Morgunblaðið - 20.09.2016, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2016
www.fr.is
FRÍTT VERÐMAT
ENGAR SKULDBINDINGAR
HRINGDU NÚNA
820 8081
sylvia@fr.is
Sylvía G. Walthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
Salvör Davíðsdóttir
Nemi til lögg.fasteignasala
Brynjólfur Þorkellsson
Sölufulltrúi
Sjöfn Ólafsdóttir
Skrifstofa
Á þessum degi fyrir 30 árum, 20.
september 1986, voru lands-
samtökin Vímulaus æska formlega
stofnuð að viðstöddu fjölmenni í
Háskólabíói. Meðal gesta á stofn-
fundinum var Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti Íslands, og að stofnun
samtakanna stóðu foreldrar sem
tóku höndum saman um að sporna
við vímuefnaneyslu ungmenna.
Á fyrsta ári samtakanna var
ýmsu komið á legg, m.a. Foreldra-
símanum sem hefur verið opinn all-
ar götur síðan. Nokkrum vikum síð-
ar var rekstur samtakanna
tryggður í fyrstu landssöfnuninni
sem útvarpsstöðin Bylgjan, sem þá
var nýstofnuð, stóð fyrir.
Árið 1999 setti Vímulaus æska á
stofn Foreldrahús þar sem starf-
semi samtakanna er nú til húsa og
bjóða nú samtökin m.a. upp á nám-
skeið og stuðningshópa fyrir börn,
unglinga og foreldra og veita
fræðslu í skólum.
Á næstu vikum verður tímamót-
anna minnst með ýmsum hætti, að
því er segir í fréttatilkynningu.
Ljósmynd/Vímulaus æska
Stofnun Á stofnfundinum var Vigdís Finnbogadóttir, þá forseti Íslands. Við
hlið hennar situr Bogi Arnar Finnbogason, fyrsti formaður samtakanna.
Samtökin Vímu-
laus æska 30 ára
Fjölbreytt starfsemi og stuðningur
Stýribúnaði umferðarljósa á nokkr-
um gatnamótum í Reykjavík hefur
verið breytt á þann veg að ljósin
munu tryggja forgang neyðar-
bifreiða. Á næstunni verður síðan
stjórnbúnaði komið fyrir í neyðar-
bílum slökkviliðsins, en hann virkar
þannig að forgangskerfið, sem kall-
ast græna bylgjan, fer sjálfkrafa í
gang þegar bifreiðarnar aka á bláum
ljósum.
Kerfið var formlega prufukeyrt í
gær og það voru þeir Jón Viðar
Matthíasson slökkviliðsstljóri og
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
sem það gerðu. Sú leið sem var
prufukeyrð liggur frá Slökkvistöð-
inni í Skógarhlíð um Bústaðaveg og
Snorrabraut að Sæbraut. Í tilkynn-
ingu frá Reykjavíkurborg segir að
markmiðið sé að tryggja aukið ör-
yggi í neyðarakstri, bæði fyrir þá
sem eru í honum og ekki síður al-
menna umferð. Einnig sé lykilatriði
að stytta viðbragðstíma þegar fólk
sé í lífshættu, einkum þegar umferð
er mikil.
Leið strætisvagna um gatnamót
verður einnig gerð greiðari. Ekki er
um forgangsstýringu að ræða, held-
ur mun tæki í vagninum skynja þeg-
ar hann nálgast gatnamót og þá
lengist tíminn sem grænu ljósin loga
í akstursstefnu hans. Verið er að
uppfæra búnað í vögnunum til að
virkja þennan möguleika.
Samstarfsverkefni margra
Samstarfsaðilar í verkefninu eru
Reykjavíkurborg, Vegagerðin,
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og
Strætó. Auk þeirra hafa velferðar-
ráðuneytið og Sjúkratryggingar Ís-
lands komið að verkefninu vegna
sjúkrabifreiða.
Einnig mun lögreglan geta komið
inn í verkefnið síðar meir. Kostn-
aður vegna verkefnsins er tæpar 60
milljónir króna og er hlutur Reykja-
víkurborgar 64%.
Morgunblaðið/Júlíus
Sjúkrabíll Þegar græna bylgjan verður komin í notkun verður bílum í for-
gangsakstri sjálfkrafa tryggður forgangur á umferðarljósum í Reykjavík.
Neyðarbílar á
grænni bylgju
Markmiðið er að tryggja öryggi
Íslenskur karlmaður, Valdimar
Svavarsson, sem ekkert hafði spurst
til í rúma viku í Alicante á Spáni, er
kominn í leitirnar. Systir mannsins
sagði í samtali við mbl.is í gær að
maðurinn væri heill á húfi. Hún fór
út að sækja bróður sinn sem var ekki
með nein skilríki á sér eftir að hafa
verið rændur.
Greint var frá því um helgina að
síðast hefði spurst til Valdimars í ís-
búð í Alicante 10. september en þá
hafði hann haft samband við bróður
sinn. Embætti ríkislögreglustjóra
sendi fyrirspurn til lögregluyfir-
valda á Spáni vegna Valdimars og
var lýst eftir honum á Facebook-síðu
Íslendinga sem búa á Spáni. Systir
Valdimars heyrði í íslenskum eig-
anda ísbúðarinnar, sem var ekki á
staðnum, en hann tjáði henni að
Valdimar hefði sagt starfsmanni
búðarinnar frá því að hann hefði ver-
ið rændur. Hann var ekki með síma á
sér, ekkert veski og ekkert vegabréf.
Erfiður tími fyrir fjölskylduna
„Hann er fundinn,“ sagði Rósa
Ólöf Ólafíudóttir, systir Valdimars, í
samtali við mbl.is í gær. Hún var þá
stödd í Alicante en hún fór þangað til
að aðstoða og sækja bróður sinn.
Aðspurð sagði Rósa að bróðir
hennar hefði snúið aftur í sömu ísbúð
í fyrradag og þá gat hann látið vita af
sér. „Ég fór samdægurs út og svo er-
um við að redda passanum og hitta
ræðismanninn,“ sagði Rósa og bætti
við að þau myndu fljúga til Íslands í
kvöld.
Rósa sagði að það hefði verið erf-
iður tími fyrir fjölskylduna á meðan
ekkert spurðist til Valdimars. Sem
betur fer amaði ekkert að honum, en
hann hafði hins vegar þurft að gista
utandyra undanfarnar nætur eftir að
hafa þurft að yfirgefa hótelið sem
hann gisti á.
Fannst heill á
húfi í Alicante
Var rændur fé, síma og skilríkjum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Alicante Ekkert spurðist til Valdi-
mars Svavarssonar í rúma viku.
Alþingi samþykkti í gær að heimila
fullgildingu Parísarsamnings Sam-
einuðu þjóðanna um loftslagsmál
með öllum greiddum atkvæðum. Þar
með verður Ísland meðal fyrstu 55
ríkjanna sem þurfa að fullgilda
samninginn til að hann taki gildi.
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis-
og auðlindaráðherra, undirritaði
samninginn fyrir Íslands hönd í New
York í apríl síðastliðnum, en hann
skuldbindur ríki heims til að vinna
saman að því að bregðast við lofts-
lagsbreytingum og áhrifum þeirra.
Lilja Alfreðsdóttir utanríkis-
ráðherra mælti svo á Alþingi fyrir
fullgildingu samningsins fyrr í þess-
um mánuði. Samningurinn öðlast
gildi þegar a.m.k. 55 ríki með 55% af
heimslosun hafa fullgilt hann. Nú
þegar hafa 28 ríki sem bera ábyrgð á
tæplega 40% losunar heimsins full-
gilt samninginn, þeirra á meðal
Bandaríkin og Kína.
Samkvæmt fréttatilkynningu
fagna Sigrún Magnúsdóttir, um-
hverfis og auðlindaráðherra, og
Lilja Alfreðsdóttir utanríkis-
ráðherra þeirri ákvörðun Alþingis
að fullgilda samninginn.
Fullgilda Parísarsamning SÞ
Ísland meðal fyrstu ríkja til að fullgilda loftslagssamning