Morgunblaðið - 20.09.2016, Page 11

Morgunblaðið - 20.09.2016, Page 11
„Við fengum 2-3 ágæta róðra á handfæri, en í síð- ustu viku var erfið veðrátta og vetrarbræla vikuna þar á undan þannig að það er ekki mikið að frétta af sjósókn og aflabrögðum héðan frá Grímsey,“ sagði Svafar Gylfason, skipstjóri á Konráð EA 90 í gær. Hann og Óskar Sigurpálsson eru tveir á bátnum og er myndin tekin á föstudag skammt frá Grímsey. Fjórir dagróðrarbátar hafa í haust róið frá Gríms- ey og aflinn verið misjafn, en í gær fengu þeir á Konráð 2,1 tonn á 15 bala. Þeir róa ýmist með hand- færi eða línu eftir aðstæðum og sækja um 10 sjómíl- ur út frá eynni. Svafar segir að í haust hafi all- margir bátar verið að veiðum vestan og norðan við Grímsey. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Róa ýmist með línu eða handfæri frá Grímsey Veðrið setur strik í reikninginn FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is VIÐ HÖFUM TÆKIFÆRI TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR ATBURÐ SEM FELUR Í SÉR OFBELDI. NOTUM VIÐ TÆKIFÆRIN? SMÁRALIND www.skornirthinir.is Stærðir 28-35 Rennilás að innanverðu Loðfóðraður Verð 6.995 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Bolir Str. M-XXXL – 2 litir Kr. 6.900 Lagt er til að embætti umboðsmanns borgarbúa verði sérstök eining í skipuriti Reykjavíkurborgar og hafi sjálfstæðan fjárhag frá næstu ára- mótum að telja. Jafnframt er lagt til að umboðsmaður starfi í umboði stjórnkerfis- og lýðræðisráðs en ekki forsætisnefndar eins og verið hefur. Tillöga forsætisnefndar um þessa skipulagsbreytingu var lögð fram á síðasta fundi borgarráðs sem sam- þykkti að vísa henni til afgreiðslu borgarstjórnar. Embætti umboðsmanns borgarbúa var stofnað á árinu 2013 og Ingi B. Poulsen ráðinn. Ingi segir að embættið hafi á sínum tíma verið sett upp sem tilraunaverkefni og ákveðið að það myndi heyra undir forsætisnefnd á til- raunatímabilinu. Fyrir tveimur árum var forsætisnefnd falið að skilgreina betur hlutverk umboðsmanns og gera tillögu um varanlega staðsetningu innan stjórnkerfisins. Ingi segir að hlutverk forsætisnefndar sé ólíkt störfum umboðsmanns. Hann telur því vel til fundið að embættið starfi í umboði stjórnkerfis- og lýðræðisráðs. Það ráð ætti einna mestan samhljóm með störfum umboðs- manns. „Með því fær umboðsmaður beina rödd inn í póli- tíkina,“ segir Ingi. Hann reiknar ekki með að þessi breyting hafi nein áhrif á dagleg störf starfsmanna emb- ættisins. Í tillögu forsætisnefndar er jafnframt gert ráð fyrir því að stjórnkerfis- og lýðræðisráð endurskoði samþykkt um umboðsmann. helgi@mbl.is Umboðsmaður færður til  Embætti umboðsmanns borgarbúa starfi í umboði stjórnkerfis- og lýðræðisráðs Hlutverk » Hann veitir borgarbúum sem ósáttir eru við máls- meðferð og ákvarðanir borg- arinnar leiðbeiningar og álit. » Tekur mál til athugunar að eigin frumkvæði. Hann tekur einnig á móti og rannsakar upplýsingar um réttarbrot, vanrækslu og mistök. Ingi B. Poulsen mbl.is Helgi Bjarnason Anna Sigríður Einarsdóttir Skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri (VMA) hefur sett inn- kaupabann á starfsmenn skólans vegna erfiðrar fjárhagsstöðu. Ríkið hefur skrúfað fyr- ir greiðslur til skólans, nema vegna launa og húsaleigu. Í bréfi sem skólameist- arinn sendi for- eldrum nemenda eftir „krísufund“ með starfsfólki í gærmorgun kem- ur fram að inn- kaupabannið gæti leitt til þess að ekki yrði hægt að kaupa aðföng til skólans og í ákveðna verklega áfanga. VMA skuldar ríkissjóði 26 millj- ónir króna og sagði Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari við mbl.is að ef skólanum bærust engin fjár- framlög á næstunni yrði að bíða með frekari innkaup þar til nemendur væru búnir að greiða efnisgjöld. Inn- kaupabann hefði skiljanlega fljótt áhrif á nám, sér í lagi á verklegum brautum, eins og matvælabrautinni. Hún tekur þó fram að efnisgjöld sem innheimtast hjá nemendum sé hægt að nota til innkaupa. Geti staðið við skuldbindingar Sigríður segir að skólastjórnend- ur hafi fengið fyrirspurnir frá nem- endum í gær, eftir að fréttir bárust af því að mögulega þyrfti að senda nemendur heim. „Auðvitað hafa þeir áhyggjur. Þetta er nám 1.000 nem- enda sem liggur hér undir,“ segir hún við mbl.is. Í bréfinu til foreldra tekur hún fram að ekki hafi verið tilkynnt um lokun skólans. Hún segist hafa verið í sambandi við menntamálaráðu- neytið og verið sé að leita leiða til að skólinn geti staðið við skuldbinding- ar sínar gagnvart nemendum og að sjálfsögðu einnig ríkissjóði. Í bréfinu bendir hún á að fleiri framhaldsskólar nái ekki að spara nógu mikið enda kerfið undirfjár- magnað. Margir skólanna hafi verið reknir með halla á fyrri hluta ársins. „Ég leyfi mér að vera bjartsýn fyrir hönd skólans og náms nemenda og vonandi fáum við frekari svör á næstu dögum,“ segir skólameistar- inn í bréfi til foreldra. Banna efnis- kaup hjá VMA Sigríður Huld Jónsdóttir  Ríkið stöðvar greiðslur  Nám í hættu Slökkvilið Akureyrar var kallað út í Naustaskóla kl. rúmlega átta í gær- morgun vegna vatnstjóns. Heita- vatnslögn hafði gefið sig og var heitt vatn á um 200 fermetra svæði. Að sögn varðstjóra í slökkviliðinu virkaði holræsakerfi skólans ekki sem skyldi og var því mikið vatn á gólfinu í einni álmu skólans þegar slökkviliðið kom á vettvang. Rúma klukkustund tók að hreinsa upp vatn af gólfum og ljóst er að tjón- ið er töluvert, að sögn varðstjórans. Má þar nefna skápa og dyra- umbúnað, en tjónið var aðallega í skrifstofurými skólans og því hægt að halda uppi kennslu í skólanum í gær. Naustaskóli varð fyrir vatnstjóni Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Akureyri Dælubíll að störfum við Naustaskóla í gærmorgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.