Morgunblaðið - 21.07.2016, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Umhverfis- og skipulagsráð
Reykjavíkur hafnaði nýlega beiðni
um niðurrif Thorvaldsensstrætis 6,
viðbyggingar sunnan Landssíma-
hússins svokallaða, en húsinu á að
breyta í hótel, verslanir og veitinga-
hús.
Davíð Þorláksson, framkvæmda-
stjóri Lindarvatns ehf., sem er eig-
andi Landssímareitsins, segir fullt
tilefni fyrir borgina að endurskoða
þessa ákvörðun. Byggingin sé
óhentug fyrir þá
starfsemi sem
þar eigi að koma
og auk þess hafi
athuganir verk-
fræðinga leitt í
ljós að byggingin
standist ekki
kröfur hvað varð-
ar jarð-
skjálftaálag. Þá
séu gólfplötur í
húsinu svo þunn-
ar að þær uppfylli ekki núgildandi
byggingarreglugerðir.
„Við erum að skoða stöðuna og
vonum að hægt verði að finna lausn
á þessu máli,“ segir Davíð.
Mátti rífa framhliðina
Þetta mál er sérstakt að því leyti
að fyrir liggur leyfi til að byggja
hús framan við viðbygginguna og til
hliðar við hana. Í rauninni má ekki
rífa húsið sjálft heldur má rífa
framhlið þess svo hægt verði að
byggja við það. Viðbyggingin, sem
tekin var í notkun 1967, mun því
hverfa inn í nýjar viðbyggingar sem
deiliskipulag gerir ráð fyrir.
„Við áttum okkur ekki alveg á
rökunum sem liggja að baki þessari
ákvörðun borgarinnar. Við sjáum
ekki hvaða virði er í að vernda
þetta hús,“ segir Davíð.
Hann segir að viðbyggingin frá
1967 hafi þann annmarka að gólf-
hæð sé ekki sú sama og í Lands-
símahúsinu sjálfu. Deiliskipulagið
geri ráð fyrir að gólfhæð sé sú
sama í húsunum. Ekki sé hægt að
uppfylla það skilyrði nema húsið
hverfi.
„Þegar gengið er úr Landssíma-
húsinu sjálfu yfir í viðbygginguna
þarf að ganga upp og niður stiga,“
segir Davíð. Þar sem gólfflöturinn
sé ekki í sömu hæð verði umferð
eldra fólks og fatlaðra um húsið
mjög erfið. Einnig muni þetta
skapa vandræði fyrir starfsmenn
væntanlegs hótels, t.d. þá sem ann-
ast þrif og verða að fara um hótelið
með vagna og þvíumlíkt.
„Á sínum tíma hefur hugsunin
væntanlega verið sú að þetta væru
tvö aðskilin hús þótt þau væru sam-
byggð. Það hefði engum dottið í
hug að byggja húsið svona ef það
hefði átt að nýta þau sameiginlega,“
segir Davíð.
Hann segir að forráðamönnum
Lindarvatns þyki ekki sérstaklega
mikil prýði af Landssímareitnum
eins og hann er í dag. „Eins og
teikningarnar sýna teljum við að
Austurvöllur muni fá annan og
miklu betri svip með nýjum bygg-
ingum. Við ætlum að kveikja nýtt
líf á þessum reit, ekki bara með
hótelinu heldur með veitingastöð-
um, verslunum, íbúðum og end-
urbættum Nasa. Það er von okkar
að borgarbúar geti verið stoltir af
Landssímareitnum þegar fram-
kvæmdunum lýkur,“ segir Davíð.
Borgin endurskoði ákvörðun
Eigendur Landssímareitsins eru óánægðir með að fá ekki að rífa Thorvaldsensstræti 6 Segja
að byggingin sé óhentug og standist hvorki byggingarreglugerðir né kröfur um jarðskjálftaálag
Tölvuteikning/THG arkitektar
Landssímareiturinn Þannig mun nýja hótelið líta út að loknum framkvæmdum, séð frá Alþingishúsinu. Þarna verða einnig veitingahús og verslanir.
Morgunblaðið/Eggert
Thorvaldsensstræti 6 Ekki fékkst leyfi til þess að rífa þetta hús.
Davíð
Þorláksson
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016
Vöruhús veitingamannsins
allt á einum stað
Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið virka daga kl. 8.30-16.30
Hrund Einarsdóttir bygg-
ingaverkfræðingur gerði könnun
á Thorvaldsensstræti 6.
Í minnisblaði sem hún ritaði
og dagsett er 20. júní sl. kemur
fram að bygging og burðarvirki
voru hönnuð á sínum tíma fyrir
mjög sértæka iðnaðarstarfsemi
á 2.-4. hæð en með móttöku- og
afgreiðslurými á 1. hæð. Hæðir
2-4 séu mjög dimmar enda
hannaðar sem vélasalur.
„Gróflega má lýsa burðarvirki
byggingarinnar sem þriggja
hæða steyptum ferköntuðum
tanki á súlum á 1. hæð. Gagn-
vart jarðskjálfta er slík uppbygg-
ing afar óheppileg, s.s. þungar
efri hæðir með léttri neðstu
hæð. Ég gerði grófa jarð-
skjálftagreiningu á núvverandi
byggingu og í ljós kom að núver-
andi bygging uppfyllir ekki nú-
gildandi staðla gagnvart jarð-
skjálftaálagi og mun alls ekki
uppfylla þá ef byggðar verða
tvær viðbótarhæðir ofan á nú-
verandi byggingu eins og heimilt
er samkvæmt deiliskipulagi,“
segir m.a. í minnisblaði Hrundar.
Hún segir að ekki verði hægt
að fjarlægja veggi í kringum
vélasal til að opna upp rýmið
nema allar plötur verði einnig
fjarlægðar.
„Ef veggir í vélasal verða fjar-
lægðir, auk allra platna, verður
ekkert eftir af byggingunni nema
örfáar súlur sem hafa engan til-
gang lengur,“ segir Hrund í
minnisblaðinu.
Hún segir það því sína tillögu
að öll steypuvirki verði fjarlægð
að fullu, þannig að hægt verði
að hanna nýja byggingu sam-
kvæmt núgildandi stöðlum.
Byggingin þolir ekki tvær við-
bótarhæðir eins og heimilt er
KÖNNUN BYGGINGAVERKFRÆÐINGS
Fyrstu einstaklingsþrautunum á heimsleikunum í
crossfit í Los Angeles lauk í gærkvöldi, en fimm
fulltrúar Íslands keppa í þeim flokki. Annie Mist Þór-
isdóttir er efst í kvennaflokki eftir daginn, keppt hafði
verið í þremur þrautum. Ragnheiður Sara Sig-
urmundsdóttir kemur þar á eftir í 5. sæti, Katrín
Tanja Davíðsdóttir er í því ellefta og Þuríður Erla
Helgadóttir í 22. sæti. Í karlaflokki er Björgvin Karl
Guðmundsson í 7. sæti, en hann náði sér ekki á strik í
réttstöðulyftunni.
Þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi var
keppni lokið í þremur þrautum; 7 kílómetra hlaupi,
réttstöðulyftu og þriðju þrautinni þar sem keppendur
þurftu að gera æfingar með þungum bolta. Áfram var
keppt í liðakeppni í nótt.
Hilmar Þór Harðarson átti góðan dag, en hann
keppir í flokki 55-59 ára. Hann er í 11. sæti eftir þraut
gærdagsins sem sneri að því að hlaupa um áhorf-
endastúku og gera svokallað „burpees“-kassahopp, en
þar verða læri og brjóstkassi keppenda að snerta jörð,
áður en þeir rísa upp og stökkva upp á kassa. Þá er
Haraldur Holgeirsson, sem keppir í unglingaflokki 16-
17 ára, í 7. sæti eftir fimm greinar.
Annie Mist er fyrst
Fyrstu þrautirnar á
heimsleikunum í crossfit
Morgunblaðið/Ómar
Efst Annie Mist Þórisdóttur og öðrum Íslendingum
gekk vel í gær á heimsleikunum í crossfit í Los Angeles.