Morgunblaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er gaman þegar vel gengur og þú átt að njóta meðbyrsins því enginn hefur fært þér hann nema þú sjálf/ur. Hvernig væri að halda upp á daginn með því að bjóða völdum vinum til fagnaðar? 20. apríl - 20. maí  Naut Það finnst ekki betri dagur til að ganga frá samningum. Treystu innsæi þínu og láttu ekki aðra draga úr þér kjarkinn. Hálfnað er verk, þá hafið er. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Smám saman tekst þér að púsla öllu saman og það reynist ekkert erfitt. Farðu í naflaskoðun og ákveddu svo næstu skref. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þótt friður sé æskilegur getur hann stundum verið of dýru verði keyptur. Farðu varlega, gættu vel að smáatriðunum, því ekki er allt gull sem glóir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú vilt láta ganga á eftir þér í vissu máli. Ekki fara samt yfir strikið. Þér verður boðið til veislu fljótlega. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Friðsælt umhverfi og þægilegar að- stæður verða fljótlega að engu í návist þíns líflega félagsskapar. Gættu þess að allir á heimilinu fái að njóta sín. 23. sept. - 22. okt.  Vog Láttu ekki óþolinmæðina ná tökum á þér þótt það taki aðra einhvern tíma að sjá kostina við málstað þinn. Skoðaðu málið frá öllum hliðum og varastu að draga taum ann- ars aðilans umfram hinn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að venja þig á að tala skýrt og skorinort svo þeir sem hlusta á þig velkist ekki í vafa um fyrirætlanir þínar. Róm- antísk ferð er í kortunum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vertu óhræddur við að segja hug þinn því þá munu aðrir taka mark á þér. Ein- hver pirringur er í fólki en hann stoppar ekki lengi við. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú stendur frammi fyrir verkefni sem krefst allrar þinnar atorku og útsjónar- semi. Ys og þys lífsins gætu rænt þig því eina sem þú átt – hina líðandi stund. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Farðu þér hægt í því að fitja upp á nýjum hlutum í dag og gakktu heldur frá öllum lausum endum. Slakaðu á og trúðu því að framtíðin færi þér hamingju. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér hættir til neikvæðni gagnvart maka þínum og öðrum í fjölskyldunni í dag. Annríki síðustu daga spilar þar inn í. Þér veitir ekki af fríi. ÍVísnahorni á þriðjudag var sagtfrá því að þeir hefðu skipst á vís- um Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjálmar Jónsson. Ég kenni það klaufaskap mínum á tölvur að vísa Jóns Steinars féll niður. Hjálmar hafði boðið Jóni Steinari á golfvöll- inn einn morguninn en hann komst ekki. Veður voru válynd og um há- degisbil sendi Hjálmar þessa vísu: Ekki tel ég yrði þar eitthvert tjón. Hellirigndi hvort sem var, herra Jón. Jón Steinar svaraði um hæl: Votan boltann varla hittir. Völlinn skálmar. Sér í knöttinn samt hvar glittir séra Hjálmar. Hjálmar Freysteinsson hefur uppi „varnaðarorð“ á Boðnarmiði vegna nýliðinna atburða: Aðspurður hefði ég hiklaust sagt; hér þyrfti úr að draga. Ofveiði gæti eyðilagt ísbjarnastofninn á Skaga. Málið horfði þannig við Sigurjónu Björgvinsdóttur: Norður á Skaga við nyrsta haf með naumindum landi bar að skyttan engin grið henni gaf hann gaf ’enni skot í hjartastað. En úti á jaka er ef til vill einn einmana húnn og svangur sem bíður mömmu svo mæddur og einn. Mikið er dagurinn langur. Jakinn bráðnar, er bráðum ei neinn barátta er lífsins gangur. Ármann Þorgrímsson talar um að „drepa saklaust dýr …“ og yrkir: Núna spara ætla orð en illa dulið hneykslan get ísbjörn drepa eg tel morð en ágætt finnst mér lambaket. Ingólfur Ómar heilsaði leirverjum í sólskinsskapi fallegan sum- armorgun fyrir viku: – „Það virðist sem ekkert lát sé á veðurblíðuni. Og í tilefni af því orti ég þessar vísur. Angar fjóla fagurblá fegrar hól og rinda. Blessuð sólin sindrar kná sveipar ból og tinda. Foldarprýði fáguð öll frjóan huga laðar. Roða gulli reyfast fjöll röðull landið baðar.“ Halldór Blöndal (halldorblondal@simnet.is) Halldór Blöndal Vísnahorn Af ofveiði í sól og blíðu Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir HORFÐU Á MIG HORFÐU Á MIG HORFÐU Á MIG HORFÐU Á MIG HORFÐU Á MIG HORFÐU Á MIG HVAÐ ER ÞAÐ EINA SEM ÉG HEF VERIÐ AÐ BIÐJA ÞIG UM Í MARGAR VIKUR?! GERA VIÐ ÞAKIÐ?UMM… „ÞETTA ER Í FYRSTA SINN SEM ÉG SÉ MÓÐUR ÞÍNA FARA FRÁ BORÐINU ÁN ÞESS AÐ HAFA FENGIÐ SÉR ÁBÓT.“ „AFSAKAÐU HVAÐ ÉG ER SEINN. ÉG FÉKK SMÁ TÍMA AÐ LÁNI.“ …einhver sem breytir þér í bráðið smjör Víkverji finnur fyrir ögn af sam-viskubiti eftir lestur íþrótta- blaðs gærdagsins. Honum finnst hann nefnilega bera þunga ábyrgð á herðum sér. Þannig er mál með vexti, að fyrir tveimur sumrum eða svo fengu Víkverji og frú sér stökk- mús, sem hlaut nafnið Óskar Örn. Nafnið var sérstaklega valið til heið- urs uppáhaldsknattspyrnumanni Víkverjahjónanna, en sá er líklega eina ástæðan fyrir því að frú Vík- verji samþykkti að koma með manni sínum á KR-völlinn í gegnum súrt og sætt. x x x Líkt og fyrirmyndin er Óskar Örnafskaplega myndarlegur, frábær í sínu fagi og öskufljótur. Í hvert sinn sem Óskar Örn hinn mennski skorar eða fær M í Mogganum fær Óskar Örn hinn „stökkmýski“ auka- skammt af sólblómafræjum. Nafnið var hugsað þeim báðum til heiðurs, og stökkmúsin hefur svo sannarlega fengið mikið af sólblómafræjunum á hverju sumri, þökk sé leikmanni nr. 22 í KR. x x x Víkverja brá því nokkuð í brúnþegar hann sá fyrirsögnina: „Ekki tilviljun að hann er kallaður stökkmúsin,“ þar sem verið var að heiðra þennan tiltekna knattspyrnu- mann. Það er svo sannarlega engin tilviljun, Víkverji ber þar óbeina ábyrgð. Einhvern veginn hafði nafn- giftin á gæludýrinu hans lekið til samstarfsmanns Víkverja á íþrótta- deildinni og þaðan yfir í textalýsingu og alla leið til liðsfélaganna í KR. x x x Víkverji vonar innilega að ÓskarÖrn sé ekki of ósáttur með það að vera kallaður „stökkmúsin.“ Nafni hans er raunar einn skemmti- legasti karakter sem Víkverji hefur kynnst á lífsleiðinni. Þá tekur Vík- verji eftir að nafnið dúkkar aðallega upp þegar leikmaðurinn knái skorar með skalla sem er merkilega oft mið- að við hæð hans. Víkverja skilst að sjálfur vilji Óskar Örn kenna sig við „Air Canada“ þegar hann hamrar boltana í netið með enninu enda hafi hann fullkomnað þá list þar. Vík- verja finnst það fínt. víkverji@mbl.is Víkverji Sá, sem er góðgjarn, verður blessaður, því að hann gefur hinum fátæka af brauði sínu. (Orðskv. 22:9) mbl.is Kringlunni | Sími 588 0640 | casa.is Dásamlegir inni- og útiskór úr ull á alla fjölskylduna 40% afsláttur af Glerups skóm í CASA Kringlunni í júlí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.