Ægir - 01.12.2016, Síða 22
22
Heildarafli íslenska fiskiskipa-
flotans á fyrstu þremur mánuð-
um fiskviðiársins, þ.e. frá 1.
september til loka nóvember-
mánaðar nam tæpum 272 þús-
und tonnum upp úr sjó. Til sam-
anburðar var aflinn á sama
tímabili í fyrra rúm 259 þúsund
tonn. Þetta er því aukning í
heildarafla sem nemur um 5%
eða rúmum 12 þúsund tonnum.
Aflaaukningin skýrist að mestu
af meiri þorsk- og makrílafla
samkvæmt tölum Fiskistofu.
Minna af botnfiski
Á fyrstu 3 mánuðum yfirstand-
andi fiskveiðiárs veiddu íslensk
skip um 694 tonnum meira af
þorski (1,0%) en samdráttur var
í ýsuafla um tólf hundruð tonn.
Þá dróst ufsaaflinn saman á
milli ára um 496 tonn, sem er
samdráttur um 5,2%.
Heildaraflinn í botnfiski er á
þremur fyrstu mánuðum fisk-
veiði-ársins 120.855 tonn sam-
anborið við 123.193 tonn á
sama tímabili í fyrra. Þetta er
samdráttur upp á 1,9%.
Meiri makríll á haustmánuðunum
Á þremur fyrstu mánuðum fisk-
veiðiársins nam uppsjávarafli ís-
lenskra skipa 148.756 tonnum.
Þetta er 14.785 tonnum meiri
afli en á sama tímabili á síðasta
fiskveiðiári. Helst er það aukn-
ing í afla úr norsk-íslenska síld-
arstofninum og aukning á
makrílafla sem skýrir þessa
aukningu. Hins vegar var veru-
legur samdráttur í kolmunna-
afla, eða úr 19 þúsund tonnum
niður í 6 þúsund tonn.
Humarinn tekur dýfu
Afli íslenskra skipa í skel- og
krabbadýrum á þremur fyrstu
mánuðum fiskveiðiársins er
sambærilegur við aflann á sama
tíma í fyrra. Aukningin á yfir-
standandi fiskveiðiári nemur
aðeins um 18 tonnum. Helsti
munurinn er sá að aukning er í
afla á sæbjúgum úr 410 tonn-
um í 763 tonnum og afli í ígul-
keri úr 125 tonnum í 163 tonn.
Samdráttur varð hins vegar í
rækjuafla úr 1.164 tonnum nið-
ur í 805 tonn og humarafli dróst
verulega saman, úr 269 tonn
niður í 133 tonn (-51%).
Hafa veitt 30% af þorskinum
Við lok fyrsta fjórðungs fisk-
veiðiársins 2016/2017 höfðu
aflamarksskip nýtt um 29,9% af
aflaheimildum sínum í þorski
og er þá tekið tillit til flutnings
heimilda frá fyrra fiskveiðiári,
sérstakra úthlutana auk al-
Meira fiskast af
þorski og makríl
F
isk
a
flin
n