Morgunblaðið - 21.07.2016, Page 30

Morgunblaðið - 21.07.2016, Page 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016 Í huga mér töfra ég fram minningu, því að minningin er eina svarið sem sorgin tekur gilt. Ég töfra fram minningu sem þó er svo miklu meira en minning um einn at- burð, heldur er hún endurtekið stef ómetanlegra stunda. Það er matarboð í Grenilundinum. Þarna erum við öll: Sverrir og Soffa, Berglind og Hanna og fólkið okkar allt. Við borðum góðan mat og spjöllum um lífið og listina, við segjum sögur og syngjum fram á rauðanótt. Og enginn geislar eða gefur meira af sér heldur en Soffía. Það er svo ofboðslega gaman hjá okkur og gott að vera til. Þetta minningastef verður mér ómetanlegt um alla tíð, aldr- ei eins og nú á þessari ótíma- bæru kveðjustund. En þó að sorgin sé sár, þá verður þakk- lætið henni ævinlega yfir- sterkara. Elsku, hjartans Soffía, takk fyrir allt. Vilhjálmur Bergmann Bragason. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Svo orti Reykjarvíkurskáldið Tómas Guðmundsson í ljóði sínu Hótel Jörð. Já, margt er um manninn á Hótel Jörð. Samferðafólkið á lífsleiðinni er eins ólíkt og það er margt. Sumir eiga með manni samleið en aðrir síður. Þannig er lífsins gangur. Soffía, eða Soffa hans Sverris eins og hún var oftast kölluð af okkur, kom inn í líf mitt þegar minn kæri frændi Sverrir og hún rugluðu saman reytum. Hún heillaði mig frá fyrstu kynnum og eignaðist sess í hjarta mér. Hún var hrífandi kona. Stór- glæsileg, geislandi af lífsgleði og átti sviðið hvar sem hún kom. Hlý, með fallega útgeislun og áberandi skemmtileg var hún, aldrei yfirborðskennd og sýndi manni ávallt einlægan áhuga. Sérstaklega var hún áhugasöm hvað börnin manns varðaði, vildi alltaf vita hvernig gengi hjá þeim og hvað þau hefðu fyrir stafni, alltaf svo jákvæð þannig að manni leið ósjálfrátt vel eftir samverustundirnar með henni, þannig var Soffía. Hún gerði margar stórar stundir í lífi okkar enn ógleym- anlegri með fallegum söng sín- um og skemmtilegheitum, minn- isstæð öllum sem upplifðu. Soffía var mikil fjölskyldu- kona og var aðdáunarvert að fylgjast með hvað þau Sverrir voru náin og samstiga. Þegar hún talaði um Sverri sinn, Berg- lindi og Hönnu Soffíu sínar duld- ist engum ástin til þeirra og hve stolt hún var af þeim. Þegar ég kveð Soffíu er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þeirri yndis- legu manneskju sem hún var. Hún skildi eftir spor sem aldrei gleymast. Hennar verður sárt saknað. Elsku frændi minn Sverrir og frænkur mínar, Berglind og Hanna Soffía, missir ykkar er mikill. Við Ragnar og börnin sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð umvefja ykkur í sorginni og gefa ykkur styrk. Sveindís Danný. Soffía Guðmundsdóttir ✝ Soffía Guð-mundsdóttir fæddist 28. sept- ember 1951. Hún lést 9. júlí 2016. Útför Soffíu fór fram 20. júlí 2016. Kata, Hanna, Soffa, Fjóla, Guð- björg, Steinþóra, Rúnar. Þulan sem ég lærði til að muna aldursröðina á stóra barnahópnum hennar ömmu Sillu og afa Guðmundar – fallegu fjölskyld- unnar minnar. En nú er Soffa frænka farin og það er kom- ið risastórt gat á tilveruna. Við grátum og föðmumst og minn- umst stjörnunnar okkar sem hafði þann einstaka hæfileika að umvefja allt gleði og fegurð. Það eru ekki nema tuttugu og tveir mánuðir á milli Soffu og Fjólu, mömmu minnar. Soffa fékk snemma matarást á mömmu og gekk upp á lagið með að nappa pelanum úr vöggu litlu systur. Þannig grínuðumst við oft með að það liðu ekki margar mínútur á milli þess sem mamma kveikti á bakarofninum og dyra- bjallan hringdi, Soffa komin í kaffi sem breyttist yfirleitt í mat líka. Það var eins og hún fyndi á sér að síðasta pönnukakan væri á leið á rjúkandi staflann eða rautt kirsuberið nýlent á rjóma- tertunni. Alltaf velkomin. Meðan á sjúkrahússdvölinni í vor stóð átti hún það til að hringja og biðja systur sína um að elda fyrir sig kjötsúpu eða fiskibollur sem mamma galdraði fram og færði Soffu. Báðar svo glaðar að fá að sitja saman eina máltíðina enn. Fallega, góða Soffa mín sem var fyrst til að leyfa mér að prófa varalit og mér fannst ég svo fín með knallrauðar varirnar að ég gat hvorki lokað munninum né talað. Soffa sem leyfði mér að fá klassísku plöturnar sínar lánað- ar og kynnti þannig tólf ára barnið fyrir undrum Töfraflaut- unnar og Carmen. Soffa sem kreisti fyrsta fílapensilinn minn og leyfði mér að skrýðast svarta glimmerkjólnum sínum á fyrstu árshátíðinni minni í Menntaskól- anum. Undurfagra röddin henn- ar sem trillaði afmælissönginn í áður óþekktar hæðir í afmælum okkar systra og síðar í afmælum barnanna minna. Mér finnst ég varla eiga minningar þar sem Soffa kemur ekki nærri. Fegurst þeirra er þó líklega þegar hún, íklædd hárauðum og skósíðum kjól, söng í brúðkaupinu okkar Þrastar. Síðar færði hún börn- unum dásamlegar skírnargjafir, alltaf svo gjafmild og góð. En það þurfti ekki tyllidaga til að eiga góðar stundir með Soffu. Ótalmörg eru skiptin sem ég rak inn nefið í Grenilundinn þar sem við drukkum þúsund kaffibolla og nutum þess að borða döðlur og dökkt súkkulaði. Litlu krakk- arnir mínir fengu að spila á flyg- ilinn og lærðu að borða brauð með tómötum og ólífuolíu og drukku úr agnarsmáum bollum sem þau kölluðu „sína“. Bestu sólardagana mátti ganga að því vísu að verið væri að viðra alla púðana úti í garði og græjurnar stilltar á hæsta styrk. Frú Soffía var að þrífa. Í ársbyrjun fórum við mamma einu sinni sem oftar í heimsókn. Það var snjór yfir öllu og þykkur klakabunki í innkeyrslunni. Soffa var búin að vera lasin og lengi heima. Mömmu fannst þessi innivera ekki ganga leng- ur, greip skóflu og braut leið fyr- ir Soffu út í bíl. Nú skyldi farið á rúntinn. Soffa hló dátt og dáðist að dugnaðinum í mömmu. Ég keyrði svo systurnar um borgina og hlustaði á þær tala. Ómur æsku minnar og fullorðinsára sem nú er þagnaður. Soffa er komin í sumarlandið. Situr þar í blómabrekkunni og syngur. Jóhanna. Elsku Soffía, hjartans þakkir fyrir góð og gengin ár. Á kveðju- stund fara um huga okkar ljós- brot af fallegum minningum. Okkur er minnisstætt þegar við hittum Soffíu í fyrsta sinn, hún hafði einstaklega fallega framkomu, örugg í fasi með góða nærveru. Þegar við kynntumst henni betur sáum við að hún var sannkallaður gleðigjafi, einstak- lega hlý og góð manneskja með brosið sitt bjarta. Tónlist, söng- ur, lífsgleði og kærleikur er það sem kemur upp í hugann er við minnumst Soffíu og minning hennar er björt og falleg. Sverrir og Soffía bjuggu bæði í Kópavoginum á þeim tíma sem þau kynntust og fljótlega festu þau kaup á framtíðarheimilinu í Grenilundi í Garðabæ. Um svip- að leyti bauðst Sverri kaup- félagsstjórastaða á Ísafirði og unga parið fór á vit ævintýranna. Frá Ísafirði bárust okkur mikil gleðitíðindi, þau áttu von á tví- burum en að sama skapi var það erfið lífsreynsla og djúp sorg þegar tvíburarnir fæddust fyrir tímann og varð ekki lífs auðið. Eftir þessa sáru reynslu fluttu þau frá Ísafirði í Grenilundinn þar sem þau hafa búið alla tíð og átt einstaklega fallegt heimili. Um það bil þremur árum síðar fæddist þeim frísk og falleg telpa. Gleðin var mikil og það voru stoltir foreldrar sem skírðu Berglindi og giftu sig á gamlárs- dag 1988. Rúmu ári síðar fædd- ist Hanna Soffía. Tvær dásam- legar og vel gerðar stúlkur sem áttu hug og hjörtu foreldra sinna. Sverrir og Soffía hafa alltaf verið einstaklega dugleg við að hóa fjölskyldu og vinum saman til að hittast og hafa gaman sam- an. Matarboðin þeirra og veisl- urnar eru fjársjóður minninga, þar sem þau geislandi af gleði voru frábærir gestgjafar. Soffíu fannst gaman að undirbúa veisluhöld og Sverrir er frábær kokkur sem hefur yndi af elda- mennsku. Oftar en ekki tók Sverrir gítarinn fram og Soffía stýrði söng enda var tónlistin í hávegum höfð á heimilinu. Síðastliðið ár hafði Soffía oft verið orkulaus og ólík sjálfri sér en engan óraði fyrir því að hún glímdi við alvarleg veikindi. Soffía greindist með sjaldgæft krabbamein, hún lagðist inn á spítala í febrúar síðastliðnum og veikindin ágerðust, hún lést á sjúkrahúsinu eftir rúmlega fimm mánaða baráttu. Soffía er og verður í huga okk- ar einstök perla, henni fylgdi mikil birta og glæsileiki, hún var í eðli sínu umhyggjusöm og kær- leiksrík, og svo var hún frábær söngkona með alveg einstaklega fallega rödd. Það er óskaplega sárt að stundirnar hér í heimi verði ekki fleiri með Soffíu en við eigum mikinn fjársjóð af minn- ingum sem ylja okkur um ókom- in ár. Elsku Sverrir, Berglind, Hanna Soffía, Stefán og Daði. Við vottum ykkur innilega sam- úð og biðjum Guð að blessa fal- legar minningar um einstaka konu sem mun lifa með okkur öllum. Einnig sendum við Sillu, móður Soffíu, systkinum og fjöl- skyldum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Við viljum enda þessi fátæklegu minningarorð með ljóðinu Gleði eftir Vilhjálm tengdaföður hennar, því við vit- um að það ljóð var henni afar kært: Í gleði minni gef ég allt, ég græt, ég syng, ég hlæ! Ég þigg svo aftur þúsundfalt þann þrótt sem af því fæ. (V.S.V.S) Guðrún og Kolbeinn. Garður fjölskyldunnar grætur þungum tárum. Fagri söngfugl- inn okkar er floginn frá okkur. Stóra vænghafið og undurfögru fjaðrirnar hennar Soffu frænku snertu mig og fjölskyldu mína svo djúpt. Soffa frænka hafði einstaka hæfileika og ótal góða kosti sem aðeins sannur mann- vinur hefur að geyma. Sjálfsagt mótaðir af vestfirsku veðri og vindum æskuáranna í stóra hreiðrinu á Suðureyri við Súg- andafjörð. Það gustaði af henni, tilfinningarnar og tónarnir sem hún gaf svo óspart frá sér í vina- legu tali hljómuðu eins og falleg tónverk af himnum ofan. Mann þyrsti í að taka undir og vera með í gleðinni sem skapaðist og hún fullmótaði með nærveru sinni. Soffa frænka átti yndislegt hreiður, tvo unga úr gulli og góð- an maka. Ætíð var hreiðrið þeirra opið fyrir stórfjölskyld- una og móttökurnar voru kon- unglegar. Sverrir galdraði fram dýrindis veitingar með bros á vör og opinn faðm með Soffu sína og duglegu ungana sér við hlið. Þessar veislur hefur mér alltaf þótt sérstaklega vænt um því þær voru svo mikið ekta og gerðar af heilum hug. Oftar en ekki voru minnstu ungarnir í fjölskyldunni boðnir með í stórveislurnar, litlar frænkur og frændur. Soffa og Sverrir voru ekki lengi að pússa þessa litlu engla saman í dúett, sem sungu eins og nýfleygir montnir fugl- sungar á mjúkum mosa. Soffa frænka var einstök móð- ir sem sinnti hlutverki sínu af miklum móð, hvatti litlu ungana sína áfram og fylgdi hlutunum eftir af kærleik og ást. Hún snerti hjörtu margra barna og bar ávallt mikla virðingu fyrir litlu saklausu sálum þeirra. Hún hafði sérstakt lag á þeim, fann mjúku og góðu hliðina í ótrúleg- ustu gröllurum og trúði því að allir hefðu eitthvað stórkostlegt fram að færa. Það var hrein unun að fá að fylgjast með einlægu systrasam- bandi mömmu og Soffu, hreiðrin þeirra lágu saman hlið við hlið í Garðabænum síðustu árin. Þar sátu þær að spjalli, tíminn stóð í stað, samtal fagurra blómarósa. Oftar en ekki opnuðu þær glugga æsku sinnar sem ég fékk að gægjast inn um, minntust löngu liðinna tíma sem voru þó ekki svo fjarri. Tíma í hreiðrinu fyrir vestan, hreiðrinu þar sem amma Silla og afi Guðmundur ólu litlu ungana sína sjö, hreiðr- inu sem var þeim svo kært. Elsku Sverrir, Berglind og Hanna Soffía. Hreiðrið ykkar fyllist af minningum um fagra fuglinn ykkar sem mun vaka yfir ykkur daga og nætur. Það er mín einlæga ósk að fegurðin og gleðin í vængjaþytnum vermi hjörtu ykkar og fylgi ykkur ætíð á lífsins leið. Birna María G. Baarregaard. Kveðja frá Hörðuvallaskóla Það er eins og gerst hafi í gær þegar Soffía „okkar“ gekk inn á skrifstofu skólans einn haustdag 2007 og óskaði eftir kennslu við skólann. Það þurfti ekki langan umhugsunartíma. Hún var ráðin á staðnum. Það leyndi sér ekki að þarna var á ferð gullmoli sem ekki kom til greina að láta bíða eftir svari. Í huga okkar sem þetta skrifum var hún alltaf Soffía „okkar“ og þann sess átti hún einnig hjá öðrum starfs- mönnum skólans. Hvar sem hún fór um skólann var eftir því tek- ið, glæsileg , brosandi, um- hyggjusöm og umfaðmandi. Sama hver varð á vegi hennar, nemendur, samstarfsmenn, for- eldrar og gestir, öllum leið vel í návist hennar. Hún átti auðvelt með að hrósa fólki og var dugleg að láta vita af því sem henni fannst vel gert. Soffía var metnaðarfullur kennari, alltaf leitandi í kennsl- unni og tilbúin að takast á við ný verkefni. Byrjendakennsla var henni sérlega hugleikin, upphaf skólagöngu og lestrarnám. Þar bjó hún yfir mikilli þekkingu, nýtti sér reynsluna úr leikskóla- stjórastarfinu og sá vel mikil- vægi tengingar milli skólastig- anna. Viðfangsefni sem snertu listir og tjáningu lágu sérstak- lega vel fyrir henni og síðustu verkefnin sem hún vann að í skólanum voru einmitt á því sviði. Hún samdi leikrit með börnunum, þau gerðu leikbrúður og tóku brúðuleikhúsið upp á spjaldtölvur. Verkefni sem var svo skemmtilegt að börnin urðu miður sín ef tími féll niður. Þegar þjóðmál og málefni kennarastéttarinnar komu til umræðu hafði Soffía ákveðnar skoðanir og lét þær vel heyrast enda ekki skaplaus kona þó hún væri hvers manns hugljúfi. Sverri eiginmann hennar þekkja allir því starfsmenn skól- ans áttu því láni að fagna að vera ítrekað boðið á þeirra fallega heimili þar sem leiftrandi gest- risni þeirra réð ríkjum. Allir sem til þeirra þekktu vissu að á milli þeirra var mikil ástúð og virðing, enda var ósjaldan sem Soffía tal- aði um hann Sverri sinn og hve hann reyndist henni vel. Þá leyndi sér ekki stolt hennar af dætrum þeirra. Þrátt fyrir langa fjarveru vegna veikinda og vitneskju um að Soffía væri að takast á við erf- iðan sjúkdóm voru allir vissir um að hún kæmi til baka, hress og endurnærð. Því kom það sem reiðarslag er fréttir bárust um að hún hefði látist aðfaranótt laugardagsins 9. júlí. Þau voru mörg erfið samtölin sem við átt- um við starfsmenn skólans er við tilkynntum þeim andlát hennar. Vantrú og sorg en einnig góðar minningar komu upp í samtölun- um og augljós væntumþykja allra til Soffíu. Við sendum Sverri, Berglindi, Hönnu Soffíu og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðj- ur. Minningar um bjart brosið, dillandi hláturinn, góðmennsku og einstaka nærveru Soffíu lifa um ókomna tíð. Helgi og Þórunn. Með þessum orðum langar mig að kveðja elskulega og afar kæra vinkonu, Soffíu Guð- mundsdóttur, sem kvaddi eftir stutta en stranga baráttu. Þegar dauðinn ber að dyrum verður manni orða vant og er erfitt að lýsa þeirri harmatilfinningu sem sótti á mig við fregnina af andláti hennar. Þeirri stund þegar fundum okkar Soffíu bar fyrst saman gleymi ég aldrei. Ég hóf nám í KHÍ haustið 1995 og hitti þar Soffíu, þessa ljóshærðu og glæsi- legu konu. Það myndaðist strax sterkur þráður á milli okkar sem hefur haldist alla tíð. Við vorum báðar leikskólakennarar, komn- ar í KHÍ til að efla okkur í starfi með auknu námi. Tveir sérlega skemmtilegir vetur liðu með samvinnu okkar Soffíu í margs konar verkefnum. Samstarfið var ævintýri líkast, mikið grúsk- að, lesið og hlegið. Soffía var víð- lesin, hugmyndarík og einstakur mannvinur sem gott var að vinna með. Margar vinnustundir okkar fóru fram á Ölduslóðinni, heima hjá okkur Rikka. Við göntuð- umst oft með að Rikki væri hinn maðurinn hennar Soffíu, því ófá- ar stundir veitti hann okkur að- stoð í náminu. En Soffía átti sinn einstaka eðalmann, Sverri Berg- mann, sem stóð með henni í blíðu og stríðu. Mörg kvöld var kallað á okkur í mat í Garðabæinn þar sem Sverrir reiddi fram sínar dýrindis krásir með gítarspili og söng í ábæti. Við Soffía skrifuðum saman lokaverkefni fyrir B.Ed.- gráðuna þar sem við fjölluðum um barnabækur í námi og út- skrifuðumst sem grunnskóla- kennarar í júní 1997, með glæsi- brag. Þetta var góður tími sem aldrei gleymist. Soffía var einstök manneskja. Hún var gáfum gæddur, list- hneigður söngfugl sem vann verk sín af glaðværð, kostgæfni, alúð og nákvæmni. Soffía var björt og hlý eins og sólin, stráði sólargeislum allt í kringum sig með glæsileik og gleði, kveikti líf með sínu bjarta brosi og syngj- andi sveiflu. Hún birtist ávallt sem ferskur blær að vori og fagnaði manni af áhuga. Soffíu tókst alltaf að klæða hversdags- leikann í litríkan búning, hreif mann með sér í ákafa, glæsileika og einlægni. Hún gladdi með söng og óvæntum uppákomum og oftar en ekki sameinuðust Soffía og Sverrir í að breyta stuttri heimsókn í menningar- stund þar sem öllu var tjaldað til. Hvað er betra en að eiga vináttu þeirra sem gera lífið dýrmætara og fegurra? Soffía umvafði vini sína og fjölskyldu, hún var vinur bæði í gleði og sorg. Móðurhlutverk Soffíu var henni mikilvægt og kærleiksrík- ari móður er vart hægt að finna. Þrátt fyrir krefjandi störf var hún alltaf með hugann við stúlk- urnar sínar, veitti endalausa hvatningu og gleði inn í líf þeirra. Berglind og Hanna Soffía eiga eftir að bera minningu um einstaka móður sem gaf þeim ást sína ómælda. Soffíu mína kveð ég með virð- ingu og þakklæti. Samleið mín með henni var mjög dýrmæt. Soffía hvatti mig til dáða í starfi og leik, gladdist af öllu hjarta þegar Elín Hanna okkar fæddist og barðist með okkur í þeim áföllum sem við hjónin höfum þurft að reyna. Vinátta okkar var einstök, hún var mér lífs- nauðsyn. Ég get bara ekki hugs- að þá hugsun til enda hvernig hægt verður að halda áfram án hennar. Þakka þér, elsku vin- kona mín, fyrir allt og allt, aldrei gleymist þín saga. Ég, Rikki og Elín Hanna minnumst Soffíu sem einstakrar vinkonu um ókomna ævidaga. Vottum Sverri, Berglindi, Hönnu Soffíu og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Elfa Dögg Einarsdóttir. Meira: mbl.is/minning Á lífsleiðinni hittir maður stundum fólk sem geislar óvenju mikið af og hún Soffía okkar var ein af þeim. Hún hafði svo ein- staklega góða nærveru að það birti til í hvert sinn sem hún kom inn um dyrnar. Við kynntumst Soffíu þegar við störfuðum allar við Hörðuvallaskóla og reyndist hún okkur mikil fyrirmynd, hvort sem það var í starfi eða með jákvæðri sýn á lífið og áminningu um mikilvægi þess að njóta líðandi stundar. Við skrif- um þessi orð fullar þakklætis fyrir að hafa fengið að kynnast þessari yndislegu og lífsglöðu konu sem kvaddi allt of fljótt. Söknuðurinn er mikill og skarðið er stórt, en þó er það stærst hjá þeim sem hún elskaði mest og talaði svo fallega um. Elsku Sverrir, Berglind, Hanna Soffía og aðrir ástvinir, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum góðan guð að styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Þínar vinkonur í bókaklúbbn- um Verona: Hildur, Lína, Rakel, Rán, Sigrún Harpa og Veiga. Ég sé hana fyrir mér í falleg- um ljósum kjól og í huga mér er nafn hennar baðað í sól. Ég kynntist Soffíu sumarið 1990 þegar maðurinn minn tilvonandi sagði að það væri söngkona í fjölskyldunni sem væri kannski til í að syngja eitt lítið Bítlalag í brúðkaupinu okkar. Við fórum og bárum þessa hugmynd undir söngkonuna. Hún tók á móti okkur á fallega heimilinu sínu, brosmild og geislandi glöð. Hafði aldrei sungið þetta lag en það væri nú engin fyrirstaða. Þannig var Soffía, alltaf tilbúin að leggja sitt af mörkum og gerði það með jákvæðni, alúð og metnaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.