Morgunblaðið - 19.08.2016, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Framundan er 100. listmunauppboð Gallerís Foldar sem verður með hátíðarbrag.
Viltu selja listaverk?
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Við leitum að úrvalsverkum á þetta tveggja daga uppboð.
Nánari upplýsingar í síma 551-0400 og hjá fold@myndlist.is
Við óskum meðal annars eftir verkum eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval,
Kristínu Jónsdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B. Þorláksson,Svavar Guðnason,
Nínu Tryggvadóttur, Georg Guðna, Kristján Davíðsson, Gunnlaug Blöndal og
Gunnlaug Scheving.
Ennfremur er eftirspurn eftir verkum eftir
Eggert Pétursson, Karólínu Lárusdóttur og Erró.
Þetta eru fyrstu ól-ympíuleikarnir semég dæmi á og vænt-
anlega ekki þeir síðustu,“
segir Anton Gylfi Pálsson
handboltadómari, sem er
staddur ásamt félaga sín-
um, Jónasi Elíassyni, úti í
Brasilíu að dæma á
Ólympíuleikunum í Rio de
Janeiro.
„Við erum búnir að
dæma þrjá leiki en svo vit-
um við ekki hvað gerist
meir,“ sagði Anton þegar
blaðamaður ræddi við hann
í gær. „Það eru leikir á
morgun [í dag] en við fáum
ekki að vita fyrr en um
kvöldið þegar við erum
komnir inn á hótelherbergi
hvort við eigum að dæma
daginn eftir. Ætli ég eyði
ekki afmælisdeginum í
íþróttahúsinu. Þegar ég varð þrítugur var ég að dæma í Austurríki
á Evrópumóti undir 20 ára landsliða en það er ekki það að ég sé að
reyna að vera fjarverandi. Þetta hittist þannig á. Ég ætla að reyna
að gera samt vel við mig í tilefni dagsins og fá mér brasilískan kaffi-
bolla.
Við höfum verið hérna í tvær og hálfa viku og það hefur verið
gaman að taka þátt í havaríinu. Við höfum farið á alla viðburði,
horft á sundið, körfuna, dýfingar, bara nefndu það, en höfum líka
reynt að gera meira en að vera á íþróttasvæðinu og skoðað áhuga-
verða staði hérna eins og Jesústyttuna.“
Anton er sölustjóri hjá Íslensk-ameríska. „Þeir fá kærar þakkir
fyrir að styðja mig í þessu og gefa mér frí frá vinnunni. Það er ekki
sjálfsagður hlutur. Eins gæti ég aldrei gert þetta án stuðnings að
heiman þar sem konan og börnin styðja mig 100% í þessu,“ en Anton
er kvæntur Hönnu Andrésdóttur, sem vinnur hjá Capacent, og eru
börn þeirra Emilíana Guðrún átta ára og Jakob Jarl fjögurra ára.
„Handboltinn tekur allan tíma sem ég hef,“ segir Anton spurður
um áhugamál. „Ef maður ætlar sér að ná langt þarf maður að eyða
tíma í þetta. Golfkylfan þarf að bíða betri tíma.“
Athygli vakti þegar Anton og Jónas voru sendir heim af HM
kvenna í fyrra eftir mistök eftirlitsdómarans, en nú eru þeir mættir
á ólympíuleikana til að dæma. „Það má því segja að við höfum unnið
fullnaðarsigur í þessu máli.“
Á Tenerife Anton með krökkunum í sumar.
Dæmir á Ólympíu-
leikunum í Ríó
Anton Gylfi Pálsson er fertugur í dag
T
víburasystkinin Arndís
og Jón Sigurður fædd-
ust 19.8. 1956 á Litlu-
eyri í Bíldudal og ólust
þar upp í stórum systk-
inahópi. Systkinin fengu að taka
þátt í bústörfunum og fengu verk-
efni við hæfi á hverjum tíma. Eftir
unglingapróf í Barnaskólanum á
Bíldudal lá leiðin í Héraðsskólann
á Núpi. Eftir það skildu leiðir Jóns
og Arndísar og Arndís fór í
Fósturskólann.
Leikskólastjóri í Björtuhlíð
Eftir nám í Fósturskólanum tók
við vinna í leikskóla, fyrst í Austur-
borg, síðan Sólbakka. Arndís sem
oft er kölluð Addý, tók þátt í opn-
un leikskólans Marbakka í Kópa-
vogi. Árið 1988 flutti fjölskyldan til
Tálknafjarðar og bjó þar í átta ár.
Þar fór Arndís að kenna í grunn-
skólanum og menntaði sig sem
grunnskólakennari og sérkennari.
Eftir að fjölskyldan flutti aftur til
Reykjavíkur var aftur sest á skóla-
bekk og Arndís fór í framhaldsnám
í stjórnun. Síðan þá hefur hún
starfað sem leikskólastjóri hjá
Reykjavíkurborg. Fyrst sem leik-
skólastjóri í Múlaborg í fimm ár en
þar nýttist sérmenntun í sér-
kennslu einkar vel.
Árið 2006 réð Arndís sig sem
leikskólastjóra í leikskólann Sól-
bakka. Fimm árum síðar voru leik-
skólarnir Sólbakki og Hamraborg
sameinaðir og heitir hinn samein-
aði leikskóli Bjartahlíð. „Að starfa
sem stjórnandi í leikskóla er
skemmtilegt og krefjandi. Hver
dagur er ný upplifun. Mér finnst
að varla nokkuð geti verið meira
gefandi og skemmtilegra en þetta
starf. Ég hef verið afar lánsöm,
unnið með góðu fólki, kynnst fjöl-
mörgum börnum og foreldrum.“
Framkvæmdastjóri Láss
Jón Sigurður fór í Iðnskólann á
Patreksfirði og lærði húsasmíði og
öðlaðist sveinspróf, meistara- og
byggingastjóraréttindi. Síðar sótti
Jón sér réttindi til meiraprófs og
vinnuvélaréttindi.Eftir iðnskólanám
hóf Jón störf í byggingariðnaði hjá
bróður sínum Hannesi og starfaði
hjá honum allt til ársins 1993. Þá
keypti hann vélsmiðjuna á Bíldudal
og hóf sjálfstæðan rekstur í járn-
smíði og byggingariðnaði. Hann
stofnaði þá sitt eigið fyrirtæki, Lás
ehf. á Bíldudal sem hann hefur
rekið síðan ásamt eiginkonu sinni.
Jón starfar sem framkvæmda-
stjóri fyrir Lás ehf og vinnur öll
störf sem til falla hjá fyrirtækinu.
Fljótlega tók starfsemin breyt-
ingum á þann veg að í dag starfar
Jón mest við jarðvegsframkvæmdir
og byggingariðnað ásamt því að
reka steypustöð. Jón hefur verið
farsæll í starfi og rekið sitt fyr-
irtæki ásamt góðu starfsfólki sem
unnið hefur hjá honum í gegnum
tíðina. Jón hefur staðið fyrir mörg-
um stórum verkefnum, byggingu
íþróttahúsa og iðnaðarhúsnæðis.
„Undanfarin ár hef ég tekið þátt í
mörgum spennandi jarðvegs-
framkvæmdum og að mestu unnið
við plægingu jarðkapla víða um
land og haft mjög gaman af.“
Arndís og Jón ætla að halda upp
á daginn með nánustu skyldmenn-
um.
Arndís Bjarnadóttir og Jón Bjarnason – 60 ára
Systkinin og móðirin Á 90 ára afmæli Vigdísar fyrir fjórum árum. Systkinin eru í aldursröð, frá vinstri til hægri.
Tvíburarnir Addý og Jón
Kópavogur Eva Þórkatla Jónasdóttir fæddist 24. september 2015 kl. 2.32. Hún
vó 3.250 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Engilráð Ósk Einarsdóttir og
Jónas Þorkelsson.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón