Morgunblaðið - 19.08.2016, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Fjöruferð Ferðamaður stillir sér upp til myndatöku á syllu á stuðlabergi við Reynisfjöru í Mýrdal. Margir ferðalangar leggja leið sína um fjöruna til að skoða þetta sérkennilega náttúrufyrirbæri.
Ómar
Nú eru tæpir tveir
mánuðir liðnir frá
ákvörðun meirihluta
Breta um að segja sig
úr Evrópusamband-
inu. Hrakspár um að
allt færi á annan end-
ann yrði niðurstaðan í
þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni 23. júní þessi hafa
ekki ræst. David
Cameron forsætisráð-
herra sagði af sér 24. júní enda
lagði hann allt undir og taldi víst að
meirihlutinn vildi að Bretar yrðu
áfram í ESB.
Theresa May innanríkisráðherra
varð forsætisráðherra 13. júlí. Um
síðustu helgi sýndi könnun á vegum
netblaðsins The Independent að
May var orðin vinsælasti stjórn-
málamaður Bretlands. Áður hafði
Boris Johnson, núverandi utanrík-
isráðherra, notið þess heiðurs í
nokkur misseri.
May og Johnson voru á öndverð-
um meiði í afstöðunni til ESB. Hún
vildi vera áfram í ESB, hann úr-
sögn. Það kom því nokkuð á óvart
að May skyldi skipa Johnson utan-
ríkisráðherra í stjórn sinni. Til að
ávinna sér enn meira traust meðal
úrsagnarsinna skipaði hún við hlið
Johnsons tvo úrsagnarmenn að
auki ráðherra í utanríkisráðuneyt-
inu: Liam Fox fer með utanríkisvið-
skiptamál og David Davis fer með
Brexit-mál, það er samninga vegna
ESB-úrsagnar Breta.
Vilji May er að áfram verði um
eitt ráðuneyti að ræða með þremur
ráðherrum. Þetta skipulag stuðlar
þó ekki að sátt og samlyndi og nú
hefur verið lekið bréfi
frá Fox sem vill skipta
ráðuneytinu, hann
stjórni utanríkisvið-
skiptaráðuneyti en
Johnson fari með hefð-
bundin utanríkis- og
öryggismál, þar á með-
al yfirstjórn leyniþjón-
ustunnar MI6 og hler-
unar- og fjarnjósna-
miðstöðvarinnar
GCHQ.
Johnson og valda-
miklir embættismenn
utanríkisráðuneytisins snúast
harkalega gegn tillögu Fox og bú-
ast nú einnig til varnar ef Davis
krefst þess að Brexit-mál verði sett
beint undir sína stjórn í formlega
nýju ráðuneyti.
Byrjað frá grunni
Davis segir að hann verði að
handvelja „mestu snillingana“ inn-
an stjórnarráðsins til að vinna fyrir
sig í Department for Exiting the
European Union, ráðuneytinu um
úrsögn úr Evrópusambandinu.
Hann segist jafnframt hafa tíu um-
sækjendur um hvert starfanna 250
sem um sé að ræða.
Innan breska stjórnarráðsins er
sem sagt erfitt að finna sérfræðinga
til að gera alþjóðlega viðskipta-
samninga. ESB hefur gert alla slíka
samninga fyrir hönd Breta síðan
1973. Bresku sérfræðingarnir á
þessu sviði starfa fyrir ESB og er
óvíst hvort þeir vilja ganga í þjón-
ustu bresku ríkisstjórnarinnar. Þar
fyrir utan er breskum stjórnvöldum
óhjákvæmilegt að þjálfa sérstakan
hóp manna til að glíma við fulltrúa
Evrópusambandsins sjálfs vegna
úrsagnarinnar.
Þekkingarskortur, reynsluleysi
og óljós samningsmarkmið tefja
framkvæmd vilja bresku þjóðar-
innar um ESB-úrsögn. Einmitt
þess vegna hefur Theresa May sagt
að hún vilji ekki hefja tveggja ára
samningsferli um úrsögnina sam-
kvæmt 50. grein Lissabon-
sáttmálans fyrr en eftir næstu ára-
mót. Til úrsagnarinnar kæmi þá
síðla árs 2019.
Skömmu eftir að Davis tók við
ráðherraembættinu voru fréttir í
blöðum um að hann íhugaði ein-
hverja Kanada-lausn gagnvart
ESB. Fráleitt er að ætla að hún
tryggi Bretum það sem þeir vilja:
aðild að innri markaði ESB. Aðeins
eitt ráð dugar til þess: aðild að
EFTA og að samningnum um evr-
ópska efnahagssvæðið (EES).
Bretar og EES-samningurinn
Vanþekking breskra stjórnmála-
manna og álitsgjafa á þeim kostum
sem eru fyrir hendi gagnvart ESB
birtist meðal annars í lítilsvirðingu
þeirra á EES-samningnum og full-
yrðingum um að niðurlæging felist í
aðild EFTA-ríkjanna, Íslands,
Liechtensteins og Noregs, að hon-
um.
Christopher Booker, dálkahöf-
undur The Sunday Telegraph, sker
sig úr meðal breskra blaðamanna
vegna þekkingar sinnar á innviðum
ESB. Hann fagnar því sunnudaginn
14. ágúst sem ljósgeisla í dimmri
þokunni um ESB-úrsögnina að
David Davis ætli bráðlega að heim-
sækja Noreg.
Booker segir réttilega að engin
önnur leið en EES-samningurinn
tryggi Bretum, eftir brotthvarf
þeirra úr ESB, aðild að innri mark-
aði ESB. Meirihluti Breta vilji njóta
sameiginlega markaðarins, líka
flestir þeirra 48% sem sögðust vilja
vera áfram í ESB. Vonandi ræði
Davis EES-aðild við Norðmenn
enda sé það í samræmi við vilja
Theresu May og ráð þeirra emb-
ættismanna sem best séu að sér.
Í gagnrýni á aðild Breta að EES-
samningnum er jafnan sagt að hann
tryggi þeim ekki rétt til að tak-
marka fjölda innflytjenda til Bret-
lands. Þessi fullyrðing stenst ekki.
Liechtensteinar hafa rétt til slíkrar
takmörkunar í krafti 112. gr. EES-
samningsins.
Hik Norðmanna
Elisabeth Vik Aspaker, EES-
ráðherra í Noregi, sagði nýlega í
samtali við Aftenposten að ekki
væri víst að Bretar ættu erindi í
EFTA, Fríverslunarsamtök
Evrópu. Hvert EFTA-ríkjanna
fjögurra (Íslands, Liechtensteins,
Noregs og Sviss) hefur neitunar-
vald um hvort fjölga eigi aðildar-
ríkjum. Aspaker sagðist ekki vita
hvað Bretar vildu, það væri þó ekki
endilega Norðmönnum í hag að svo
fjölmenn þjóð gengi í EFTA og
raskaði öllu jafnvægi þar.
Í The Guardian var sagt að yrði
Bretum haldið utan EFTA jafngilti
það að þeir fengju ekki aðild að
innri markaðnum með EES-
samningnum. Á það var bent á móti
að vildi ESB veita Bretum EES-
kjör en EFTA-ríkin stæðu gegn því
gæti ESB einfaldlega rift samn-
ingnum við EFTA-ríkin, samið við
Breta og boðið EFTA-ríkjunum að-
ild að þeim samningi!
Lilja D. Alfreðsdóttir utanríkis-
ráðherra aftekur ekki aðild Breta
að EFTA. Hún sagði föstudaginn
12. ágúst við norsku fréttastofuna
NTB að fjölgaði ríkjum í klúbbi
fengi hann venjulega meiri al-
þjóðleg áhrif. Það væri ótímabært
að útiloka aðild Breta að EFTA.
Afstaða utanríkisráðherra Ís-
lands er raunsærri en afstaða
norska ráðherrans. Fráleitt er að
fæla Breta frá viðræðum um aðild
að EFTA þegar við blasir að EES-
samningurinn með sérákvæðum
fyrir þá í krafti 112. gr. hans getur
falið í sér viðunandi aðild þeirra að
innri markaðnum þó ekki væri
nema til bráðabirgða.
Norðmenn eru nú stóri og í
mörgu tilliti ráðandi aðilinn EFTA-
megin í EES-samstarfinu. Þeim líð-
ur vel í því hlutverki, nöldur
norskra ESB-aðildarsinna í garð
EES-samningsins er að vísu leiði-
gjarnt og í flestu ómaklegt. Norð-
menn vilja ekki endilega missa for-
ræðið sem stærsta EFTA/EES--
þjóðin í hendur Bretum.
Ólíklegt er, svo að ekki sé meira
sagt, að hik Norðmanna nú breytist
í andstöðu við EFTA-aðild Breta
komist hún á dagskrá. Norðmenn
eiga mikið undir viðskiptum við
Breta og hafa engan hag af ágrein-
ingi um þau við þá.
Eftir Björn
Bjarnason »Gagnrýni á aðild
Breta að EES er
m.a. um rétt þeirra til að
takmarka fjölda innflytj-
enda til Bretlands. Þeir
ættu að geta það eins og
Liechtensteinar.
Björn Bjarnason
Höfundur er fyrrv. ráðherra.
EFTA/EES-aðild er hagstæð fyrir Breta