Morgunblaðið - 06.09.2016, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 6. S E P T E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 208. tölublað 104. árgangur
ÍSLENSKI HÓPUR-
INN BOÐINN
VELKOMINN
NÝ HLJÓMSVEIT
FARA VÍÐA Í
ÁSTARMÁLUM
KVENNA
KRONIKA ROKKAR 12 HÁDEGISTÓNLEIKARÖÐ 30ÓLYMPÍUMÓT FATLAÐRA ÍÞRÓTTIR
Sigtryggur Sigtryggsson
Guðni Einarsson
Komum skemmtiferðaskipa til Ís-
lands hefur fjölgað mikið á síðustu ár-
um. Ný met hafa verið slegin á hverju
ári og nú þegar liggur fyrir að enn eitt
metið verður slegið á næsta ári, 2017.
Samkvæmt upplýsingum Ernu
Kristjánsdóttur, markaðsstjóra
Faxaflóahafna, hefur 121 skipakoma
verið skráð í Reykjavík næsta sumar
og með þessum skipum verða 132
þúsund farþegar. Til samanburðar
verða skipakomur á þessu ári 114 og
farþegar 109 þúsund. Árið 2015 voru
skipakomur 108 og farþegar 100 þús-
und.
Skráning fyrir árið 2018 er hafin
hjá Faxaflóahöfnum og nú þegar er
búið að skrá liðslega 40 skipakomur
það ár.
Mikil aukning í vetrarflugi
Alls hyggjast fjórtán flugfélög
halda uppi vetraráætlun milli Íslands
og samtals 57 áfangastaða austan
hafs og vestan á tímabilinu frá lokum
október til loka mars í vetur. Að sögn
talsmanns ISAVIA hafa svo mörg
flugfélög aldrei flogið til jafnmargra
áfangastaða að vetri frá Keflavíkur-
flugvelli og næsta vetur. Sætafram-
boð í vetraráætluninni mun aukast
um 58,3%.
Að sögn ISAVIA hefur vetrar-
ferðamennska hingað aukist jafnt og
þétt. Með henni nýtast innviðir mun
betur og rekstrargrundvöllur ferða-
þjónustunnar styrkist.
Met sett í lofti og á legi
Farþegaflutningar á sjó og í lofti ná nýjum hæðum Stefnir í met í komum
skemmtiferðaskipa 2017 Vetrarfarþegum flugfélaganna fjölgi um tæp 60%
MNýtt met verður … » 10 og 18
Aukningin 35%
» Alls fóru 894.535 farþegar
um Keflavíkurflugvöll í nýliðn-
um ágústmánuði. Er það
35,4% fjölgun frá fyrra ári.
» Það sem af er árinu hafa
tæplega 4,5 milljónir farþega
farið um völlinn. Fjölgunin er
tæplega 35% milli ára.
Formaður samningarnefndar sveit-
arfélaganna, Inga Rún Ólafsdóttir,
segir það mikil vonbrigði að kenn-
arar hafi fellt nýgerðan kjarasamn-
ing. „Við teljum okkur hafa gengið
mjög langt í því að mæta kröfum fé-
lagsins, þess vegna kemur það á
óvart að hann hafi verið felldur.“
Hún segist ekki geta svarað því
hvað valdi óánægju kennara en ým-
islegt hafi verið lagað frá síðasta
samningi sem felldur var í júní.
Ólafur Loftson, formaður Félags
grunnskólakennara, segir samn-
inganefndina ekki hafa lagt samn-
inginn fram nema af því að hún teldi
að hann ætti möguleika. Samningur-
inn hafi verið lagfærður og þeir
þættir sem mesta óánægjan var
með frá síðasta samningi lagaðir og
öðru bætt í. En að mati félagsmanna
hafi það ekki verið nóg.
,,Það sem er aðalmálið að mínu
mati er að félagsmönnum finnst
launaprósentan ekki hækka nægj-
anlega mikið, sem sagt almenn
óánægja með beinar launahækkanir.
Staðan er alvarleg og þurfum við
bæði að líta inn á við og út á við til
að sjá hvað megi bæta,“ segir Ólaf-
ur. »2
„Staðan er
alvarleg “
Segjast hafa geng-
ið langt til móts við
kröfur kennara
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hóf undankeppni heimsmeistara-
mótsins með jafntefli gegn Úkraínu í Kiev í gærkvöld, 1:1. Jón Daði Böðv-
arsson og Alfreð Finnbogason fögnuðu þegar Alfreð kom Íslandi yfir með
marki á upphafsmínútum leiksins. » Íþróttir
AFP
Gott stig í
Úkraínu
Í heild fékk Birgitta Jónsdóttir
672 atkvæði í prófkjöri Pírata á
höfuðborgarsvæðinu af 1.034 sem
kusu. Þar af fékk hún 160 í 1. sætið
eða 15,5%. Kosningin var rafræn og
var kosið eftir Schulze-aðferð sem
leiðir til þess að sá sem er oftast
valinn fram yfir alla aðra frambjóð-
endur er líklegastur til þess að
lenda í efsta sæti. Niðurstöður um
atkvæðaskipti úr prófkjörinu hafa
verið birtar á kosningavef Pírata.
Þar má sjá að algengt var að
kjörseðill innihéldi einn frambjóð-
anda. Sú var raunin á 81 kjörseðli
eða á 7,8% kjörseðla. »11
Oddviti Pírata fékk
15,5% í fyrsta sætið
„Þetta var ein belja sem kom þarna
og var að elta svarta á,“ segir Daði
Lange Friðriksson, gangnamaður í
Mývatnssveit. En í réttum í síðustu
viku birtist hreindýr við Norðmels-
gjá sem er á austur afrétti, ekki
langt frá Dettifossi.
Sjaldgæft er að hreindýr sjáist á
þessum slóðum. Dýrið var það sem
kallast línubrjótur en svo kallast
dýr sem farið hafa yfir sauðfjár-
veikivarnarlínu.
Í Mývatnssveitinni er óalgengt að
hreindýr sjáist, þótt þau hafi verið
þar á fyrri hluta síðustu aldar.
En þessi hreinkýr birtist allt í
einu í smalamennskunni og að sögn
manna í réttunum virtist hún elta
svarta á. Kindunum var ekkert vel
við hreindýrið, nema kannski þess-
ari svörtu sem virtist taka henni
betur.
Hreindýrið rann inn í hólfið eins
og féð og var í aðhaldi yfir nóttina.
Eftir að gangnamenn höfðu sam-
band við héraðsdýralækni gaf hann
það út að fella þyrfti kúna. Það var
gert. borkur@mbl.is
Hreindýr birtist
óvænt með fénu
Ljósmynd/Þórhallur Guðmundsson
Utanveltu Hreindýrið elti svarta á hvert sem hún fór. Kindurnar voru ekki hrifnar af því nema sú svarta.