Morgunblaðið - 20.09.2016, Page 6

Morgunblaðið - 20.09.2016, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2016 Morgunblaðið/Golli Haförn Konungur íslenskra fugla. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Viðkoma íslenska hafarnarstofnsins í sumar var sú slakasta frá árinu 2006 og komust aðeins 27 ungar á legg. Í fyrra komust upp 36 ungar úr 28 hreiðrum. Meðalungafjöldi í hreiðri nú var með minnsta móti eða 1,08 ungar á hreiður sem er það minnsta frá árinu 1993. Að meðaltali hafa komist upp 1,3 ungar úr hreiðri. Talið er að rúmlega 220-250 hafernir séu á Íslandi. Þeir hefja varp 5-8 ára gamlir nái þeir sér í maka og óðal. Enginn ungi komst á legg á Vest- fjörðum í sumar. Við norðanverðan Breiðafjörð komu 18 pör upp fjórum ungum. Fimm ungar komust upp úr þremur hreiðrum við Húnaflóa. Haf- arnarstofninn þar hefur styrkst veru- lega á undanförnum árum en hafernir voru að segja má útdauðir þar í heila öld. Nú halda ernir til á sex óðulum af þeim 20 sem þekkt eru við flóann. Arnarvarpið gekk ágætlega við sunnanverðan Breiðafjörð og við Faxaflóa. Kristinn Haukur Skarphéðinsson, sviðsstjóri dýrafræði við Náttúru- fræðistofnun Íslands og hafarnasér- fræðingur, segir að skýringarnar á því hvað olli lélegri viðkomu hafarn- arstofnsins í sumar liggi ekki í augum uppi. Þó sé vitað um tvennt sem hafði áhrif á varpárangurinn. Misfórst hjá mörgum pörum „Annars vegar var óvenjulítið af tvíburum í arnarhreiðrum í sumar. Þeir voru bara í tveimur hreiðrum af 25. Oftast eru tveir ungar í um þriðj- ungi hreiðranna. Ef það hefði verið nú þá hefði ungatalan verið verið nær því að vera eðlileg,“ sagði Kristinn. Hins vegar nefndi hann hvað varpið misfórst hjá mörgum pörum. Síðasta vor voru hafarnarpör 74 talsins og reyndu 52 þeirra varp, sem er hlut- fallslega með mesta móti. Aðeins 25 hafarnarpör komu upp ungum og því misfórst varp í meira en helmingi hreiðranna. Ástæðu þess að varp misferst má oftast rekja til slæms tíðarfars eða fæðuskorts. Fæðuleifar eru hirtar við arnarhreiður einu sinni á ári í rann- sóknarskyni. Í sumar fundust óvenju- litlar leifar við flest hreiður. Það þarf ekki að þýða að æti hafi verið lítið heldur að ernir hafi fært ungum sín- um meira af fiski. Leifar af honum varðveitast ekki jafn vel og bein og fiður fugla. Byrjað var að vigta haf- arnarunga í fyrra til að kanna ástand þeirra frá ári til árs. Síðar verður hægt að sjá hvernig ungarnir eru miðað við fyrri ár. Vorið var betra nú en í fyrra víðast hvar. Í fyrra var ágætur varpárangur þrátt fyrir leiðinlegt vor. Kristinn sagði að það hvað sum svæðin skæru sig úr með lélegt varp benti til þess að veðrið eða fæðuframboðið á þeim svæðum hefði haft áhrif. Stykkis- hólmur er í kjarna útbreiðslusvæðis hafarna og hefur verið tekið mið af veðurfarinu þar. Veður getur þó verið allt öðruvísi á Vestfjörðum eða við norðurströnd Breiðafjarðar en í Stykkishólmi. Hafernir eiga t.d. erfiðara með að veiða sér fisk til matar þegar er mikill vindur. Viðkoma hafarnarstofnsins var slök  Lakasta viðkoma hafarna frá 2006  Meðalfjöldi unga á hreiður í sumar var sá minnsti frá árinu 1993 SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Mikil þörf er á umferðarstýringu á þjóðvegum landsins að mati Jónasar Guðmundssonar, verkefnastjóra slysavarna ferðamanna hjá Slysa- varnafélaginu Landsbjörg. Hann sér um vefsíðuna Safetravel.is þar sem m.a. er komið upplýsingum til er- lendra ferðamanna um akstur á Ís- landi. „Það er nýtt umhverfi á vegum landsins með öllum þessum mikla fjölda bílaleigubíla. Við höfum engan veginn náð að fylgja eftir uppbygg- ingu á vegakerfinu svo að því miður þá kemur þetta slys ekkert á óvart,“ segir Jónas og vísar þar til banaslyss sem varð nýverið á Sólheimasandi þegar ekið var á erlendan ferðamann sem hafði lagt bíl sínum úti í kanti með það í huga að skoða norðurljós- in. Þarf að gera útskot og stoppi- staði á völdum stöðum Á Safetravel.is má lesa upplýs- ingar um akstursaðstæður á Íslandi og er nú verið að uppfæra hann með enn betri upplýsingum. Einnig er verið að uppfæra stýrisspjaldið sem á að vera í hverjum bílaleigubíl, á því eru upplýsingar um hvernig er best að keyra við íslenskar aðstæð- ur. Jónas segir að nýju spjöldin verði myndrænni og á þeim verði sérstaklega fjallað um það að stoppa úti í kanti. „Vefurinn og spjaldið eru bara hjálpartæki, við þurfum að vera með umferðarstýr- ingu á þjóðvegum landsins, eins og við erum með stýringu í þéttbýli. Víða um heim er bannað að stoppa á veginum og sektir við því. Á ákveðnum stöðum, sem gott er að stoppa á, eru útbúin útskot og svo eru bara skilti sem segja að það sé áningarstaður eftir 10 km og svo eftir 5 km og svo framvegis. Það á að vera fyrir löngu búið að taka þennan kafla frá Reykjavík og austur í Skaftafell, og víðsvegar um landið, og útbúa útskot og stopp. Svo þarf að fylgja því eftir með löggæslu. Lögreglan þarf að fá fjármagn til að geta haft bíla á ferðinni til að hjálpa fólki við að fara eftir þeim reglum sem eru í gildi. Það eru háar sektir víða erlendis við því að stoppa úti í kanti, sérstaklega á hraðbrautum, og þjóðvegur eitt er okkar hraðbraut um landið,“ segir Jónas. Vantar slagkraftinn Jónas segir að það sem vanti fyrst og fremst sé fjármagn frá stjórn- völdum og meiri slagkraftur í að vinna verkefnin. „Við verðum að hugsa að á næsta ári verða hér 2,2 milljónir ferða- manna og hvernig getum við útbúið innviðina þannig að við getum tekið á móti þeim á öruggan og ánægjuleg- an hátt.“ Spurður hvort við séum hrædd við að stýra ferðamönnum jánkar Jónas því. „Eina stýringin sem við erum aðeins farin að sjá hér er á Þingvöll- um, þar eru bílastæði og ákveðinn fjöldi sem má kafa í Silfru. Annars stýrum við mjög lítið, hvort sem það er með stígum, leiðbeiningum eða fjöldatakmörkunum. Það má ekki gleyma því að stýring er ekki boð og bönn, heldur til að hjálpa fólki að ferðast á öruggan hátt og upplifa og njóta. Hvort sem það er með pöllum, útsýnisstöðum, takmörkuðum hraða eða reglugerðum.“ Stýring er ekki boð og bönn  Höfum engan veginn náð að fylgja eftir uppbyggingu á vegakerfinu  Vantar umferðarstýringu á þjóðvegum landsins  Sekta þá sem leggja úti í kanti Safetravel.is » Helstu ábendingar sem koma inn á Safetravel.is snúa að merkingarleysi á göngu- ferðum á hálendinu. „Fólk er vant því erlendis að það séu betri stikur, betri upplýs- ingaskilti og að geta keypt ákveðna þjónustu í skálum,“ segir Jónas. „Líka í sambandi við árnar, bæði í gönguferðum og bílferðum, þá er ekkert sem hjálpar þeim yfir ána.“ » „Við höfum líka fengið ábendingar um að á sumum stöðum finnst fólki mannfjöld- inn vera það mikill að því finnst öryggi sínu ógnað.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Á ferðalagi Banaslys varð nýverið á Sólheimasandi þegar ekið var á erlendan ferðamann sem hafði lagt bíl sínum úti í kanti. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Sólheimasandur Skrokkur af flugvél sem var í eigu Bandaríkjahers vekur mikinn áhuga erlendra ferðamanna sem leið eiga um Sólheimasand. Lögreglan á Suðurlandi hefur mestar áhyggjur af þremur stöð- um í umdæminu þar sem mikil slysahætta skap- ast vegna fjölda bíla sem lagt er úti í kanti. Eru það Sólheima- sandur, þar sem ferðamenn stoppa til að ganga að flugvélarflakinu, Þorvaldseyri und- ir Eyjafjöllum þar sem ferðamenn stoppa beggja vegna vegarins við Gestastofuna og töluvert er af gangandi umferð. Þá er það Kerið í Grímsnesi, þar er bílastæði en á annasömum dögum leggja ferða- menn í vegköntum, jafnvel báðum megin svo að hætta skapast. Víðir Reynisson, lögreglufulltrúi á Suðurlandi, segir mestar áhyggj- ur vera af þessum þremur stöðum þó að vinsælir stoppistaðir séu ansi margir. „Vegagerðin er að skoða það að reyna að setja útskot víða við vegi svo að það séu fleiri mögu- leikar fyrir fólk að stoppa og taka myndir og kannski dregur þá úr hinu þó það komi aldrei í veg fyrir það,“ segir Víðir. Lögreglunni hafa borist margar tilkynningar frá ökumönnum sem hafa næstum því verið búnir að keyra niður ferðamenn í vegkönt- um. Víðir segir að ökumenn séu áhyggjufullir vegna þessarar hegð- unar. „Í flestum tilfellum eru þetta ekki bara tveir eða þrír staðir heldur er þetta almenn hegðun að stoppa í vegkanti, horfa ekkert í kringum sig og hlaupa yfir veginn. Það má aldrei gleyma ábyrgð ein- staklingsins, við þurfum öll að bera ábyrgð á okkur sjálfum. Það á við erlenda ferðamenn eins og aðra en það þarf kannski að hjálpa þeim að skilja betur aðstæðurnar og for- varnir og fræðsla eru lykilatriðið í því.“ Víðir segir að þeir ætli að setjast niður með Vegagerðinni og fá hennar mat á stöðunum. „Það þarf að horfa á þetta heildstætt líka því að það að laga eitthvað á einum stað getur haft áhrif á eitthvað annað, það þarf að horfa á hvað það þýðir að búa til útskot og hvort það skapi einhverja aðra hættu.“ Með þrjá staði í sigtinu Víðir Reynisson Hafernir eru orðnir fastagestir á hverju ári við stór vatnsföll á Suðurlandi og sjást þeir oft á ári við Þingvallavatn. Ernirnir hafa þó ekki byrjað varp á þeim slóðum. Líklega kemur að því, að mati Kristins Hauks Skarp- héðinssonar, hafarnasérfræð- ings hjá NÍ. Arnarvarp er að þéttast við sunnanverðan Breiðafjörð og þar eru um 30 pör á tiltölulega litlu svæði. Á árum áð- ur urpu hafernir strjált í Eyjafirði, við Skjálf- anda, á Aust- fjörðum og víða á Suðurlandi. Flestir við Breiðafjörð HAFERNIR SJÁST VÍÐA Kristinn Haukur Skarphéðinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.