Morgunblaðið - 19.08.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
ARC-TIC RETRO
ÍSLENSK HÖNNUN
VERÐ AÐEINS:
www.arc-tic.com
29.900,-
SVIÐSLJÓS
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Perla norðursins ehf. hefur óskað eftir
því við umhverfis- og skipulagsráð
Reykjavíkur að fá að byggja nýtt
mannvirki vestan Perlunnar í Öskju-
hlíð. Breyta þarf deiliskipulagi Öskju-
hlíðar vegna þess-
ara áforma, en
aukning í bygg-
ingarmagni er 550
fermetrar, eða um
10% frá núverandi
fermetramagni á
lóðinni. Mann-
virkið verður að
mestu neðan-
jarðar og tengist
núverandi bygg-
ingu. Þar á svo-
kallað stjörnuver að vera, eða það sem
á ensku heitir Planetarium.
Perla norðursins leigir Perluna í
Öskjuhlíð af Reykjavíkurborg og und-
irbýr að þar verði sett upp vegleg
náttúrusýning, með áherslu á norður-
ljós, jarðvarma, eldvirkni, ferskvatn,
hafið, jökla, loftslagsbreytingar og líf-
ríki Íslands.
Opnuð í tveimur áföngum
Finnbogi Jónsson er stjórnar-
formaður Perlu norðursins. „Við
stefnum að því að opna sýninguna í
tveimur áföngum. Á miðju næsta ári
ætlum við að opna fyrri hlutann og ári
síðar, eða um mitt ár 2018, seinni hlut-
ann,“ sagði Finnbogi í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Hann segir að í fyrri hlutanum
verði manngerður íshellir sem verður
í hitaveitutankinum og 80 metra löng
göng.
„Íshellirinn verður gerður eins og
jöklar myndast. Við byggjum frysti-
klefa og svo verður snjókoma þar í
nokkra mánuði, og einhver eldgos
verða á tímanum, þannig að öskulög
verða í ísnum.
Þegar gestir sýningarinnar hafa
gengið í gegnum göngin, þá ganga
þeir upp á aðra hæð í hitaveitutank-
inum. Þá mun birtast mikið og marg-
breytilegt útsýni, þannig að gesturinn
fær það á tilfinninguna að hann sé
staddur í einhverri náttúruperlu Ís-
lands,“ sagði Finnbogi.
Myndun jökla
Hann segir að þarna muni verða
mjög mikil upplýsingamiðlun um jökla
og myndun þeirra, áhrif bráðnunar
jökla, áhrif manns og náttúru og
hvernig það samspil hefur verið í ald-
anna rás, áhrif af hlýnun jarðar og
hvað gerist í heiminum ef hitastig
hækkar um tilteknar gráður.
„Það sem var verið að fjalla um í
umhverfis- og skipulagsráði Reykja-
víkur í vikunni var hugmynd okkar
um að byggja stjörnuver, eða það sem
kallast á ensku Planetarium, utan við
aðalbygginguna, að mestu neðan-
jarðar. Við förum sex metra ofan í
jörðina, en kúpullinn kemur upp úr
jörðinni, svona fjóra fimm metra, en
hann mun ekki trufla umhverfið, því
hann verður þakinn grasi, rétt eins og
Þúfan úti á Granda,“ sagði Finnbogi.
160 manna kvikmyndasalur
Finnbogi segir að niðri í stjörnu-
verinu eigi að vera 160 manna kvik-
myndasalur, þar sem verði sýningar
innan á kúplinum, þ.e. 360 gráður.
„Þarna ætlum við að sýna kvik-
myndir úr íslenskri náttúru fyrst og
fremst. Þarna geta gestirnir komið og
farið í smávegferð um landið og
kynnst okkar helstu náttúruperlum.
Þannig geta þeir í raun skipulagt,
hvaða perlum þeir vilja fara og kynn-
ast af eigin raun. Þetta er auðvitað
kjörið tækifæri fyrir erlenda gesti sem
eru að hefja Íslandsheimsókn sína, að
koma og sjá okkar helstu náttúru-
perlur og geta svo í framhaldinu skipu-
lagt hvert þeir vilja fara.
Auk þess býður þessi salur í stjörnu-
verinu upp á ýmsa aðra sýningar-
möguleika, eins og að sýna norður-
ljósin og fleira,“ sagði Finnbogi.
Miklu betri lausn
Finnbogi sagði að fyrstu áform
Perlu norðursins hefðu verið að
stjörnuverið yrði í aðalbyggingu Perl-
unnar, en horfið hafi verið frá þeim.
„Það mælti einfaldlega mjög margt
með því að við færum með stjörnuverið
út fyrir Perluna og við teljum þá lausn
sem við höfum hannað vera miklu
betri.“
Aðspurður hvað þau hjá Perlu norð-
ursins áætluðu að yrði heildarkostn-
aður við verkefnið sagði Finnbogi: „Við
erum að gera ráð fyrir að þetta verði
allt í allt í kringum tveir milljarðar
króna, með virðisaukaskatti. Við erum
búin að fjármagna verkefnið. Helm-
ingur fjármögnunar er hlutafé og það
sem upp á vantar verður lánsfé, sem
þegar hefur verið tryggt að við fáum.“
Finnbogi segir að Reykjavíkurborg
hafi verið mjög jákvæð gagnvart
áformum Perlu norðursins um nátt-
úruminjasafn og sýningu í og við Perl-
una og því séu þau hjá Perlu norðurs-
ins vongóð um að umsóknin um breytt
deiliskipulag vegna áformanna um
stjörnuverið verði samþykkt af borg-
arstjórn.
Ekki liggur fyrir hvenær Reykja-
víkurborg tekur ákvörðun gagnvart
umsókn Perlu norðursins, né heldur
hvenær framkvæmdir í Öskjuhlíð á
vegum Perlu norðursins munu hefj-
ast. Finnbogi segir að það muni ráðast
af því hvenær Reykjavíkurborg verði
búin að afgreiða umsóknina, en hann
segir að stutt sé í að framkvæmdir
inni í hitaveitutanknum, vegna íshell-
isins og 80 metra löngu ganganna, geti
hafist.
Reisa stjörnuver við Perluna
Perla norðursins ehf. óskar eftir að fá að reisa jarðhýsi vestan við Perluna í Öskjuhlíð Stofn-
kostnaður náttúrusýningar í og við Perluna áætlaður um 2 milljarðar króna Opnuð 2017 og 2018
Teikning/Ingimundur Sveinsson
Stjörnuver Áform forsvarsmanna Perlu norðursins eru um veglega náttúrusýningu í og við Perluna í Öskjuhlíð,
með áherslu á norðurljós, jarðvarma, eldvirkni, ferskvatn, hafið, jökla, loftslagsbreytingar og lífríki Íslands.
Mosfellsbær hyggst skipta út dekkja-
kurli á þeim gervigras- og sparkvöll-
um sem eru í bænum. Framkvæmdin
mun kosta bæinn um 124 milljónir
króna og er áætlað að skipt verði um
kurlið á næstu þremur árum. Í stað-
inn verður lagt iðnaðargúmmí sem
ekki er unnið úr dekkjum. Í minnis-
blaði sem lagt var fyrir bæjarráð
Mosfellsbæjar kemur fram að sýni
hafi verið tekin af völlunum og þau
send til útlanda til greiningar. Um-
hverfisstofnun sendi nýlega frá sér
tilmæli þar sem segir að í dekkjakurli
sem unnið sé úr hjólbörðum séu
hættuleg efni. Ekki hafi þó tekist að
sýna fram á að dekkjakurlið sé skað-
legt. Engu að síður sé æskilegt að
velja annars konar gúmmí til að setja
á vellina, sem hafi lægri styrk skað-
legra efna.
Bryndís Haraldsdóttir formaður
bæjarráðs, segir að fyrst verði lagt
nýtt gúmmí á battavelli við skóla en
árið 2019 verði skipt um gúmmí á
gervigrasvöllunum við Varmá. „Það
er óyggjandi að í dekkjakurli séu
hættuleg efni, og við viljum að börnin
okkar njóti vafans,“ segir Bryndís um
ástæðu þess að gengið var til fram-
kvæmda. Að sögn hennar var einhug-
ur um málið í bæjarráði. vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gervigras Skipt verður um gúmmí á gervigrasvöllum í Mosfellsbæ.
Börnin í Mosfellsbæ
látin njóta vafans
Dekkjakurl fjarlægt á þremur árum
Perla norðursins ehf. er í eigu
eftirfarandi félaga: Landsbréf
– Icelandic Tourism Fund I,
framtakssjóður í eigu Lands-
bankans, Icelandair Group og
íslenskir lífeyrissjóðir, Perlu-
vinir – 80 manna hópur sem
hvatt hefur til uppbyggingar
náttúrusýningar í Perlunni í
Öskjuhlíð, og Salta ehf. &
Lappland ehf.
Fjárfestingageta félagsins
er um það bil fjórir milljarðar
króna.
Reykjavíkurborg óskaði í
byrjun janúar á þessu ári eftir
umsóknum áhugasamra aðila
um rekstur á sýningu í Perl-
unni sem fjalla skyldi á metn-
aðarfullan hátt um náttúru Ís-
lands. Perla norðursins var
eini aðilinn sem skilaði inn til-
lögu.
Ræður yfir
4 milljörðum
PERLA NORÐURSINS EHF.
Finnbogi
Jónsson
Tölvuteikning/Ingimundur Sveinsson
Perlan Náttúrusýning Perlu norðurins ehf. á að verða fjölbreytt og glæsileg.