Morgunblaðið - 19.08.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
tímabilum. Í heild verði borað 3.000
metra eftir jarðvegssýnum og sé
hvert sýni um 4,3 cm í þvermál.
Einnig verði tekin jarðvegssýni í
skurðum sem áætlað sé að fylla við
lok rannsókna.
Gullleit á Vopnafirði
Icelandic Resources kemur að
alls átta málmleitarverkefnum á Ís-
landi. Meðal annars hefur fyrir-
tækið sótt um leyfi til gullleitar við
Vopnafjörð. Að sögn Vilhjálms mun
ljóst verða eftir 4-6 vikur hvort
leyfi verður veitt. „Við fundum
svæði þar sem er hugsanleg málm-
myndun og við sendum sýni utan
til greiningar sem beðið er eftir,“
segir Vilhjálmur.
göngu gerðar til þess að skilgreina
magnið í berginu með það að
leiðarljósi að meta hvort gullið sé í
vinnanlegu magni eða ekki.
Að sögn Vilhjálms þarf gullið að
vera 5-10 grömm í hverju tonni af
bergi til þess að það sé vinnanlegt.
„Hæstu gildin eru yfir 400 grömm
á tonn en kerfin á Íslandi eru frek-
ar staðbundin og lítil. Því mun
náman aldrei verða stór heldur
með miklu magni á litlu svæði. Nú
erum við að bora eftir ákveðnu
kerfi þar sem magnið er mælt eftir
fyrir fram ákveðnum aðferðum,“
segir Vilhjálmur. Í umsókninni um
framkvæmdaleyfið segir að áætl-
aður verktími sé til fyrri hluta árs-
ins 2017 og verði unnið á þremur
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Borgarráð samþykkti á fundi sín-
um í gær sérstakan samstarfs-
samning við Hönnunarmiðstöð Ís-
lands, en í samningnum felst meðal
annars að miðstöðin fær afnot af
húsnæðinu Aðalstræti 2 til ársloka
2019.
S. Björn Blöndal formaður borg-
arráðs segir í samtali við Morg-
unblaðið að Hönnunarmiðstöðin
hafi um nokkurt skeið leitað eftir
stuðningi af hálfu borgarinnar.
„Með þessu erum við að koma til
móts við óskir hennar um aðstoð
við að koma sér upp aðstöðu. Við
sjáum fyrir okkur að í miðbæjar-
flórunni geti falist mikil verðmæti í
því að þarna sé íslenskri hönnun
sýnd verðskulduð virðing og at-
hygli.“
Markmið flutnings að spara
Í Aðalstræti 2 hafa fram til þessa
verið til húsa Upplýsingamiðstöð
ferðamanna, Höfuðborgarstofa og
skrifstofa menningar- og ferða-
málasviðs. Borgarráð samþykkti
hins vegar á fundi sínum í síðustu
viku að flytja starfsemina alla í
Ráðhúsið.
Samkvæmt þeirri fundargerð er
markmið flutningsins að bæta þjón-
ustu við ferðamenn og spara hús-
næðiskostnað, en borgin hefur haft
húsið á leigu frá Reitum samkvæmt
samningi sem gildir til ársins 2022.
„Fer upp í leigugreiðslurnar“
S. Björn segir að líklega myndu
borgaryfirvöld þurfa að borga tölu-
vert hærra leiguverð fyrir húsnæð-
ið að loknum gildandi samningi, sé
litið til verðs á markaði nú.
„Þarna sáum við því möguleika
til að spara ákveðna peninga og
byggja upp þessa þjónustu til fram-
tíðar í Ráðhúsinu, því það eigum
við jú.“
Ráða má af samningnum við
Hönnunarmiðstöðina að Reykjavík-
urborg leggi samtals fram 25 millj-
ónir króna til hennar á næstu
þremur árum. Er þetta í fyrsta
sinn sem borgin skuldbindur sig til
að greiða henni reglubundin fram-
lög, en S. Björn segir það gert til
að koma til móts við leigugreiðsl-
urnar sem miðstöðin muni inna af
hendi til fasteignafélagsins Reita
fyrir húsnæðið, sem borgin fram-
leigir henni.
„Þetta fer upp í leigugreiðslurn-
ar og svo sjá þau fram á að afla sér
þarna nokkurra sértekna.“
Kom til tals að spara meira
Aðspurður játar S. Björn að til
tals hafi komið að framleigja hús-
næðið einhverjum öðrum aðila, og
fá þannig hærra leiguverð og meiri
sparnað fyrir borgarsjóð.
„Það hefði örugglega ekki verið
neitt mál að leigja þetta undir veit-
ingastað eða einhvers konar versl-
un með varning sem er miðaður að
ferðamönnum. En við sjáum meiri
hag í að styðja við starfsemi Hönn-
unarmiðstöðvar og um leið nota
húsnæðið til að gera skapandi
greinum hærra undir höfði.“
Þá segir í samningnum að borgin
muni reyna að stuðla að því að mið-
stöðin geti starfað í Aðalstræti út
gildistíma leigusamningsins.
„Ég held að til lengri tíma verði
þetta miðbænum mikil lyftistöng,“
segir S. Björn.
Hönnunarmiðstöð fær Aðalstræti
Reykjavíkurborg framleigir Hönnunarmiðstöð Íslands húsnæði Reita við Aðalstræti Milljóna
króna framlag borgarinnar mun svo renna í leigugreiðslur Spara átti húsnæðiskostnað með flutningi
Þrír af þeim fimmtán stöðum sem rannsakaðir hafa
verið í Þormóðsdal standa undir lágmarkskröfum til
gullleitar, en gjarnan er miðað við yfir 3-4 grömm í
tonni. Boraðar hafa verið 32 holur í dalnum og sýndu
niðurstöður mest yfir 400 grömm af gulli í einu tonni,
þó einungis í einu sýni.
Gulleit í Þormóðsdal á sér ríflega aldargamla sögu. Í
grein í Morgunblaðinu frá mars 2013 undir fyrirsögn-
inni Var gullið ekki glópagull? segir að upphafið sé
það þegar Einar H. Guðmundsson bóndi í Miðdal veitti athygli kvartsi,
það er ljósleitum, hörðum steinum, sem barst niður úr Þormóðsdal
með Seljadalsánni sem rennur í Hafravatn, árið 1905. Hann stofnaði
síðar Námufélag Íslands ásamt Steingrími Thomasson og Einari Bene-
diktssyni skáldi.
Boraðar hafa verið 32 holur
GULLLEIT Í ÞORMÓÐSDAL Á SÉR YFIR ALDARGAMLA SÖGU
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Fyrirtækið Icelandic Resources
hefur sótt um framkvæmdaleyfi til
frekari rannsókna á gulli í bergi í
Þormóðsdal. Áður hafa verið gerðir
tugir rannsóknarborhola í dalnum
og þykja sum svæði gefa tilefni til
þess að kanna nánar forsendur til
námuvinnslu.
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson er
stjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri Iceland Resources.
Fyrirtækið stendur að rannsókn-
unum í samstarfi við North Atl-
antic Mining Associates Ltd (UK),
þar sem Vilhjálmur er einnig fram-
kvæmdastjóri, og JV Capital ehf.
sem hefur gert samstarfssamning
við Melmi ehf. um rannsóknir og
boranir innan rannsóknarleyfis
Melmis sem Orkustofnun gaf út ár-
ið 2004. Félagið Melmi er í eigu
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og
var leyfið framlengt á þessu ári að
því er fram kemur í umsókn um
framkvæmdaleyfi sem send hefur
verið til Mosfellsbæjar. Málið verð-
ur tekið fyrir hjá skipulagsnefnd
bæjarins á þriðjudag í næstu viku.
Aðspurður segir Vilhjálmur að síð-
ustu boranir hafi verið gerðar árið
2006 og verið sé að fylgja þeim
rannsóknum eftir. „Þær rannsóknir
sýndu að hugsanlega væri hag-
kvæmt að vinna gullið þar en þá
voru ákveðnar aðstæður uppi sem
gerðu það að verkum að niðurstöð-
unum var ekki fylgt eftir,“ segir
Vilhjálmur. Hann segir að þær bor-
anir sem fari fram núna séu ein-
Ljósmynd/Icelandic Resources
Þormóðsdalur Sótt hefur verið um framkvæmdaleyfi til gullrannsókna á bergi í Þormóðsdal.
Enn vonir um gull-
vinnslu í Þormóðsdal
Hafa sótt um framkvæmdaleyfi hjá Mosfellsbæ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Meirihluti atvinnuveganefndar Al-
þingis mun leggja til að Alþingi stað-
festi fyrstu þrjú ár nýgerðs búvöru-
samnings. Að endurskoðun lokinni
verði næsti hluti samningsins lagður
fyrir Alþingi og bændur til staðfest-
ingar. Sama gerist við seinni endur-
skoðun. Í raun er því verið að stytta tíu
ára búvörusamning niður í þrjú ár.
Forystumenn atvinnuveganefndar
kynntu hugmyndir sínar á blaða-
mannafundi í gær. Jón Gunnarsson
lagði áherslu á að allir umsagnaraðilar
sem komu fyrir nefndina hefðu verið
sammála um að vilja öflugan, hefð-
bundinn landbúnað.
Nefndin hefur farið yfir þá gagnrýni
sem komið hefur fram í umsögnum og
vill koma til móts við helstu gagnrýn-
isatriði með breyttri framkvæmd á
samningnum. Eitt atriðið er langur
samningur. Annað er skortur á sam-
ráði við samningsgerðina. Það þriðja
er ný aðferð við verðlagningu búvara.
Þjóðarsamtal um landbúnað
Þótt nefndin stytti í raun samning-
inn segir Jón Gunnarsson að tíu ára
samningurinn verði áfram rammi.
Ekki standi til að breyta þeim stuðn-
ingi sem þar komi fram.
Til að bregðast við gagnrýni á skort
á samráði mun nefndin leggja til að
skipaður verði samráðsvettvangur
sem Jón kallar þjóðarsamtal um fram-
tíð íslensks landbúnaðar, til undirbún-
ings endurskoðuninni eftir þrjú ár.
Samráðsvettvangurinn á einnig að
fjalla um það hvaða breytingar þurfi að
gera til að samkeppnislög geti tekið til
mjólkurvinnslu.
Meirihluti nefndarinnar hefur ekki
skilað nefndaráliti eða breytingartil-
lögum en Jón segir að það verði gert
fljótlega í næstu viku. Minnihluti
nefndarinnar hefur tekið þátt í
vinnunni, fyrir utan fulltrúa Bjartrar
framtíðar, en afstaða minnihlutans
skýrist ekki fyrr en málið verður af-
greitt úr nefnd.
Búvörusamn-
ingur styttur
Breytingar ræddar á Alþingi
Þingmenn Samfylkingarinnar
leggja til að ákvæði um opin-
bera verðlagningu búvara verði
felld úr lögum. Jafnframt verði
felld út heimild mjólkuriðnaðar-
ins til sameiningar og sam-
starfs. Kemur þetta fram í
breytingartillögu þingmanna
flokksins við búvörulaga-
frumvarpið. Þingmenn Bjartrar
framtíðar leggja til að frum-
varpinu verði hafnað og gengið
til samninga um framlengingu
núverandi búvörusamninga.
Út með verð-
lagsákvæði
SAMFYLKINGIN