Morgunblaðið - 21.07.2016, Qupperneq 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016
✝ Margrét Kat-rín Valdimars-
dóttir fæddist á
Völlum í Ytri-
Njarðvík 6. júní
1926. Hún lést á
Hrafnistu í Hafn-
arfirði 10. júlí
2016.
Foreldrar henn-
ar voru Björn
Valdimar Björns-
son, útgerðar-
maður í Keflavík, f. 31.12.
1893, d. 28.8. 1972, og Sigríður
Árnadóttir húsfreyja, f. 27.7.
1892, d. 14.6. 1977. Systkini
Margrétar Katrínar voru Árni
Snæbjörn, f. 6.12. 1923, d. 16.5.
2004, Gunnar Hörður, f. 20.1.
1925, d. 16.8. 1998, og Birna
Fjóla, f. 19.3. 1932, d. 19.8.
2006.
Margrét Katrín giftist 15.5.
1948 Guðjóni Steingrímssyni
hæstaréttarlögmanni, f. 5.2.
1924, d. 26.6. 1988. Foreldrar
hans voru Steingrímur Torfa-
son kaupmaður, f. 16.10. 1882,
og Ólafía Hallgrímsdóttir hús-
freyja, f. 13.9. 1885.
Börn Margrétar og Guðjóns
börn eru Margrét Júlíana, f.
1973, Snæbjörn, f. 1977,
kvæntur Katrínu Helgu
Kristinsdóttur, f. 1977, Þór-
hallur, f. 1978, og Heiðrún
Björt, f. 1987, í sambúð með
Hrafnkeli Orra Sigurðssyni, f.
1988. Fyrir átti Sigurður dótt-
urina Sigríði Ingu, f. 1971, gift
Jóni Áka Leifssyni, f. 1966. 4)
Ólafía Sigríður ferðamálafræð-
ingur, f. 6.11. 1959, gift Jóni
Auðuni Jónssyni, f. 15.6. 1957.
Börn þeirra eru Jón Ragnar, f.
1983, í sambúð með Kristínu
Maríu Tómasdóttur, f. 1983,
Guðjón Geir, f. 1991, kvæntur
Elísabetu Sif Símonardóttur, f.
1991, og Þorgerður Edda, f.
1993. Barnabarnabörnin eru
orðin sautján.
Margrét Katrín ólst upp í
Ytri-Njarðvík og Keflavík. Hún
stundaði hefðbundið barna-
skólanám og fór síðan í Hér-
aðsskólann á Laugarvatni og í
Húsmæðraskóla Reykjavíkur.
Efir að hún gifti sig fluttist
hún til Hafnarfjarðar og bjó
þar allan sinn búskap. Hún
sinnti húsmæðrastörfum en
eftir að börnin fóru að heiman
sinnti hún ýmsum tómstundum
og má þar helst nefna postu-
línsmálningu og vefnað.
Útför Margrétar Katrínar
verður gerð frá Hafnarfjarðar-
kirkju í dag, 21. júlí 2016, og
hefst athöfnin klukkan 13.
eru: 1) Stein-
grímur prent-
smiðjustjóri, f.
27.7. 1948, kvænt-
ur Sigríði Ingu
Svavarsdóttur, f.
14.11. 1952. Dætur
þeirra eru Kristín
Lind, f. 1975, gift
Kristjáni Ragnari
Þorsteinssyni, f.
1974, og Hrund, f.
1981. Fyrir átti
Steingrímur soninn Guðjón, f.
1967, með Áslaugu Bjarna-
dóttur, f. 1948. 2) Valdís Birna
talmeinafræðingur, f. 12.6.
1950, gift Einari Kristjáni
Jónssyni, f. 19.10. 1950. Börn
þeirra eru Katrín Ósk, f. 1974,
í sambúð með Kristjáni Erni
Kristjánssyni, f. 1978, Birgir
Örn, f. 1977, kvæntur Guð-
björgu Öldu Þorvaldsdóttur, f.
1977, Hilmir Þór, f. 1979, Lilja
Sif, f. 1986, hún er gift Stefáni
Þórssyni, f. 1984, og Guðrún
Alma, f. 1988, í sambúð með
Elfari Friðrikssyni, f. 1986. 3)
Þórdís hjúkrunarfræðingur, f.
20.10. 1951, gift Sigurði Björg-
vinssyni, f. 27.11. 1950. Þeirra
Á sunnudaginn, 10. júlí,
kvaddi móðir mín þennan heim.
Ég á mjög góðar minningar um
hana og var hún mér alla tíð
mjög góð móðir og vinkona. Hún
var mjög góður uppalandi,
ströng en hæfilega undanláts-
söm, og er ég henni mjög þakk-
lát fyrir það veganesti sem hún
bjó mér. Hún var góð fyrirmynd
og góður kennari. Ég þakka
henni fyrir allar stundirnar sem
hún hefur hlustað á mig og hvatt
mig í námi og starfi. Ég þakka
henni líka fyrir að passa börnin
mín og að hún tók alltaf á móti
mér með alla fjölskylduna, hvort
sem ég var að koma suður eða
var á milli húsa í flutningum.
Alltaf var mér tekið opnum örm-
um og alla tíð var hún mér svo
góð. Hún hefur virkilega verið
mér stoð og stytta í lífinu.
Mamma talaði um að hún vildi
ekki að sín væri minnst ein-
göngu sem góðrar húsmóður
sem var dugleg að baka. En hún
var húsmóðir svo sannarlega.
Hún gerðist húsmóðir þegar hún
gifti sig og eignaðist börn. Hún
var byrjuð í iðnskóla og byrjuð
að læra hárgreiðslu en hætti því.
Hún var húsmæðraskólagengin
og vitnaði oft í það sem hún
hafði lært þar. Hún lagði mikið
upp úr því að við lærðum fallega
borðsiði og værum kurteis og
kæmum vel fyrir. Hún var dug-
leg og kraftmikil, saumaði og
prjónaði og málaði húsið, hann-
aði garðinn og gróðursetti. Svo
var hún líka alltaf heima. Ég
minnist þess að ef það kom fyrir
að hún var ekki heima þegar ég
eða systkini mín komum heim,
þá var hringt í allar vinkonur
hennar og ættingja til að finna
hana.
Eftir að mamma útskrifaðist
úr húsmæðraskólanum réð hún
sig sem kokkur á síldarbát og
var vel af henni látið. Kosturinn
var ódýrari og maturinn betri en
á hinum bátunum. Hún hefur
snemma látið jafnréttismál sig
varða því hún hvatti mig til að
fara í kennaranám vegna þess að
í þeirri stétt hafa bæði kynin
sömu laun. Hún tók bílpróf þeg-
ar það kom til tals að kaupa bíl
því hún vildi keyra sjálf. Mamma
fór með okkur í ótal útilegur og
ferðalög og ef pabbi var upptek-
inn þá lét hún það ekki stoppa
sig heldur fór bara ein með okk-
ur börnin á Laugarvatn þar sem
við, í minningunni, dvöldum oft í
tjaldi lengi í senn, ýmist í sól og
blíðu eða í dembandi rigningu.
Mamma var mikill fagurkeri
og mikill listunnandi, bæði varð-
andi tónlist og myndlist. Hún
naut þess að hafa fallega hluti í
kringum sig og átti mjög fallegt
heimili. Þegar hún bauð í mat
eða kaffi, þá var alltaf dekkað
borð með fallegum dúk, postulíni
og kristal. Veggir stofunnar
voru þaktir fallegum málverkum
og svo hlustaði hún á klassíska
tónlist og óperusöng. Hún dýrk-
aði barnabörnin og barnabarna-
börnin og var dugleg að hvetja
þau til náms. Hún var óþreyt-
andi að sækja ýmsa listviðburði
og sýningar þar sem þau komu
fram.
Mamma var alla tíð mjög
heilsuhraust og fór keyrandi
allra sinna ferða. Þegar hún
veiktist fyrir fjórum árum var
hún að vinna í því að endurnýja
ökuskírteinið sitt 86 ára gömul.
Það voru því mikil viðbrigði að
fá hana ekki lengur í heimsókn í
tíma og ótíma og sakna ég þess
mjög.
Takk fyrir allt, elsku mamma,
hvíl þú í guðs friði.
Valdís B. Guðjónsdóttir.
Margrét Katrín
Valdimarsdóttir
✝ Bergljót fædd-ist 3. maí 1922
í húsi sem var
nefnt Jerúsalem á
Akureyri. Hún lést
í Sunnuhlíð, Kópa-
vogi, 23. júní 2016.
Foreldrar henn-
ar voru heiðurs-
hjónin Kristín Sig-
urðardóttir og
Jakob Karlsson,
bóndi í Lundi við
Eyjafjörð. Bergljót var næst-
yngst af fjórum systrum og ein-
um bróður. Elst var uppeldis-
systirin Margrét Jónsdóttir.
Systkinin hétu Guðný, þá Sig-
urður, sem lést níu ára gamall,
og Kristbjörg, sem lést aðeins
fjögurra ára, næst var Bergljót,
og svo Kristbjörg yngri, sem
fæddist tveimur árum eftir að
nafna hennar lést. Bergljót var
foreldrum sínum stoð og stytta
í veikindum þeirra, hélt þeim
heimili og sá um þau síðustu ár-
in.
Árið 1959 breyttust hagir
Bergljótar er hún
giftist Kristni Jóni
Jónssyni frá Siglu-
firði. Hann vann á
Skipaafgreiðslu
Jakobs Karlssonar
á Akureyri. Hún
starfaði þar hjá
föður sínum. Þau
eignuðust tvö kjör-
börn: 1) Jakob, f.
17. desember 1962.
Hann er kvæntur
Gail Ann Hanson, f. 1. febrúar
1942, hún á þrjú börn og sjö
barnabörn. 2) Sigríður, f. 4.
apríl 1966. Hún er í sambúð
með Geo Sternsdorf. Sigríður á
dótturina Berglindi Ein-
arsdóttur.
Kristinn á einn son frá fyrra
hjónabandi: Carsten Jón, fædd-
ur 25. nóvember 1952. Hann er
kvæntur Bryndísi Bragadóttur,
f. 17. maí 1960. Þau eiga dæt-
urnar Elínu og Guðrúnu.
Útför Bergljótar fór fram í
kyrrþey þann 1. júlí 2016 að
ósk hinnar látnu.
Móðursystir mín, Bergljót Jak-
obsdóttir frá Akureyri, hefur
kvatt þennan heim á 95. aldursári.
Hún er síðust af systrunum frá
Lundi á Akureyri sem kveður.
Undanfarin ár hefur hún dvalið á
Sunnuhlíð í Kópavogi.
Með Bergljótu er, í okkar
huga, horfinn ekta Akureyringur
í bestu merkingu þess orðs. Hún
var næst- yngst fjögurra systra
sem upp komust af börnum Krist-
ínar Sigurðardóttur og Jakobs
Karlssonar, bónda og athafna-
manns á Akureyri. Þau hjón
byggðu stórbýlið Lund ofan við
Akureyri. Túnin í Lundi hafa nú
öll verið tekin undir byggingar og
götur, þar sem heitir Lundar-
hverfi.
Þær systur báru uppeldi sínu
gott vitni, þær nutu velsældar og
góðs atlætis. Yngsta systirin,
Kristbjörg, bjó í Hafnarfirði,
Bergljót og Guðný á Akureyri en
elst var móðir mín, Margrét, sem
bjó á Blönduósi og var reyndar
fóstursystir þeirra.
Lítill drengur á Blönduósi
minnist margra ferða norður á
Akureyri í heimsóknir til ættingj-
anna. Í huga drengsins eru þessir
dagar sem ljómandi sólskins-
stundir. Varla mun nokkurt ár
hafa liðið án gagnkvæmra heim-
sókna á meðan allar systur lifðu.
Síðan þótti það alveg sjálfsagt að
við þrjú systkinin á Blönduósi
dveldum nyrðra hjá þeim við
skólagöngu okkar. Systir mín var
hjá Bergljótu og við bræðurnir
hjá Guðnýju. Þegar sonur okkar
hjóna fór síðan til mennta, þá var
enn sjálfsagt að hann dveldi hjá
Bergljótu, ömmusystur sinni, öll
menntaskólaárin.
Það varð hlutskipti Bergljótar
að halda heimili og annast for-
eldra sína þegar þau höfðu misst
heilsuna og líklega er það ástæðan
fyrir því hversu seint hún stofnaði
eigin fjölskyldu, en maður hennar,
Kristinn J. Jónsson frá Siglufirði,
kom inn í líf hennar um 1960. Börn
þeirra eru tvö, búa bæði erlendis,
dótturdóttirin Berglind hefur
dvalið á Íslandi nú um skeið,
ömmu sinni og afa til mikillar
gleði.
Bergljót og Kristinn störfuðu
saman að rekstri skipaafgreiðslu
Eimskipa á Akureyri, fyrirtæki
sem hafði verið rekið innan stór-
fjölskyldunnar, alveg frá stofnun
Eimskipafélags Íslands. Síðan
gerðist Kristinn starfsmaður hjá
embætti sýslumannsins á Akur-
eyri. Við starfslok fluttu þau suður
í Kópavog.
Bergljót var margfróð, ljóðelsk
og tónviss. Hún spilaði á píanó og
kenndi ungum ættingjum og vin-
um píanóleik. Hún kunni ógrynni
ljóða og fór stundum með ljóð og
vísur fyrir okkur síðustu árin.
Að leiðarlokum er mér ofarlega
í huga hve samskipti okkar við
Bergljótu eru ljómuð miklu sól-
skini, það rennur upp fyrir mér, að
símtöl okkar á milli fóru oftast
fram þegar veður var gott og sól-
ríkt og sömuleiðis kom ég frekar
við hjá henni í Sunnuhlíð þegar
sólin skein glatt. Allt þetta sólskin
set ég í samband við bernskuna og
samveruna með fjölskyldum
systranna frá Lundi. Það var allt-
af sól og gott veður á Akureyri á
þeim góðu árum.
Við vottum fjölskyldunni inni-
lega samúð okkar og heiðrum
minningu hennar með erindi úr
ljóði eftir Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi.
Hverju sem ár
og ókomnir dagar
að mér víkja,
er ekkert betra
en eiga vini
sem aldrei svíkja.
Blessuð sé minning Bergljótar
Jakobsdóttur.
Sigurður og Anna Rósa.
Meira: mbl.i/minningar
Bergljótu kynntist ég fyrst fyr-
ir um það bil sjö árum síðan, þegar
maðurinn minn, Jón Bjarman,
varð að flytja í Sunnuhlíð vegna
veikinda sinna. Þá var Bergljót
þegar komin þangað.
Eftir andlát Jóns í mars 2011
hafði ég einhverja sterka þörf fyr-
ir að halda áfram að heimsækja
deildina hans, bæði til að hitta
starfsfólkið sem annaðist hann og
eins til að hitta þá vistmenn, sem
ég hafði kynnst. Bergljót varð ein
þeirra sem ég heimsótti reglulega.
Hún var einstaklega gefandi og
yndisleg manneskja, vel gefin og
fróð, víðsýn og skemmtileg.
Meðan heilsa hennar leyfði las
hún mikið af bókum með hjálp
tölvskjás. Hún hafði mestan
áhuga á vel skrifuðum skáldsög-
um eða þjóðlegum fróðleik. Það
var gaman að spjalla við hana um
efni þeirra bóka sem hún var að
lesa hverju sinni.
Líkamlegri heilsu hennar hrak-
aði smám saman en andlegu heil-
brigði hélt hún til ævilokaloka.
Það er þyngra en tárum taki
þegar röddin er horfin svo ekki er
lengur hægt að tjá hugsanir sínar
og þarfir, en það varð hlutskipti
Bergljótar.
Ég er óendanlega þakklát fyrir
vináttu hennar, sú vinátta gaf mér
mikið.
Ég sendi ástvinum hennar mín-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Jóhanna (Hanna) Pálsdóttir.
Bergljót
Jakobsdóttir
Elskuleg móðir mín, amma okkar og
langamma,
RÓSA GUNNARSDÓTTIR,
Furugerði 1, áður Álftamýri 32,
lést 15. júlí. Útför hennar fer fram
þriðjudaginn 26. júlí klukkan 13 frá
Fossvogskirkju. Þeir, sem vilja minnast
hennar, láti líknarfélög njóta þess.
.
Gígja Árnadóttir,
Gunnar Hjartarson,
Rósa Hjartardóttir,
Björg Hjartardóttir
og langömmubörnin.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KONRÁÐ PÉTUR JÓNSSON
bóndi, Böðvarshólum,
verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju
föstudaginn 22. júlí, klukkan 14.
.
Jónína Ragna Sigurbjartsdóttir,
Jón Frímann,
Þorbjörg Helga, Hákon Bjarki,
Ingveldur Ása, Jón Benedikts,
Daníel Óli
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
GUÐFINNA GISSURARDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum
föstudaginn 15. júlí. Útför hennar fer fram
frá Fossvogskirkju í Reykjavík, mánudaginn
25. júlí, klukkan 15.
.
Jón Arnar Árnason,
Halla Margrét Árnadóttir,
Paolo Di Vita,
Guðfinna Hlín Kristjónsdóttir,
Ísold Jónsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
JÓHANNES TÓMASSON,
Fífilgötu 8, Vestmannaeyjum,
lést mánudaginn 18. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum, laugardaginn 23. júlí klukkan 11.
.
Guðfinna Stefánsdóttir,
Margrét R. Jóhannesdóttir, Gylfi Tryggvason,
Erna Jóhannesdóttir, Egill Egilsson,
Tómas Jóhannesson, Fanney B. Ásbjörnsdóttir,
Stefán H. Jóhannesson, Halldóra Hermannsdóttir,
Ingunn Lísa Jóhannesdóttir, Sveinbjörn Guðmundsson,
Iðunn Dísa Jóhannesdóttir, Ágúst Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓHANNES ÞÓRÐARSON,
fv. yfirlögregluþjónn,
Hverfisgötu 31, Siglufirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn
5. júlí. Útförin verður gerð frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 23. júlí klukkan 14.
.
Soffía G. Jóhannesdóttir, Ólafur Kristinn Ólafs,
Ólafía M. Guðmundsdóttir,
Halldóra Sigurlaug Ólafs, Hobie Lars Hansen,
Magnea Jónína Ólafs, Björgólfur Hideaki Takefusa,
Jóhannes Már Jónsson, Halldóra Í. Sigurgeirsdóttir,
Kjartan Orri Jónsson, Sigrún Ásgeirsdóttir,
Margrét Finney Jónsdóttir,
Eydís Ósk Jóhannesdóttir, Anna Lilja Kjartansdóttir,
Jasmín Ósk Takefusa.