Morgunblaðið - 21.07.2016, Síða 1

Morgunblaðið - 21.07.2016, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 1. J Ú L Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  169. tölublað  104. árgangur  90% STUNDA REGLULEGA HEILSURÆKT HUGHRIF ÚT Í HIMINGEIMINN LÝSIR SKÖPUN HEIMSINS Í TÓNUM HÁTÍÐ Í GRUNDARFIRÐI 13 REYKHOLTSHÁTÍÐ 38VIÐSKIPTAMOGGINN Litríkt Kakósmjör í ýmsum litum setur skemmtilegan blæ á SÖLVA-súkkulaðið.  Fimm nýstúdentar úr Verzlunar- skólanum standa á bak við fyrir- tækið SÖLVA Chocolates sem selur handgert hágæðasúkkulaði úr kakóbaunum frá Tansaníu. Fyrir- tækið varð til í valáfanga í frum- kvöðlafræði í Verzló. SÖLVA Chocolates var valið fyrirtæki árs- ins 2016 í samkeppni ungra frum- kvöðla, Junior Achievement, á Ís- landi. Á mánudag munu þau halda til Sviss þar sem þau taka þátt í Evrópukeppni ungra frumkvöðla ásamt 40 öðrum fyrirtækjum. Í keppninni munu þau kynna súkku- laðið og hugmyndafræðina á bak við fyrirtækið. Hópurinn leggur áherslu á gott siðferði í viðskiptum sínum og lang- ar að gera heiminn örlítið betri með súkkulaðigerðinni. »12 Ungir frumkvöðlar ætla að sigra Evr- ópu með súkkulaði Inntökupróf » Alls eru 48 útskrifaðir úr læknadeild Háskóla Íslands. » Íslenskir læknar hafa einnig verið að mennta sig erlendis. » Verði fjölgað í 60 eru 12-15 ár þangað til nemendur ljúka námi. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Hafinn er undirbúningur að fjölgun nemenda á fyrsta ári í læknisfræði við Háskóla Íslands úr 48 í 60. Unnið hefur verið að skipulagsbreytingum á náminu. Einnig er verið að skoða verklega þáttinn, sem fer að mestu fram á Landspítalanum, og hvar ný- ir nemendur komast fyrir verði ákveðið að fjölga. „Þótt við fjölgum þá er þetta fólk ekki að skila sér heim sem sérfræðingar fyrr en eftir 12 - 15 ár þannig að þetta leysir ekki bráðavandann okkar,“ segir Reynir Arngrímsson, formaður læknaráðs Landspítalans. Á síðasta starfsári voru ráðnir 23 nýir sérfræðingar í fastar stöður á spítalann en á móti hættu nokkrir, sumir vegna aldurs en aðrir fengu betra tilboð erlendis frá. „Við þurf- um að spyrja okkur alvarlegra spurninga eins og hvers vegna er fólk ekki að koma heim eftir að launakjör voru bætt? Eru það vinnuaðstæður? Er það skipulag starfseminnar? Er það stjórnun á heilbrigðiskerfinu? Áætlanir nú gera ráð fyrir nánast óbreyttu hús- næði næstu 7-8 árin. Það er graf- alvarlegt mál að geta ekki boðið upp á betri aðstæður fyrir skjólstæðinga spítalans. Ég skynja vilja hjá stjórn- málamönnum til að bæta hér úr og e.t.v. rætist úr á næsta áratug.“ Fjölga úr 48 í 60 í læknadeild  Undirbúa fjölgun nemenda í læknisfræði við HÍ  Leysir ekki bráðavandann  Á síðasta starfsári voru alls ráðnir 23 nýir sérfræðingar á Landspítalann MSkortur á sérfræðilæknum »4 Tölvuteikning/THG arkitektar Landssímareitur Svona mun nýja hótelið líta út, séð frá Herkastala. Forsvarsmenn Landssímareitsins eru óánægðir með þá ákvörðun Reykjavíkurborgar að synja ósk þeirra um að fá að rífa Thorvaldsens- stræti 6, sem er nýbygging við Landssímahúsið, reist árið 1997. Davíð Þorláksson, framkvæmda- stjóri Lindarvatns ehf., sem er eig- andi Landssímareitsins, segir fullt tilefni fyrir borgina að endurskoða þessa ákvörðun. Byggingin sé óhent- ug fyrir þá starfsemi sem þar eigi að koma og auk þess hafi athuganir verkfræðinga leitt í ljós að byggingin standist ekki kröfur hvað varðar jarðskjálftaálag. Þá séu gólfplötur í húsinu svo þunnar að þær uppfylli ekki núgildandi byggingarreglu- gerðir. „Við erum að skoða stöðuna og vonum að hægt verði að finna lausn á þessu máli,“ segir Davíð. Í deiliskipulagi er heimild til að breyta innra skipulagi og útliti húss- ins til þess að fá betri nýtingu í það. Samkvæmt því er eigandanum heim- ilt að rífa framhlið hússins en ekki húsið sjálft, enda liggur fyrir heimild til að byggja framan við húsið, nær Kirkjustræti. Í húsunum verður m.a. starfrækt glæsihótel. »6 Segja byggingu óhentuga  Borgin endurskoði synjun á niðurrifi Thorvaldsensstrætis 6 Knattspyrnumótið Síminn ReyCup hófst með glæsilegri setningarathöfn í gærkvöldi. Þessar stúlkur úr Val voru fullar eftirvæntingar og fylktu liði í skrúðgöngu athafnarinnar. Stelpur og strákar á aldrinum þrettán til sextán ára keppa á mótinu og í ár taka fimm erlend lið þátt í mótinu. Alls eru liðin um 90 og telja keppend- urnir um 1.300. Mótinu lýkur á sunnudag með úrslitaleikjum á Laugardalsvelli. Blásið til knattspyrnuveislu í Laugardal Morgunblaðið/Árni Sæberg Setningarathöfn ReyCup var haldin í blíðskaparveðri í gærkvöldi  Forseti Tyrk- lands, Recep Tayyip Erdogan, lýsti í gærkvöldi yfir neyðar- ástandi í landinu í þrjá mánuði og sagði það nauð- synlegt til að gera yfirvöldum kleift að „fjar- lægja strax alla þá“ sem tóku þátt í valdaránstil- rauninni misheppnuðu í vikunni sem leið. Yfir 50.000 Tyrkir hafa annaðhvort verið handteknir eða leystir frá störfum. »2 og 16 Erdogan lýsir yfir neyðarástandi Recep Tayyip Erdogan „Fólk getur verið með fullt af góð- um hugmyndum en lykillinn er reksturinn. Í veit- ingabransanum snýst þetta mjög mikið um stöðug- leika,“ segir Birg- ir Þór Bieltvedt sem á undan- förnum árum hef- ur látið mjög að sér kveða í veitinga- rekstri hér á landi og erlendis. Eftir að hafa meðal annars átt þátt í því að endurskipuleggja rekst- ur Magasin du Nord í Kaupmanna- höfn og sett af stað Domino’s Pizza í Þýskalandi, sneri Birgir heim nokkru eftir efnahagshrun og keypti ásamt fjárfestum rekstur Domino’s á Íslandi. Í ViðskiptaMogganum í dag rekur Birgir uppbyggingu fyrirtækja í kringum rekstur vinsælla veit- ingastaða sem telja meðal annars Joe & the Juice, Gló, Snaps, Brauð & Co, Jómfrúna og nú síðast Café Paris og væntanlegan Hard Rock Café-veitingastað í Lækjargötu. Fullt af hugmyndum en lykillinn er reksturinn Birgir Þór Bieltvedt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.