Ægir - 01.03.2016, Qupperneq 18
18
Víða hefur verið óvenju góð veiði á yfirstandandi grásleppuvertíð,
til dæmis í Skagafirði. Steindór Árnason, trillukarl á Sauðárkróki,
segir að mikil veiði kunni að vega upp á móti umtalsverðri lækkun
fyrir grásleppuna frá fyrra ári en hins vegar geti of mikil veiði leitt
til offramboðs á mörkuðum sem aftur kunni að koma í bakið á
mönnum á næsta ári.
„Síðustu árin hef ég verið
trillukarl að atvinnu en ég var
áður til margra ára á togurum,
síðast á Málmeynni í um tíu ár.
Á hverju ári fékk ég frí á vorin
til þess að fara á grásleppu. Það
má segja að ég sé alinn upp við
grásleppuveiðar. Líklega var ég
fimmtán ára gamall þegar ég
eignaðist fyrstu trilluna og síð-
an má segja að ég hafi alltaf átt
trillu. Það eru ekki margar grá-
sleppuvertíðir sem ég hef misst
af síðan ég var strákur og í
fjöldamörg ár hefur ekki dottið
út ein einasta vertíð. Verð á
grásleppuhrognum var orðið
prýðilega gott og þegar við
bættust strandveiðarnar var
hægt að hafa afkomu af trillu-
útgerð,“ segir Steindór Árna-
son.
Óvenju mikið af loðnu í
Skagafirði
Sjö bátar hafa verið gerðir út á
grásleppuveiðar í Skagafirði á
þessari vertíð. Steindór segir að
framanaf hafi veiðarnar gengið
mjög vel enda tíðarfarið með
eindæmum gott. Og aflinn var
eftir því sérlega góður og segist
Steindór ekki minnast svo mik-
illar veiði mörg undanfarin ár.
Erfitt sé að ráða í hvað valdi
þessari góðu veiði, en almennt
sé greinilegt að lífríkið sé mjög
gott um þessar mundir, mikil
fiskgengd og óvenju mikið um
bæði sel og hnísur. „Það er
erfitt að ráða í skýringu á svo
mikilli veiði hérna á þessu vori
en ég vil þó halda því fram að
það hafi tengst óvenju mikilli
loðnugengd í firðinum, það má
segja að seinnipart vetrar og í
vor hafi fjörðurinn verið fullur af
loðnu. Og ég tel mig sjá teng-
ingu þarna á milli, það er að
segja að mikilli loðnu fylgi mikil
grásleppa.“
Miklar sveiflur í hrognaverði
Eins og fram kom í fréttum í
mars varð töluvert verðfall á
grásleppunni miðað við síðasta
ár og verðið var þá ekkert til
þess að hrópa húrra yfir. Núna
eru borgaðar um 150 krónur
fyrir kílóið af grásleppunni upp
úr sjó en um 200 krónur í fyrra.
Grásleppunni er landað beint á
bíla þegar grásleppukarlarnir
koma að landi og kaupendur
sjá síðan um að verka hrognin.
Það er af sem áður var þegar
trillukarlarnir sáu sjálfir um að
salta hrognin í tunnur. Nú eru
líklega yfir 90% af grásleppunni
sem er veidd verkuð af kaup-
endum en ekki veiðimönnun-
um. „Mér hefur fundist heldur
vera að síga á ógæfuhliðina í
markaðsmálunum. Við söltuð-
um alltaf sjálfir og seldum síðan
tunnurnar en þetta hefur
breyst. Núna sjá kaupendur um
Grásleppan
í góðum gír
í Skagafirði
„Það er ekki hægt að
byggja útgerð á leigukvóta-
kerfinu. Það kemur oft fyrir
að maður fær minna fyrir
fiskinn en sem nemur
leiguverðinu á fiskinum.
Það segir sig því sjálft að
slíkt kerfi gengur ekki upp.“
Æ
g
isv
iðta
lið