur á því hvernig fólk setur fiskinn í flökunarvélina. Og það hefur áhrif á flökunina. Þetta er bara eitt dæmi um hvaða möguleika tölvustýringin gefur okkur og við erum að nýta okkur í forrituninni,“ segir Bjarmi. Stýring og hjálpartæki í senn Einn þáttur gæðakerfisins í vél- inni eru innbyggðar leiðbein- ingar í tölvubúnaðinum til að bregðast við flakagöllum ef upp koma. Stjórnandi vélarinn- ar getur þannig kallað upp val- myndir af helstu flakagöllum og fær síðan á stjórnskjánum leiðbeiningar um lagfæringar- leiðir. Tölvubúnaðurinn er um leið stjórntæki á viðhald vélar- innar, minnir notandann á ein- staka viðhaldsþætti og heldur utan um skráningu um viðhald. „Á þennan hátt stuðlum við að því að öllu fyrirbyggjandi viðhaldi sé vel sinnt til að koma í veg fyrir óvæntar frátafir. Þeg- ar um er t.d. að ræða vélar í vinnsluskipum úti á sjó er þetta atriði ekki hvað síst mikilvægt,“ segir Bjarmi. Tölvubúnaðurinn í vélinni ræður við geymslu á umtals- verðu gagnamagni, t.d. um nýt- ingu, en býður jafnframt upp á þann möguleika að vélin sé nettengd. „Við það opnast okk- ur fjölmargir áhugaverðir möguleikar. Í fyrsta lagi geta t.d. vinnslustjórar fylgst algjör- lega með öllum upplýsingum frá vélinni í stjórnherbergi fisk- vinnsluhúsa og sama má t.d. segja um skipstjóra vinnslu- skipa úti á sjó. Síðast en ekki síst gefur þetta okkur sem þjón- ustuaðilum og framleiðendum færi á að nettengjast vélinni ef eitthvað kemur uppá sem hægt er að bæta úr með auðveldum hætt, leiðbeina stjórnanda vél- arinnar eða uppfæra hugbún- að,“ segir Bjarmi en einnig er komið sérstakt öryggiskerfi í vélina sem stöðvar hana sam- stundis ef starfsmaður sem ekki er skráður með aðgang að henni fer að vélinni meðan hún er í keyrslu. Þá má einnig nefna að stjórnborð vélarinnar býður upp á nokkur 10 mismunandi tungumál, sem hvort heldur getur skipt máli fyrir vinnslur hér á landi eða erlendan mark- að. Eins og áður segir verður tölvustýring vélanna kynnt á sjávarútvegssýningunni í Brus- sel í næsta mánuði en vél með þessu kerfi verður í nýju frysti- skipi Ramma hf. sem er nú í smíðum í Tyrklandi. Hausari Vélfags er einnig tölvustýrður og hefur framleiðsluheitið M525. Roðdráttarvélin M825.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.