Morgunblaðið - 19.08.2016, Síða 19

Morgunblaðið - 19.08.2016, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016 Fjöruferð Ferðamaður stillir sér upp til myndatöku á syllu á stuðlabergi við Reynisfjöru í Mýrdal. Margir ferðalangar leggja leið sína um fjöruna til að skoða þetta sérkennilega náttúrufyrirbæri. Ómar Nú eru tæpir tveir mánuðir liðnir frá ákvörðun meirihluta Breta um að segja sig úr Evrópusamband- inu. Hrakspár um að allt færi á annan end- ann yrði niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni 23. júní þessi hafa ekki ræst. David Cameron forsætisráð- herra sagði af sér 24. júní enda lagði hann allt undir og taldi víst að meirihlutinn vildi að Bretar yrðu áfram í ESB. Theresa May innanríkisráðherra varð forsætisráðherra 13. júlí. Um síðustu helgi sýndi könnun á vegum netblaðsins The Independent að May var orðin vinsælasti stjórn- málamaður Bretlands. Áður hafði Boris Johnson, núverandi utanrík- isráðherra, notið þess heiðurs í nokkur misseri. May og Johnson voru á öndverð- um meiði í afstöðunni til ESB. Hún vildi vera áfram í ESB, hann úr- sögn. Það kom því nokkuð á óvart að May skyldi skipa Johnson utan- ríkisráðherra í stjórn sinni. Til að ávinna sér enn meira traust meðal úrsagnarsinna skipaði hún við hlið Johnsons tvo úrsagnarmenn að auki ráðherra í utanríkisráðuneyt- inu: Liam Fox fer með utanríkisvið- skiptamál og David Davis fer með Brexit-mál, það er samninga vegna ESB-úrsagnar Breta. Vilji May er að áfram verði um eitt ráðuneyti að ræða með þremur ráðherrum. Þetta skipulag stuðlar þó ekki að sátt og samlyndi og nú hefur verið lekið bréfi frá Fox sem vill skipta ráðuneytinu, hann stjórni utanríkisvið- skiptaráðuneyti en Johnson fari með hefð- bundin utanríkis- og öryggismál, þar á með- al yfirstjórn leyniþjón- ustunnar MI6 og hler- unar- og fjarnjósna- miðstöðvarinnar GCHQ. Johnson og valda- miklir embættismenn utanríkisráðuneytisins snúast harkalega gegn tillögu Fox og bú- ast nú einnig til varnar ef Davis krefst þess að Brexit-mál verði sett beint undir sína stjórn í formlega nýju ráðuneyti. Byrjað frá grunni Davis segir að hann verði að handvelja „mestu snillingana“ inn- an stjórnarráðsins til að vinna fyrir sig í Department for Exiting the European Union, ráðuneytinu um úrsögn úr Evrópusambandinu. Hann segist jafnframt hafa tíu um- sækjendur um hvert starfanna 250 sem um sé að ræða. Innan breska stjórnarráðsins er sem sagt erfitt að finna sérfræðinga til að gera alþjóðlega viðskipta- samninga. ESB hefur gert alla slíka samninga fyrir hönd Breta síðan 1973. Bresku sérfræðingarnir á þessu sviði starfa fyrir ESB og er óvíst hvort þeir vilja ganga í þjón- ustu bresku ríkisstjórnarinnar. Þar fyrir utan er breskum stjórnvöldum óhjákvæmilegt að þjálfa sérstakan hóp manna til að glíma við fulltrúa Evrópusambandsins sjálfs vegna úrsagnarinnar. Þekkingarskortur, reynsluleysi og óljós samningsmarkmið tefja framkvæmd vilja bresku þjóðar- innar um ESB-úrsögn. Einmitt þess vegna hefur Theresa May sagt að hún vilji ekki hefja tveggja ára samningsferli um úrsögnina sam- kvæmt 50. grein Lissabon- sáttmálans fyrr en eftir næstu ára- mót. Til úrsagnarinnar kæmi þá síðla árs 2019. Skömmu eftir að Davis tók við ráðherraembættinu voru fréttir í blöðum um að hann íhugaði ein- hverja Kanada-lausn gagnvart ESB. Fráleitt er að ætla að hún tryggi Bretum það sem þeir vilja: aðild að innri markaði ESB. Aðeins eitt ráð dugar til þess: aðild að EFTA og að samningnum um evr- ópska efnahagssvæðið (EES). Bretar og EES-samningurinn Vanþekking breskra stjórnmála- manna og álitsgjafa á þeim kostum sem eru fyrir hendi gagnvart ESB birtist meðal annars í lítilsvirðingu þeirra á EES-samningnum og full- yrðingum um að niðurlæging felist í aðild EFTA-ríkjanna, Íslands, Liechtensteins og Noregs, að hon- um. Christopher Booker, dálkahöf- undur The Sunday Telegraph, sker sig úr meðal breskra blaðamanna vegna þekkingar sinnar á innviðum ESB. Hann fagnar því sunnudaginn 14. ágúst sem ljósgeisla í dimmri þokunni um ESB-úrsögnina að David Davis ætli bráðlega að heim- sækja Noreg. Booker segir réttilega að engin önnur leið en EES-samningurinn tryggi Bretum, eftir brotthvarf þeirra úr ESB, aðild að innri mark- aði ESB. Meirihluti Breta vilji njóta sameiginlega markaðarins, líka flestir þeirra 48% sem sögðust vilja vera áfram í ESB. Vonandi ræði Davis EES-aðild við Norðmenn enda sé það í samræmi við vilja Theresu May og ráð þeirra emb- ættismanna sem best séu að sér. Í gagnrýni á aðild Breta að EES- samningnum er jafnan sagt að hann tryggi þeim ekki rétt til að tak- marka fjölda innflytjenda til Bret- lands. Þessi fullyrðing stenst ekki. Liechtensteinar hafa rétt til slíkrar takmörkunar í krafti 112. gr. EES- samningsins. Hik Norðmanna Elisabeth Vik Aspaker, EES- ráðherra í Noregi, sagði nýlega í samtali við Aftenposten að ekki væri víst að Bretar ættu erindi í EFTA, Fríverslunarsamtök Evrópu. Hvert EFTA-ríkjanna fjögurra (Íslands, Liechtensteins, Noregs og Sviss) hefur neitunar- vald um hvort fjölga eigi aðildar- ríkjum. Aspaker sagðist ekki vita hvað Bretar vildu, það væri þó ekki endilega Norðmönnum í hag að svo fjölmenn þjóð gengi í EFTA og raskaði öllu jafnvægi þar. Í The Guardian var sagt að yrði Bretum haldið utan EFTA jafngilti það að þeir fengju ekki aðild að innri markaðnum með EES- samningnum. Á það var bent á móti að vildi ESB veita Bretum EES- kjör en EFTA-ríkin stæðu gegn því gæti ESB einfaldlega rift samn- ingnum við EFTA-ríkin, samið við Breta og boðið EFTA-ríkjunum að- ild að þeim samningi! Lilja D. Alfreðsdóttir utanríkis- ráðherra aftekur ekki aðild Breta að EFTA. Hún sagði föstudaginn 12. ágúst við norsku fréttastofuna NTB að fjölgaði ríkjum í klúbbi fengi hann venjulega meiri al- þjóðleg áhrif. Það væri ótímabært að útiloka aðild Breta að EFTA. Afstaða utanríkisráðherra Ís- lands er raunsærri en afstaða norska ráðherrans. Fráleitt er að fæla Breta frá viðræðum um aðild að EFTA þegar við blasir að EES- samningurinn með sérákvæðum fyrir þá í krafti 112. gr. hans getur falið í sér viðunandi aðild þeirra að innri markaðnum þó ekki væri nema til bráðabirgða. Norðmenn eru nú stóri og í mörgu tilliti ráðandi aðilinn EFTA- megin í EES-samstarfinu. Þeim líð- ur vel í því hlutverki, nöldur norskra ESB-aðildarsinna í garð EES-samningsins er að vísu leiði- gjarnt og í flestu ómaklegt. Norð- menn vilja ekki endilega missa for- ræðið sem stærsta EFTA/EES-- þjóðin í hendur Bretum. Ólíklegt er, svo að ekki sé meira sagt, að hik Norðmanna nú breytist í andstöðu við EFTA-aðild Breta komist hún á dagskrá. Norðmenn eiga mikið undir viðskiptum við Breta og hafa engan hag af ágrein- ingi um þau við þá. Eftir Björn Bjarnason »Gagnrýni á aðild Breta að EES er m.a. um rétt þeirra til að takmarka fjölda innflytj- enda til Bretlands. Þeir ættu að geta það eins og Liechtensteinar. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra. EFTA/EES-aðild er hagstæð fyrir Breta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.