Morgunblaðið - 21.07.2016, Qupperneq 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016
Nú er nýlega búið
að endurvekja samn-
inginn við bandarísk
stjórnvöld frá 1951
um varnir Íslands.
Athygli vekur að
samningamenn voru
eins og kettir í kring-
um heitan graut, tipl-
andi á tánum, gæt-
andi þess að nefna
alls ekki í samn-
ingnum það sem raunverulega var
samið um. Hugboð mitt er að samið
hafi verið um endurkomu hersins
til landsins.
Byrjað verður á því að end-
urbyggja skýlið fyrir könn-
unarflugvél og svo koma hermenn
til að sjá um vélina. Svo bætist ein
vél í viðbót og svo hermenn í viðbót
og svo með tímanum verður eins
komið fyrir íslenskri þjóð og Fenr-
isúlfi í goðasögunum, þjóðin er
bundin með Gleypni sem bara
herðist enn betur við hverja hreyf-
ingu og í þessu tilfelli með komu
fleiri hermanna.
En þetta hugboð mitt er eins og
önnur hugboð, þau fást ekki stað-
fest fyrr en þau hvolf-
ast yfir mann og eng-
inn fær rönd við reist.
En ef hugboð mitt
reynist rétt þá dettur
mér í hug það sem
gamlir kveða:
„Fátt er svo með
öllu illt að ekki boði
nokkuð gott.“
Fróður sagði mér að
hlustunartæki, vegna
kafbáta, sem Banda-
ríkjamenn lögðu hér í
kringum landið á sín-
um tíma væri svo öflugt að heyra
mætti jafnvel, þegar menn væru
við vinnu á togurunum. Nú er það
augljóst að könnunarvélina á að
nota til að hlusta með græjunum,
sem Bandaríkjamenn lögðu hér.
Kannski gætu Bandaríkjamenn
einnig, ásamt því að hlusta eftir
rússnesku kafbátunum, tekið að sér
gæslu landhelginnar fyrir okkur Ís-
lendinga, þannig að við gætum
haldið áfram að leigja varðskipin
og flugvélar til Miðjarðarhafsins.
Það er jafn nauðsynlegt banda-
rískum stjórnvöldum að viðhalda
Rússagrýlunni, eins og það var
kirkjunni að viðhalda óttanum við
djöfulinn. Nú hefur kirkjan misst
mikið, því óttinn við fjandann er
horfinn og það kemur að því, að
Rússagrýlan hverfi líka. Þessi tvö
dæmi sýna hvernig stjórnvöld og
kirkjan hafa ýtt undir og viðhaldið
ótta almennings við ímyndaða óvini.
Bandarísk stjórnvöld eru varasöm,
eins og öll stjórnvöld og allir
stjórnmálamenn, en verstir eru
þingmennirnir, sem samþykkja
lagafrumvörpin, án þess að lesa
þau. Almenningur allra landa vill
frið, en stjórnvöld kynda oft undir
til að koma sínum málum í höfn og
til að geta selt meira af vopnum.
Bandaríkjamenn og Rússar eru
vinir okkar, en einu sinni sagði
góður maður: Guð verndaðu mig
fyrir vinum mínum en sjálfur get
ég séð um óvini mína.
Guð blessi Ísland.
Hugboð
Eftir Eyþór
Heiðberg
Eyþór Heiðberg
»Nú hefur kirkjan
misst mikið, því
óttinn við fjandann er
horfinn og það kemur
að því, að Rússagrýlan
hverfi líka.
Höfundur er athafnamaður.
Maður að nafni
Pétur Snæbjörnsson
fer mikinn í viðtali við
Morgunblaðið á
laugardaginn var. Til-
efnið er að tveir af
hverjum þremur íbú-
um í Mývatnssveit
hafa skriflega lýst
andstöðu við stóra
hótelbyggingu við
Hótel Reykjahlíð.
Pétur líkir þeim sem skrifuðu undir
við gargandi krakka, sem skilji
ekki þýðingu uppbyggingar í ferða-
þjónustu. Hann segir fólk nánast
hafa verið neytt til að skrifa undir.
Þessar yfirlýsingar eru með ólík-
indum. Ég tók þátt í að safna
undirskriftum og fullyrði að fólk
skrifaði undir af frjálsum vilja og
margir þökkuðu fyrir að fá tæki-
færi til að tjá sig með þeim hætti.
En í ljósi ummæla Péturs verður
skiljanlegt hvers vegna allnokkrir
einstaklingar sögðust alfarið á móti
áformunum en treystu sér samt
ekki til að skrifa undir, m.a. vegna
atvinnuhagsmuna sinna. Forsenda
mótmælanna er staðsetning hinnar
áformuðu byggingar en ekki and-
staða við Icelandair hótel eða fram-
farir í ferðaþjónustu.
En hver er hann þessi Pétur
Snæbjörnsson, sem tjáir sig svo
digurbarkalega um samborgarana í
Morgunblaðinu? Jú, – því er til að
svara að hann er maðurinn sem
seldi Icelandair hótelum Hótel
Reykjahlíð. Hann er líka aðaleig-
andi Hótels Reynihlíðar og hótel-
stjóri þar. Heimildir herma að í
viðskiptunum hafi Icelandair hótel í
kaupbæti eignast forkaupsrétt að
Hótel Reynihlíð. Pétur hefur því
mjög mikilla persónulegra hags-
muna að gæta varðandi framgang
áforma Icelandair hótela við Hótel
Reykjahlíð. Fyrrgreind ummæli
hans í Morgunblaðinu ætti að meta
í því ljósi.
En ekki er allt talið. Pétur Snæ-
björnsson gegnir líka ákveðnu
trúnaðarstarfi fyrir sveitarfélagið.
Hann situr í skipulagsnefnd, sem
fjallar um áformaða hótelbyggingu
Icelandair hótela. Á fundi í nefnd-
inni 4. maí 2015 voru
áformin kynnt og 21.
maí sama ár afgreidd
með svofelldum hætti:
„Skipulagsnefnd
leggur til við sveit-
arstjórn að þegar sam-
þykki landeigenda
liggur fyrir verði
skipulagslýsingin sam-
þykkt og jafnframt
verði skipulags- og
byggingarfulltrúa falið
að leita umsagnar um
hana hjá Skipulagsstofnun og öðr-
um umsagnaraðilum og að kynna
hana fyrir almenningi eins og 1.
mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/
2010 mælir fyrir um.“
Pétur sat báða fundina og ekki
er annars getið en að hann hafi
tekið fullan þátt í afgreiðslu máls-
ins. Í öðrum tilvikum er þess jafn-
an getið ef fulltrúar hafa vikið af
fundum vegna hagsmunatengsla.
Af fundargerðum verður því að
ætla að Pétur hafi tekið þátt í af-
greiðslu máls sem varðar hagsmuni
hans mjög verulega. Ákvarðanir
opinbers stjórnvalds sem haldnar
eru slíkum ágöllum geta í
ákveðnum tilvikum verið ógildan-
legar – og væri áhugavert að vita
hvort það gæti átt við hér. – Og
hvar skyldi svo skipulagsnefndin
halda fundi sína? – Jú, – á þessu
kjörtímabili hafa fundir að jafnaði
verið haldnir í Hótel Reynihlíð –
þar sem Pétur er hótelstjóri og að-
aleigandi!
Að öllu þessu samanlögðu ætti
fólk að hafa persónulega hagsmuni
Pétur í huga þegar það metur um-
mæli hans og aðra framgöngu
varðandi áform Icelandair hótela í
Mývatnssveit.
Hótel Reykjahlíð –
forsendur mótmæla
Eftir Hjördísi
Finnbogadóttur
Hjördís Finnbogadóttir
»Heimildir herma að
í viðskiptunum hafi
Icelandair hótel í kaup-
bæti eignast forkaups-
rétt að Hótel Reyni-
hlíð.
Höfundur er framhaldsskólakennari
og íbúi í Mývatnssveit.
– með morgunkaffinu
Hoist Vinnulyftur • Víkurhvarf 4 • Sími 517 6000 • hoist@hoist.is • www.hoist.is
Umboðsaðili Alimak Hek á Íslandi
Turnlyftur
Sala og þjónusta
Sérhæfum okkur
í sölu og þjónustu
á lyftum af öllum
stærðum og gerðum
517 6000
á fallegum, notalegum stað á
5. hæð Perlunnar.
ERFIDRYKKJA
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200