Morgunblaðið - 21.07.2016, Qupperneq 33
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Fundarboð
Aðal hluthafafundur Seljalax hf. fyrir árin 2014
og 2015 verður haldinn Í Skúlagarði föstu-
daginn 29.júlí 2016 kl. 15.00
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Stjórn Seljalax hf.
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Vestmannabraut 62, 218-5037 , þingl. eig. Vestmannabraut 62 ehf.,
gerðarbeiðendur HS Veitur hf. og Vestmannaeyjabær og Vátrygginga-
félag Íslands hf., miðvikudaginn 27. júlí nk. kl. 15:00.
Kirkjuvegur 17, Vestmannaeyjar, fnr. 218-4379 , þingl. eig. Jón Helgi
Sveinsson og Hrund Scheving Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Sjóvá-
Almennar tryggingar hf. og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 27. júlí
nk. kl. 14:00.
Sólhlíð 3, Vestmannaeyjar, fnr. 218-4681 , þingl. eig. Elva Ósk Matcke
og Þorbjörg Rósa Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Vestmannaeyjabær og
Tryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn 27. júlí nk. kl. 14:30.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
20. júlí 2016
Tilkynningar
Auglýsing um Ljósleiðaravæðingu í
Kjósarhreppi
Lagning ljósleiðara í Kjósarhreppi 2016, 2017 og 2018 .
Unnið er að lagningu á ljósleiðara um Kjósarhrepp sem á að veita
öruggt netsamband í sveitarfélaginu. Gert er ráð fyrir að tengja öll
lögheimili, fyrirtæki og frístundahús sem þess óska.
Auglýst er eftir:
A - Aðila eða aðilum sem sannanlega ætla að koma á
ljósleiðaratengingum í Kjósarhreppi á þessum árum á
markaðslegum forsendum.
B - Hæfum aðila eða aðilum til að taka að sér að byggja upp og
reka til framtíðar ljósleiðarakerfi með stuðningi frá Kjósarhreppi,
komi til þess að enginn aðili svari lið A hér að ofan.
Aðilar sem óska eftir stuðningi frá sveitarfélaginu skulu uppfylla
tilteknar kröfur um fjarskiptaleyfi, fjárhagslegan styrk, reynslu af
uppbyggingu og rekstri sambærilegra kerfa. Leggja skal fram
raunhæfa verkáætlun.
Auglýsing um ljósleiðaravæðingu í Kjósarhreppi (liður A) var áður
birt opinberlega í september 2015.
Áhugasamir aðilar skulu senda tilkynningu til Kjósarhrepps á
netfangið gudny@kjos.is fyrir kl.12:00 föstudaginn 19. ágúst
2016.
Guðný G Ívarsdóttir sveitarstjóri Kjósarhrepps.
Kjósarhreppur
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16.
Garðabær Handavinnuhorn og vöfflukaffi kl. 13 í Jónshúsi.
Gjábakki Handavinna kl. 9.
Gullsmári Handavinna kl. 9, ganga kl. 10, handavinna kl. 13. Hár-
greiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum. Allir velkomnir!
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, spilað botsía kl. 10, matur kl. 11.30. Spiluð félagsvist kl. 13.15,
kaffisala í hléi. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, bóka-
bíllinn kl. 10-10.30, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með leiðbeinanda
kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14. Upplýsingar í s. 411-2760.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness kl. 7.15.Tölvu-
námskeið í Valhúsaskóla kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Félags-
vist á Skólabraut kl. 13.30.
Smáauglýsingar
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
✝ Ingibjörg Jóns-dóttir fæddist á
Ísafirði hinn 24.
desember 1950.
Hún var bráðkvödd
á heimili sínu 19.
júní 2016.
Foreldrar henn-
ar voru Kristján
Jón Kristjánsson
bakari og Þorbjörg
Ásta Björnsdóttir
Blöndal húsmóðir.
Þau er bæði látin. Ingibjörg var
næstyngst átta systkina. Systk-
ini hennar eru: Rósbjörg (Rósa),
Sigríður (Sigga),
Þórdís (Bíbí), Karín
Kristín (Kæja),
Ásta (Systa), Jón
(Nonni) og Örn
Jónsbörn. Þær Þór-
dís og Karín Kristín
eru látnar.
Ingibjörg giftist
Kristni Erlingi
Jónssyni skipstjóra,
f. 1.6. 1951, hinn 30.
desember 1973.
Þau slitu samvistum 2002. Börn
þeirra eru: 1) Reynir Örn Krist-
insson, f. 16.2. 1971, d. 16.5.
2002. Eftirlifandi sonur hans er
Kristinn Ingi Reynisson, f. 7.12.
1992. 2) Unnur Ásta Krist-
insdóttir, f. 12.10. 1974, sam-
býlismaður hennar er Guð-
mundur Hannesson, f. 9.3. 1971.
Börn þeirra eru Viktor Ingi, f.
13.7. 1995, Sandra Rún, f. 9.7.
2000 og Mikael Natan, f. 7.11.
2010. 3) Kristín Kristinsdóttir, f.
12.10. 1981, sambýlismaður
hennar er Sigurður Rúnar Ás-
mundsson, f. 7.3. 1979. Börn
þeirra eru Heiðdís Inga, f. 11.7.
2011 og Emilía Rós, f. 29.9. 2012.
Börn Sigurðar úr fyrra hjóna-
bandi eru Viðar Kristófer, f.
28.2. 1997 og Erla, f. 16.6. 1998.
Útför Ingibjargar hefur farið
fram í kyrrþey.
Elsku, elsku mamma mín.
Aldrei nokkurn tímann hefði
mig grunað að ég þyrfti að kveðja
þig svona ung og svona snöggt.
Sál mín grætur af söknuði til þín,
því missirinn er svo mikill. Tárin
eru mörg en orðin fá.
Þú varst einhver sú besta og
hlýjasta móðir sem Guð gat okkur
gefið og stelpurnar mínar og
barnabörnin þín voru svo lánsöm
að eiga þig sem ömmu. Ég veit að
við hittumst aftur á ævinnar enda,
en þangað til býr sál þín í hjarta
mínu og huga og ég veit að þú yfir
okkur vakir. Blessuð sé minning
þín, elsku mamma, og megir þú
njóta hins eilífa friðar og dásemd-
ar sem þú nú býrð við hjá Guði
okkar á himnum.
Guð þig leiði sérhvert sinn
sólarvegi alla.
Verndarengill varstu minn
vissir mína galla.
Hvar sem ég um foldu fer
finn ég návist þína.
Aldrei skal úr minni mér
mamma, ég þér týna.
(Jón Sigfinnsson)
Kristín Kristinsdóttir.
Elskuleg vinkona mín til rúm-
lega 40 ára er farin frá okkur. Hún
fór svo allt of fljótt. Ég er enn að
átta mig á þessari staðreynd.
Einum og hálfum mánuði fyrr
hafði ég misst einkabróður minn,
jafnaldra hennar. Við Ingibjörg
eða Lilla, eins og hún var jafnan
kölluð, kynntumst árið 1975 í
gegnum sameiginlega vinkonu í
Sandgerði þar sem við bjuggum
allar á þeim tíma. Hún treysti mér
til að gæta dóttur sinnar, Unnar
Ástu, sem var sex mánaða þá. Eftir
það slitnaði ekki taug vináttunnar.
Við stofnuðum saumaklúbb
ásamt nokkrum öðrum ungum
konum og hann heldur enn velli.
Lilla flutti til Keflavíkur nokkrum
árum síðar en það voru í raun alltaf
bara nokkur skref milli okkar vin-
kvennanna. Fljótar að skreppa yfir
Miðnesheiðina. Börnin okkar urðu
félagar. Dætur mínar vinkonur
dætra hennar og Eiríkur sonur
minn vinur Reynis sonar hennar.
Reyni son sinn missti hún árið
2002. Þá var hann aðeins 31 árs
gamall. Mikil harmur var það
henni ásamt öðrum erfiðleikum
sem hún gekk í gegnum á svipuð-
um tíma. En hún brotnaði ekki
þótt hún bognaði.
Lilla og maður hennar Kristinn
slitu samvistum 2002 og var hún
eftir það ein. Hún bjó hjá mér í
fjóra mánuði árið 2004 þegar hún
var að velja sér og kaupa íbúðina
sína sem hún síðan bjó í til dauða-
dags. Síðar, eftir að ég flutti úr
þéttbýlinu, fannst henni fátt betra
en koma hingað í sveitina til mín í
Stafneshverfið og þá sérstaklega
þegar sólin skein. Þá sátum við úti
með kaffibollana og röbbuðum
saman eða fórum í gönguferðir.
Iðulega gisti hún og dvaldi tvo
daga eftir að hún hætti að vinna.
Eitt sinn var hún hjá mér í þrjár
vikur. Og oft þegar ég fór til
Keflavíkur kíkti ég við hjá henni í
kaffi. Þetta var orðinn fastur
punktur í tilveru okkar. Það er því
með miklum trega sem ég skrifa
þessar örfáu línur. Hún hefði sjálf
ekki viljað hafa þær margar. Hún
einfaldlega var þannig. Lítið fyrir
að láta á sér bera þó glæsileg væri.
Ég kveð góða konu með þessum
fátæklegu orðum.
Kveð ég þig, Lillan mín ljúfa,
sem lokaðir augum svo skjótt.
Vináttu okkar ekkert mun rjúfa,
hjá syninum sefur þú rótt.
Sigurbjörg Eiríksdóttir
(Silla).
Ingibjörg Jónsdóttir HINSTA KVEÐJA
Elsku Lilla mín
Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta
sinni hér
og hlýhug allra vannstu er fengu að
kynnast þér.
Þín blessuð minning vakir og býr í
vinahjörtum
á brautir okkar stráðir þú, yl og
geislum björtum.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
VAÐNES - sumarbústaðalóð
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir m.
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt
ár. Allar nánari upplýsingar
gefur Jón í síma 896-1864 og á
facebook síðu okkar vaðnes-lóðir
til sölu.
Iðnaðarmenn
Ýmislegt
Útsala - Útsala - Útsala
Tékkneskar og slóvakískar kristals-
ljósakrónur.
Slóvak Kristall,
Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur
s. 5444333 og 8201071
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Hjólbarðar
Vörubíladekk útsala
4 stk 275/70 R 22.5 DR 1 Matador
3 stk 1200 R 20 DR 2
4 stk 245/70 R 19.5 Fulda sumardekk
8 stk 215/75 R 17.5 MP 460
Stök dekk Matador, Sava Fulda:
1 stk 275/70 R 22.5 MP 460,
1 stk 305/70 R 19.5
4 stk 13 R 22.5, 4 stk 12 R 22.5,
2 stk 385/65 R 22.5
1 stk 295/80 R 22.5,
3 stk 315/70 R 22.5,
1 stk 11 R 22.5
1 stk 315/80 R 22.5,
1 stk 1000 20 MP 600
Traktorsdekk
1 stk til í þessum stærðum:
16.9 -30, 13.6 -24 , 11.2 - 28, 14.9-24,
12.4 R 24 og 1 stk Super Swamper
TSL 38x15.5x16.5
Kaldasel ehf ., Dalvegur 16 b,
Kópavogur s. 5444333
Húsviðhald
Smáauglýsingar
Þegar kær vinur
er kvaddur er ekki
skrítið að fólk velti
fyrir sér tilverunni.
Fjölmargar flóknar spurningar
vakna. Dauðinn, sem er hluti til-
verunnar, kennir okkur einlægni,
var haft eftir danska rithöfundin-
um og heimspekingnum Sören
Kierkegaard. Frammi fyrir mætti
hans getum við ekki annað en ver-
ið einlæg, viðurkennt vanmátt
okkar og trega, ekki síst þegar við
mætum söknuðinum sem er óum-
flýjanlegur hluti hans. En dauðinn
fær okkur jafnframt til að staldra
við, líta yfir farinn veg, rifja upp
góðar stundir, rifja upp dýrmætar
stundir með þeim sem við unnum
en verðum nú að kveðja.
Ástráður Karl eða Kalli eins og
hann var alltaf kallaður var hress
og hláturmildur en jafnframt yf-
irvegaður. Þegar þau Hrefna
kynntust gaf hann sig ekki þótt
Hrefna væri tvístígandi. Hann
vann hug hennar og hjarta með
þolinmæði og þrjósku. Hann
reyndist síðan kletturinn í lífi
hennar og Jóhannesar. Kalli var
hjartahlýr, glaðvær og fór mikinn
þegar hann sagði sögur. Hann
hafði ákveðnar skoðanir en virti
álit annarra, var ráðagóður og vin-
Ástráður Karl
Guðmundsson
✝ Ástráður KarlGuðmundsson
fæddist 19. október
1959. Hann lést 9.
júlí 2016.
Útför Ástráðs
Karls fór fram 20.
júlí 2016.
ur í raun. Mikill höfð-
ingi heim að sækja,
góður kokkur og
opnaði heimili sitt
fyrir okkur vinunum.
Hann bar hag
Hrefnu og Jóhannes-
ar ætíð fyrir brjósti
og þau hjónin vógu
hvort annað upp á
svo skemmtilegan og
lifandi hátt; Kalli dró
Hrefnu hæfilega nið-
ur á jörðina þegar hún fór hátt á
flug og Hrefna dró Kalla upp úr
værðinni og tók hann með sér á
flug. Kalli reyndist Jóhannesi ein-
stakur. Tók hann að sér og gekk
honum í föðurstað. Jóhannes er
ekki bara að missa föður heldur
besta vin sinn líka. Sambandið sem
þau mynduðu saman; Kalli, Hrefna
og Jóhannes, var einstakt. Það
leyndi sér ekki á fermingardegi Jó-
hannesar í vor hvað Kalli var stolt-
ur faðir og eiginmaður. Núna
verða þær fallegu minningar enn
dýrmætari.
Eitt sinn var spurt í hverju ham-
ingjan fælist. Einn svaraði á þá leið
að hamingjan fælist í góðum minn-
ingum. Minningarnar eru margar
og dýrmætar sem við geymum og
munum geyma um ókomin ár. Við
erum þakklát fyrir samfylgdina og
allar góðu stundirnar.
Elín Lára, Snorri Páll,
Margrét, Jóhann, Margrét
Elsa, Sveinn og Jóhanna.
Fleiri minningargreinar
um Ástráð Karl Guðmunds-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.