Morgunblaðið - 21.07.2016, Síða 41

Morgunblaðið - 21.07.2016, Síða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016 Magnús Leifur treður upp á Loft Hosteli í kvöld ásamt bandi, auk þess sem Andri Ásgrímsson stíg- ur á svið. Magnús Leifur er um þessar mundir að klára sína fyrstu plötu sem einyrki en áætlaður útgáfudagur er 19. ágúst. Andri hefur gefið út tónlist í gegnum árin með sveitum á borð við Leaves og Náttfara en hann kemur fram einn með kassagítar í kvöld. Viðburðurinn hefst klukkan 21. Tvíþættir tónleikar á Loft Hosteli Magnús Leifur Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Það er mikil gróska í rappinu á Ís- landi um þessar mundir og það eru allir að gera sitt. Fólk er þar af leið- andi opið fyrir nýjum hlutum. Ég er með minn eigin stíl sem kemur hvað best fram í flæðinu og framleiðsl- unni,“ segir Sigmundur Páll Frey- steinsson, betur þekktur sem $ig- mund, en hann gaf út plötuna Glópagull á dögunum. Um er að ræða fyrstu plötu rapparans og kom hún út á netinu sem og á geisladiski. Hundrað eintök af diskum „Ég byrjaði að búa til tónlist af einhverri alvöru fyrir um ári. Þá gáfum við út fyrsta lagið okkar sem heitir „Alltof hratt“ sem er þó ekki á nýju plötunni. Það lag fékk mjög góðar viðtökur þannig að við ákváðum að fara bara á fullt í þetta. Ég sæki helst innblástur í það sem er að gerast í kringum mig í hundr- að og einum, lífið sem ég er að lifa þar í augnablikinu. Ég er með þrjá stráka á bak við mig í þessu og þeir komu allir að gerð plötunnar. Arnar Már Kristinsson, Hákon Örn Helga- son og Gestur Sveinsson eru allir í því að smíða takta auk þess sem sá síðastnefndi sér um alla hljóð- blöndun,“ segir forsprakkinn $ig- mund en hann hefur yfirumsjón með öllu auk þess að sjá um textasmíði. „Við erum búnir að vera í hálft ár að vinna þessa plötu og ákváðum að gefa hana meðal annars út á geisla- diskum þó svo að geisladiskaöldin sé vissulega að verða búin. Við vildum ná inn einum geisladiski áður en við höldum áfram með ferilinn. Disk- urinn kom því út í hundrað eintök- um og var aðallega hugsaður fyrir þá sem vildu styðja okkur. Platan kom síðan að sjálfsögðu einnig út á netinu,“ segir hann. Þess má geta að Stúdíó Sýrland var nýtt til þess að prenta plötuna en á netinu má nálg- ast hana á heimasvæði $igmund á vefsíðunni Soundcloud. Iceland Airwaves í haust $igmund kom meðal annars fram á Secret Solstice-tónlistarhátíðinni í Laugardalnum í sumar auk þess sem hann tróð upp á KEXPort um síðastliðna helgi og segir hann við- tökurnar hafa verið mjög góðar. „Það hefur verið ótrúlega gaman að koma fram, það eru alltaf fleiri aðdáendur að bætast í hópinn. Við erum allir á smá flakki í sumar en verðum síðan á Iceland Airwaves síðar á árinu. Við erum nú þegar farnir að vinna að nýju efni og það kemur að öllum líkindum út ein- hvern tímann í kringum þá hátíð. Góðir hlutir gerast þó hægt og við einbeitum okkur að því að flytja efni af Glópagulli þangað til,“ segir hann. $igmund og félagar hafa einn- ig verið duglegir við að skjóta tón- listarmyndbönd við lögin sín og hafa unnið það með nokkrum listamönn- um. „Góðvinur okkar Jón Ásgeir Karlsson, sem vann meðal annars stuttmyndakeppni RIFF í fyrra, leikstýrði til að mynda fyrir okkur myndbandinu við lagið „Ertu til“. Hákon Örn Helgason, Sturla Magn- ússon og Andri Marinó Karlsson hafa líka verið að skjóta fyrir okkur. Maður verður að umkringja sig með hæfileikaríku fólki, þá fara góðir hlutir að gerast. Það er mjög gaman að það eru fleiri og fleiri að dragast í verkefnið. Það er eiginlega bara all- ur vinahópurinn kominn í það. Ég hlakka bara til að halda áfram og gefa út meira af efni. Þetta verður skemmtilegt, ég lofa því,“ segir hann að lokum. $igmund innblásinn af 101  Rapparinn $ig- mund gaf nýverið út plötuna Glópa- gull  Secret Sol- stice og KEXPort að baki og Air- waves framundan Ljósmynd/Freyja Gylfa Gullið Sigmundur Páll Freysteinsson gaf plötuna Glópagull meðal annars út í hundrað eintökum af geisladiskum. Lee Child er meðbestu spennu-sagnahöf-undum heims. Jack Reacher ber höfuð og herðar yfir persónur í slíkum bókum. Í eig- inlegri og óeiginlegri merkingu. Villibráð er lostæti, hvernig sem á hana er litið. Þessi bók markar ákveðin tímamót í rit- röðinni um Jack Reac- her. Sagan gerist 1997, þegar hann er majór í herlögreglu bandaríska hersins og fær verkefni í Miss- issippi vegna morðmáls. Hindr- anirnar eru af stærri gerðinni en Jack Reacher er þekktur fyrir annað en að láta í minni pokann og sýnir úr hverju hann er gerður. Villibráð er listilega vel skrifuð. Netið er stórt en hringurinn þrengist stöðugt og spennan held- ur lesandanum við efnið. Inni á milli er slegið á létta strengi, en hvort sem alvarlegir hlutir eða léttúð ráða ferð á allt sinn stað og tíma samkvæmt fyrirframákveð- inni dagskrá. Uppbyggingin er enda einn af helstu kostum höf- undar. Persónurnar hæfa hlutverkinu. Jack Reacher sýnir á sér nokkrar hliðar, jafnt blíðar sem hrjúfar, og getur ekki annað en hrifið aðra með sér. Elizabeth Deveraux er ekki í öfundsverðu hlut- verki en leysir það með sóma. Gömlu hjónin koma reglulega við sögu og treysta þannig inn- viðina. Og svo má áfram telja. Glæpasagan Villibráð er ein af þessum spennusögum sem hefur allt. Þýð- ingin er góð, þótt sá sem hér hamrar á lyklaborðið hafi vanist því að talað sé um ríki í Bandaríkj- unum og fylki í Kanada. Það breytir ekki því að enn einu sinni fer Lee Child á kostum og Villi- bráð er gómsætasti rétturinn á veisluborðinu um þessar mundir. Spennusaga Villibráð Eftir Lee Child. Jón St. Kristjánsson þýddi. Kilja. 399 bls. JPV útgáfa 2016. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Villibráð gómsætasti réttur veisluborðsins www.danco.is Heildsöludreifing Eingöngu selt til fyrirtækja Ljúffengt... Danco hefur allt til að auðvelda veitingarnar hvort sem er í veisluna, mötuneytið, kokteilboðið, skólaeldhúsið, alls staðar. Forréttir, pizzur, smáréttir, forskornar tertur og fleira. ...hagkvæmt og fljótlegt Hótel - Veisluþjónustur Gistiheimili - Mötuneyti Fjölbreytt úrval af matvöru og veisluréttum GHOSTBUSTERS 5, 8, 10:30 THE INFILTRATOR 5, 8, 10:35 ÍSÖLD ÍSL.TAL 3:50, 5:50 CENTRAL INTELLIGENCE 8 MIKE AND DAVE 10:25 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.