Morgunblaðið - 21.07.2016, Page 18

Morgunblaðið - 21.07.2016, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þekkturstjórn-málajöfur og frumlegur kenningasmiður fullyrti að tveir kostir þyrftu að prýða stjórn- málamann svo honum farn- aðist vel. Sá fyrri væri að geta sagt fyrir hvað gerast myndi við tilteknar pólitískar aðstæður. Sá síðari snerist um að geta útskýrt með trú- verðugum hætti hvers vegna spárnar hefðu ekki gengið eftir. Eftir brexit-úrslit hefur reynt á þessa eiginleika hjá forkólfum efnahags- og stjórnmála austan hafs og vestan. Hræðsluáróður og heims- endaspár, sem helstu virðing- armenn stunduðu, minntu óþægilega á tilþrif spegil- mynda á Íslandi í slag um Icesave, þegar ítrekað var reynt að varpa ábyrgð einka- aðila yfir á íslenskan almenn- ing. Ríkisútvarpið fór ham- förum. Fyrir milligöngu þess og 365 miðla fengu fyrirmenn og fræðimenn ótal tækifæri til að gera sig að kjánum. Hvert slíkt tækifæri var grip- ið. Hægt væri að rifja upp dapurlegustu dæmin, en það er óþarft. Í Bretlandi skipulögðu yfirvöld vitnakóra úr hópum fyrir- og fræðimanna úr öll- um áttum. ESB lagði sína pótintáta til. Forsvarsmenn atvinnulífs og viðskiptaráða í tugum landa lögðust á sömu sveif. Obama forseti var feng- inn til að hafa í hótunum við Breta. Það hefði hann aldrei gert óumbeðinn. Bretar, helsta vinaþjóð Bandaríkj- anna, með sitt sérstaka sam- band, yrði samt sett í öftustu röð í samskiptum yrði brexit niðurstaðan. Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn birti skelfileg- ar spár um hrikalegan sam- drátt í breskum hagvexti (9%), sem setja myndi efna- hagsþróun á heimsvísu í upp- nám. Englandsbanki söng með: Samdráttur yrði, pund hryndi, fyrirtækjaflótti brysti á. Allt þetta og allt hitt myndi kalla á harkalegar að- gerðir bankans til að bjarga því sem bjarga mætti. Eftir óvænt úrslit þarf að éta ofan í sig hrakspár og hótanir með trúverðugum hætti. Það er ljót sjón lítil. Hangið er í því, að það hafi víst komið niðurkippur fyrstu daga eftir atkvæðagreiðslu. En hann var aðeins merki um að hinn taugaveiklaði hluti markaðarins hefði lagt trún- að á hluta hrakspánna. Hrak- spáráhrifin gátu vart verið minni en þetta, en hrak- spáráhrif eru í eðli sínu skamm- vinn. Þegar að „markaðsöflin“ áttuðu sig á að lítið var að marka stórkarlalegar fullyrð- ingar fína liðsins jöfnuðu þau sig fljótt. Hefðu útgönguúrslitin sjálf valdið sveiflunni þá hefði hún bæði verið dýpri og staðið miklu lengur – í allmörg ár, eins og hrakspármenn höfðu boðað, en ekki í fáeina daga. Seðlabankastjóri Breta læddist í fjölmiðla nokkru síðar til að klóra í bakkann. Hann hélt dauðahaldi í eftir- hreytur hræðsluspáa. Horf- urnar hefðu víst versnað, þótt þess sæjust fá merki og því yrði ekki komist hjá aðgerð- um. Mánuði síðar bólar ekk- ert á þeim og óþarft að nugga bankanum upp úr því. Þetta er orðið nógu vandræðalegt fyrir álit hans. AGS klóraði líka í bakka. Hann kynnti í vikunni nýja spá um hagvöxt, sem sýndi breytta mynd frá spá um síðustu áramót. Brex- it skemmir spána eins og „skiptilykill sem dettur ofan í vélarrúmið“ var sagt til að búa til fyrirsögn handa fjöl- miðlum í sumarharki. En hagvaxtarmínus í Bretlandi vegna brexit varð ekki 9%. Aðeins 0,9%. Í þeirri sam- dráttarspá voru allir aðrir at- burðir frá áramótum, þar með vaxandi áhyggjur af efnahagsþróun í Kína og hvert hryðjuverkið öðru verra. Áfram var spáð meiri vexti í Bretlandi en í stórríkj- um ESB! Englandsbanki lét svæðis- bundna sérfræðinga kanna upplýsingar um minni fjár- festingar, uppsagnir og sam- drátt í ráðningum í kjölfar rangra úrslita í brexit. Þessi „augu og eyru Englands- banka“ svöruðu óvænt að ekki vottaði fyrir slíku. Breska hagstofan upplýsti að sallarólegt væri á vinnu- markaði og atvinnuleysi ekki mælst minna í áratug Nýr fjármálaráðherra, Philip Hammond, sem greiddi atkvæði gegn úrsögn Breta, sagði að lykiltölur sýndu að undirstöður bresks efnahagslífs væru öflugar. Hann bætti við að nú „þegar efnahagslífið lagaði sig að áhrifum þjóðaratkvæðisins þá gerðist það á grundvelli efnahagslegs styrks.“ Eitt- hvað varð hann að segja mað- urinn. Þeim ferst fremur óhönduglega ofanísig átið} Lýst eftir hrakspám É g er að fara eignast barn eftir um það bil korter. Það er reyndar einn mánuður í það en miðað við allt sem ég á eftir að gera gæti allt eins verið korter til stefnu. Ég hef nefnilega heyrt að ég þurfi að eyða rúmum árslaunum í rétta hitamæl- inn fyrir baðvatnið, réttu talstöðina í vagninn og rétta burðarpokann. Ekki viljum við að barnið fái hryggskekkju í Baby Björn- pokanum sem hefur verið notaður í aldarað- ir. Einhver skrifaði nýverið lærða grein um að Ergo Baby-burðarpokinn væri betri og í kjölfarið yrði vanhæfa foreldrið sem vogar sér út með fyrrnefnda draslið líklega grýtt á götum úti. Lítum bara fram hjá þeirri stað- reynd að nýja týpan er um það bil sjöfalt dýrari. Silvercross-vagnar, barnarúm úr Epal, Ralph Lauren- samfellur og talstöð í vagninn með myndbandsupptöku. Er ég mögulega aðeins verra foreldri ef ég nenni ekki að fylgjast með barninu á vídjóskjánum á meðan það sefur? Hvað ef krílið sefur bara í náttgalla úr H&M eins og ein- hver ónytjungur? Úrvalið af barnavörum hefur aldrei verið meira; ég skil það bara mjög vel. Viðkvæmari og auðveldari markaðs- hóp en nýbakaða og verðandi foreldra hlýtur að vera erfitt að finna. Fyrirtæki leika á brothætt og horm- ónadrifið móðureðlið líkt og vanstillta hörpustrengi og stjórnendur sitja líklega í þessum rituðu orðum í reyk- mettuðu bakherbergi að hlæja að vitleysunni sem þeir komust upp með. Rassaþurrkuhitari. Það er raunveruleg vara sem ég íhugaði í fúlustu alvöru að kaupa þegar ég var að fylla internet-innkaupakörf- una á dögunum. Samkvæmt lýsingu verða bleiuskiptin töluvert ánægjulegri fyrir barnið þegar blautþurrkan er ylgvolg. Mjög skyn- samleg kaup. Hver vill kalda og blauta tusku á beran bossann? Hvers vegna svona apparat er ekki til fyrir hinn almenna klósettnotanda er í rauninni óskiljanlegt ef út í það er farið. Þegar allar vörur voru komnar í körfuna blasti á hinn bóginn kaldur og blautur raun- veruleikinn við. Þarna voru þau komin. Árs- launin. Hagsýna húsmóðirin sem ég þykist stundum vera neyddist til að endurskoða kaupæðið með skynsemina að vopni og rassa- þurrkuhitarinn varð fyrstur til að fjúka. Á eftir fylgdu all- ar hinar vörurnar þegar ég leyfði gagnrýniröddum að yf- irtaka hugann. Gjaldþroti afstýrt. Eitthvað þarf ég víst að kaupa og þá helst áður en barnið mætir í rassaþurrkuhitaralausan heiminn. Það ætla ég að vísu að reyna að gera við ágæta meðvitund þrátt fyrir ógnarkraft markaðsaflanna sem vilja mjög mikið að ég kaupi nýja leðurklædda Silver Cross-vagninn. Það er nógu stór áfangi að eignast barn án þess að fyrsta kvíðakastið þurfi að fylgja. Slökum á og njótum raunveru- legu gleðinnar! sunnasaem@mbl.is Sunna Sæmundsdóttir Pistill Hormónaneytendur og draslið STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Umhverfisstofnun hefurlagt fram til kynningardrög að stjórnunar- ogverndaráætlun fyrir Gullfoss á árunum 2016 til 2025. Með áætluninni er leitast við að vernda Gullfoss og nærumhverfi hans og stuðla að því að verndargildi svæð- isins haldist óskert. Gullfoss og næsta nágrenni hans voru friðlýst sem friðland árið 1979. Lífríki, jarðminjar og gróður svæðisins njóta einnig friðunar. Mikilvægt þykir að vernda Gullfoss svo bæði vatnasvið hans og nær- umhverfi haldist óskert. „Gildi frið- landsins er fyrst og fremst fólgið í landslagi þess, mikilfenglegum jarð- minjum og blómskrúðugu gróð- urfari,“ segir í drögunum. Svæðið hefur einnig menning- arsögulegt gildi. Deilt var um foss- inn í tæpa öld vegna áforma um sölu og virkjun hans. Barist var fyrir verndun fossins áratugum saman á síðustu öld. Barátta Sigríðar Tóm- asdóttur frá Brattholti fyrir verndun fossins er vel þekkt. Saga Gullfoss er því mikilvægur hluti af sögu nátt- úruverndar á Íslandi. Fossinn er vitnisburður um hvers virði nátt- úruvernd getur verið. Gullfoss þykir vera eitt af höfuðdjásnum Íslands. Fossinn er einn fjölsóttasti áfanga- staður ferðamanna hér á landi og hefur hann því umtalsvert efnahags- legt gildi jafnt á landsvísu sem og í heimabyggð. Aðgerðaáætlunin Í drögunum að stjórnunar- og verndaráætluninni er meðal annars lögð fram aðgerðaáætlun til fimm ára yfir það sem þykir brýnast að gera svo að verndargildi Gullfoss haldist. Hún er gerð með fyrirvara um að fjármagn fáist til fram- kvæmda hverju sinni. Meta á árang- ur verndarráðstafana og endurskoða og uppfæra aðgerðaáætlunina að fimm árum liðnum. Taldar eru upp þær aðgerðir sem brýnast þykir að grípa til svo verndargildi Gullfoss haldist. Áætl- unin nær til atriða sem sinna þarf árlega og það sem á að gera á ár- unum allt fram til ársins 2021. Meðal þess sem gera þarf ár- lega er að vakta grjóthrunshættu og skipuleggja öryggisaðgerðir áður en stígur sem liggur að fossbrún er opnaður að vori. Vakta á ágengar gróðurteg- undir við jaðar friðlandsins en þær eiga ekki að ná fótfestu innan þess. Þá á að upplýsa ferðaþjónustuna um fyrirhugaðar framkvæmdir. Yfirfara á öryggisáætlun Umhverfisstofn- unar fyrir svæðið á hverju ári. Öryggismál eru mikilvægur þáttur í framtíðarskipulagi svæð- isins, enda er þar að finna þverhnípi, kletta og gljúfur. Á svæðinu er bæði hraphætta og hætta á grjóthruni. Öryggislínur eru við alla göngustíga til að halda fólki frá bjargbrúnum. Þess eru fjölmörg dæmi að fólk virði þær að vettugi. Á þessu ári á m.a. að þarfa- greina og kostnaðarmeta landvörslu og aðstöðu henni tengda fyrir svæð- ið. Gera á nýjan stiga sem tengir neðra og efra svæði. Einnig á að gera undirlag fyrir endurgerðan út- sýnispall á efra svæði. Gera á úttekt á öryggislínum og setja upp hrap- hættuskilti þar sem fólk leitar helst út fyrir öryggislínur. Sett verða skilti þar sem fólki er bönnuð næt- urgisting innan friðlandsins og því beint á næsta tjaldsvæði. Óskað verður eftir því að Náttúru- fræðistofnun vinni vöktunaráætlun. Vernda þarf Gullfoss og nærumhverfi hans Morgunblaðið/Eggert Gullfoss Drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir svæðið hafa verið lögð fram. Þar eru skráð mörg verkefni sem vinna á á næstu árum. Gullfoss er sprungufoss í Hvítá í Bláskógabyggð í Ár- nessýslu. Áin kemur úr Hvítárvatni við rætur Langjök- uls. Hvítá sameinast fleiri ám þar sem hún rennur ofan af hálendinu og niður í byggð. Hvítá er með stærstu ám á Íslandi. Meðalrennsli hennar er 109 m3/s og getur farið í 2.000 m3/s í flóðum. Fossinn steypist fram af stöllum sem myndast hafa í farvegi árinnar. Hann er í 190 metra hæð yfir sjávar- máli og er á mörkum byggðar í uppsveitum Árnes- sýslu. Fossinn fellur í þremur þrepum alls 32 metra niður í Gullfossgljúfur. Það er um 2,5 kílómetra langt og um 70 metra djúpt. Berglög og setlög frá síðustu ísöld sjást greinilega í gljúfrunum. Dýrmæt náttúruperla GULLFOSS Í HVÍTÁ Sigríður Tómasdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.