Morgunblaðið - 19.08.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Þetta var mikil upplifun og stór dagur fyrir okk-
ur báða. Stefán hafði á orði að þetta væri besta af-
mælisgjöfin,“ sagði Kristján L. Möller, fyrrver-
andi samgönguráðherra, eftir að hafa ekið í
gegnum Norðfjarðargöng í gær ásamt Stefáni
Þorleifssyni. Stefán fagnaði í gær 100 ára afmæli
sínu og að bíltúrnum loknum var á dagskrá að
spila níu holur á golfvelli þeirra Norðfirðinga.
Forsaga málsins er sú að árið 2010 sótti Krist-
ján þorrablót í Neskaupstað, svokallað komma-
blót. Þar spurði Stefán hvort þáverandi ráðherra
samgöngumála gæti lofað honum því að þeir gætu
keyrt í gegnum ný Norðfjarðargöng á 100 ára af-
mæli hans. Kristján játti því og bíltúrinn var far-
inn í hádeginu í gær. Fulltrúar verktaka voru í bíl-
um á undan og eftir, en göngin hafa ekki verið
opnuð fyrir almenna umferð og var unnið við
steypuvinnu þar í gær. Þegar komið var í gegnum
göngin var skálað í kampavíni Eskifjarðarmegin
áður en haldið var til baka.
Kristján segir að Stefán hafi mætt á marga
framboðsfundi hjá sér og ævinlega setið á fremsta
bekk. Hann hafi alltaf lagt mikla áherslu á gerð
Norðfjarðarganga, stutt mál sitt sterkum rökum
og ræðuna hafi hann flutt enn einu sinni í gær
þegar þeir keyrðu í gegn. „Næst er að spila níu
holu golfhring með höfðingjanum. Ég tók golf-
fötin reyndar ekki með mér austur, en mér finnst
tilhlýðilegt að vera prúðbúinn í golfinu á þessu
merka afmæli,“ segir Kristján. aij@mbl.is
„Stór dagur fyrir okkur báða“
Ljósmynd/Karina Stefansson
Í tilefni dagsins Guðmundur R. Gíslason, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð, Stefán Þorleifsson og Kristján L. Möller skála í kampavíni eftir
að hafa ekið í gegnum Norðfjarðargöngin. Stefán varð 100 ára í gær og hefur lengi barist fyrir gerð nýrra ganga til að bæta samgöngur og auka öryggi.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Sveitarfélögin í landinu tapa alls 15
milljörðum kr. á næstu tíu árum
vegna ráðstafana ríkisstjórnarinnar
um skattfrjálsan séreignarlífeyris-
sparnað til húsnæðiskaupa sem
kynntar voru í vikunni. Þetta kemur
fram í minnisblaði frá Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga sem kynnt var
í borgarráði í gær. Þar segir að
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra hafi á fyrri stigum sagt að
sveitarfélögum yrði bættur þessi
skaði, en það hafi ekki gengið eftir.
Tapið vegna þessa í fyrra hafi verið
1,6 milljarðar kr.
að sögn ríkis-
skattstjóra.
Kópavogur,
Hafnarfjörður og
Mosfellsbær hafi
mest misst hlut-
fallslega og
Reykjavíkurborg
hafi tapað 600
milljónum kr.
Samandregið
segir í minnisblaði Sambandsins, að
núgildandi ráðstöfun iðgjalda í sér-
eignarsparnað, sem gildir í þrjú ár,
kosti sveitarfélögin allt að 1,6 millj-
arða kr. á ári í töpuðum útsvar-
stekjum. Samtals er kostnaður því
4,8 milljarðar kr. og framlenging
þessa valkosts kosti til tveggja ára
allt að 3,2 milljarða kr. Úrræðið
Fyrsta fasteign er áætlað kosta
sveitarfélögin 7,2 milljarða kr. yfir
tíu ára tímabil, eða 720 milljónir kr.
á ári. Útkoman að þessu öllu virtu
gæti því verið ætlaðar útsvarstekjur
upp á 15 milljarða kr, sem ekki skili
sér. Sveitarfélögin muni einnig bera
kostnað af auknum greiðslum til við-
bótarlífeyrissparnaðar starfsmanna
sveitarfélaga sem svo hækki trygg-
ingagjald af laununum sem þau
þurfa síðan, eins og aðrir, að greiða
til ríkisins.
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
segir að nú verði óskað eftir fundi
með ráðherrum fjár- og innanrík-
ismála vegna þessarar stöðu. Nefna
megi að nýlega hafi verið sett ný lög
um opinber fjármál sem eigi að setja
öll fjárhagsleg samskipti ríkis og
sveitarfélaga í skýran farveg.
Upphæðin er ekki í hendi
„Nei, auðvitað eru þessir fimmtán
milljarðar króna sem við erum að
ræða um nú ekki fjármunir í hendi.
Í þessu efni byggjum við á spám
ráðgjafarfyrirtækis sem hagfræðing-
ar hafa gert og ein breytan þar er
að 14.000 manns nýti sér þetta nýj-
asta úrræði sem kynnt var í vikunni.
Þá er líka athyglisvert að þeir sem
hafa nýtt sér séreignarlífeyrissparn-
að til að fjármagna fasteignir eru
íbúar í 73 af 74 sveitarfélögum
landsins. En nú reynum við bara að
finna góða lausn á þessum málum
varðandi séreignarsparnað og sveit-
arfélögin og ég fer mjög bjartsýnn
til slíkra viðræðna. Það er alltaf gott
að tala við Bjarna Benediktsson,“
segir Halldór Halldórsson. Að hinu
leytinu segist hann telja verkefnið
Fyrsta fasteign góða lausn fyrir
ungt fólk í húsnæðiskaupum og að
það muni nýtast vel.
Skattfrjáls lífeyrir sveitarfélögum dýr
Fyrsta fasteign kostar sveitarfélög 15 milljarða á 10 árum Vilja hefja viðræður við ríkið um málið
Halldór
Halldórsson
Eygló Harð-
ardóttir, félags-
og húsnæðis-
málaráðherra,
sat hjá við at-
kvæðagreiðslu
um þingsálykt-
unartillögur rík-
isstjórnarinnar
um fjármála-
áætlun 2017-2021
og fjár-
málastefnu fyrir sama tímabil. Það
sama gerði samflokksmaður henn-
ar, Þorsteinn Sæmundsson. Tillög-
urnar voru eigi að síður sam-
þykktar.
Eygló gaf þá skýringu við at-
kvæðagreiðslu um fjármálastefnuna
að málin snéru að næsta kjör-
tímabili. Ekkert samkomulag væri
um það með hvaða hætti ætti að
standa að því samstarfi, ef af verð-
ur. Hún hefði látið vita af fyrirvara
sínum við meðferð málsins um að
ekki væri hugað nægilega vel að
lífeyrisþegum og barnafjölskyldum.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, for-
maður þingflokks sjálfstæð-
ismanna, taldi framkomu félags-
málaráðherra ekki boðlega, þegar
mbl.is leitaði álits hennar í gær.
Hún velti því fyrir sér hvort þetta
þýddi að Eygló væri á leið út úr
ríkisstjón. Ekki náðist í Eygló í
gær en hún svaraði spurningu
RÚV um áframhaldandi setu á þá
leið að hún hefði unnið af trú-
mennsku í ríkisstjórn.
Ráðherra
sat hjá
Eygló
Harðardóttir
Eygló styður ekki
fjármálaáætlun
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Borgarstjóri hefur óskað eftir til-
lögum frá embættismönnum borg-
arinnar um hvernig best verði staðið
að skipulagi og undirbúningi upp-
byggingar á landi í Skerjafirði sem
Reykjavíkurborg hefur keypt af rík-
issjóði. Landið er keypt samkvæmt
samningi sem Katrín Júlíusdóttir,
þáverandi fjármálaráðherra, og
Dagur B. Eggertsson, þá formaður
borgarráðs, gerðu á árinu 2013 en
tók ekki gildi fyrr en innanrík-
isráðherra tilkynnti að „neyð-
arbrautin“ svokallaða hefði verið af-
lögð.
Borgin keypti landið á 440 millj-
ónir króna en jafnframt er kveðið á
um að ríkið fái hlut af tekjum vegna
sölu byggingaréttar á svæðinu. Á
sínum tíma var talið að tekjur rík-
isins gætu orðið á annan milljarð
króna og hlutur Reykjavíkurborgar
litlu minni. Hugmyndir voru uppi um
að nota hluta tekna ríkisins til að
byggja nýja flugstöð.
17 hektara byggingasvæði
Hið keypta land er liðlega 11 hekt-
arar að stærð. Það er lagt við tvær
spildur sem Reykjavíkurborg á fyrir
og verður alls um 17 ha. Bygg-
ingasvæðið er í beinu framhaldi af
núverandi byggð í Skerjafirði. Það
er að mestu óbyggt. Gert er ráð fyrir
að tvö flugskýli sem þar eru verði
keypt upp.
Í upphaflegum hugmyndum var
gert ráð fyrir tiltölulega þéttri byggð
og að þar gætu risið um 800 íbúðir.
Við gerð deiliskipulags verður litið
til verðlaunatillögu í skipulags-
samkeppni um Vatnsmýri. „Þetta
verður lykilsvæði í uppbyggingu
íbúðarhúsnæðis sérstaklega. Það er
beinlínis kveðið á um það í samn-
ingum að það komi til uppbyggingar
sem fyrst. Um leið viljum við gera
þetta vel og í samvinnu við sem
flesta,“ segir Dagur B. Eggertsson,
en hann kynnti frágang samning-
anna í borgarráði í gær.
Hann bendir á nálægð við há-
skólasvæðið og segir spennandi að
sjá stúdenta búa þar innan um aðra.
Einnig gæti hluti uppbyggingar sem
áformuð er í samvinnu við verkalýðs-
hreyfinguna orðið þarna.
Dagur segir að byggingamagn og
hraði uppbyggingar geti ráðist af
ýmsum hlutum, eins og samgöngum
og þörf fyrir nýjan grunnskóla,
Vatnsmýrarskóla. Farið verði yfir
slíka hluti í skipulagsvinnu.
Borgin undirbýr skipulag í Skerjafirði
Reykjavíkurborg eignast landið við enda „neyðarbrautarinnar“ 800 íbúðir gætu risið þar
Morgunblaðið/Eggert
Byggingarsvæði Á landinu í Skerjafirði er gert ráð fyrir þéttri íbúðabyggð.