Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Qupperneq 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Qupperneq 22
HÖNNUN Laugardaginn 1. október verður flóa-, nytja- og antíkmark-aður opinn í safnaðarheimili Neskirkju klukkan 10-16. Kaffi- hús verður opið á staðnum og allir velkomnir. Flóamarkaður Vesturbæjar 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.10. 2016 Íbúðin liggur vel við birtu í fallegu steinhúsinu íVesturbænum. Anna segir lítið hafa þurft að gera viðkaup á íbúðinni annað en að lýsa parketið og mála veggi. Aðspurð segir Anna heimilisstílinn undir áhrifum frá Skandinavíu. „Mér finnst heillandi að hafa heimilið bjart en á sama tíma heimilislegt. Stílhrein hönnun ásamt per- sónulegum munum einkennir heimilið.“ Anna leggur jafnframt áherslu á að íbúðin nýtist á sem bestan hátt og að einstakir hlutir fái að njóta sín. „Ég er óhrædd við að færa einstaka hluti á mismunandi staði innan heimilisins til að sjá hvort þeir njóti sín betur þar,“ útskýrir hún. Anna segir íbúðina eins konar óskilgetið barn IKEA og Epal, en í gegnum tíðina hafa flestir munir verið keyptir þar. „Aðrar verslanir sem okkur þykja ein- staklega fallegar eru Norr11 og Snúran,“ svarar hún spurð hvar þau versli helst inn á heimilið. Hvað varðar innblástur segist Anna hafa gaman af því að setjast niður á kaffihús og fletta í gegnum hönnunar- tímarit í leit að innblæstri og hugmyndum. „Svo má segja að innblásturinn komi frá alls konar áttum, hvort sem það er úr verslunum, frá vinkonum eða bláókunn- ugum einstaklingum sem ég hef séð á Instagram.“ Spurð að lokum hvort eitthvað sé á óskalistanum inn á heimilið segir Anna parið vera á höttunum eftir fallegum brúnum leðurstól. „Við höfum ekki enn fundið þann eina rétta. Einnig langar húsfreyjuna í gólflampa en húsbóndinn er spennt- ari fyrir pottum og japönskum hnífum.“ Morgunblaðið/Ófeigur Horft úr stofunni inn í borðstofu. Þar blasir við PH-ljós sem Anna keypti í Kaupmannahöfn. Stílhrein hönnun og skandinavísk áhrif Á fallegri hæð í Vesturbænum í Reykjavík hafa þau Anna Fríða Gísladóttir, sem sér um markaðsmál fyrir Domino’s, og Sverrir Falur Björnsson, verkefnastjóri á samskiptasviði hjá WOW Air, búið sér fallegt heimili sem einkennist af stílhreinni hönnun og persónulegum munum. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Borðstofan er eftir- lætisstaður Önnu á heimilinu, með fullt borð af gestum að skála yfir góðum mat. Önnu Fríðu finnst heillandi að hafa heim- ilið bjart og heimilslegt.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.