Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Blaðsíða 30
Inga Kristjánsdóttir, vörustjóri heilsuvara og næringarþerapisti hjá Lyfju og
Heilsuhúsinu, segir það mikilvægt að birgja sig vel upp af vítamínum og stein-
efnum fyrir veturinn og styrkja þannig og hlúa að ónæmiskerfinu. Hún bendir
lesendum á þessi allra nauðsynlegustu sem gott er að taka yfir kuldaskeiðið en
eru ekki síður góð fyrir kroppinn allan ársins hring.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.isInga Kristjánsdóttir
Vítamín fyrir veturinn
HEILSA
Ný rannsókn sem gerð var í Michigan-háskóla í Bandaríkjunum sýnir fram á að hamingju-
samur maki getur haft heilsusamleg og góð áhrif á mann. Fyrri rannsóknir sýna fram á að
glaður maki hafi góð áhrif á geðheilsuna, en nú er það sannað að það hefur einnig góð áhrif
á líkamlega heilsu. Glaður og hamingjusamur maki styður mann áfram, hvetur til heilsu-
samlegs mataræðis og hreyfingar og stuðlar þannig að góðri heilsu.
Glaður maki fyrir heilsuna
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.10. 2016
Lífsnauðsynleg fitusýra sem
mörgum reynist erfitt að fá nóg
af úr fæðu. Omega 3 hefur
bólgueyðandi virkni en vinnur
einnig taugakerfi, húð, hári og
liðum gagn. Mýkir og nærir í
vetrarkuldanum.
Omega 3
Bráðnauðsynlegt fyrir okkur hér á
norðurhjara, þar sem við fáum ekki
nægilegt sólarljós stóran hluta ársins
til að mynda nægilegt D vítamín. Einn-
ig er erfitt að fá nægilegt magn úr
fæðu, nema þá fyrir þá sem eru vit-
lausir í þorskalifur! Hver og einn þarf
að finna út hve mikið hann þarf að
taka en margir læknar ráðleggja að
minnsta kosti 2000 AE á dag fyrir
fullorðna manneskju.
D-vítamín
Magnesíum
Bráðnauðsynlegt steinefni sem hefur
margvíslega virkni í líkamsstarfsemi.
Meðal annars til að halda taugakerfinu
sterku og eðlilegri vöðvavirkni. Ef fólk
finnur fyrir krömpum sinadráttum, svefn-
truflunum þá gæti líkamann vantað magn-
esíum. Magnesíum er þrælgott bætiefni
fyrir þá sem vilja halda andlegri og líkam-
legri orku yfir vetrartímann.
Góðgerlar fyrir
meltinguna
Það gerist allt í meltingunni og ef hún er ekki í lagi
þá er einhvernveginn fátt eins og það á að vera.
Streita, slæmt mataræði, kaffidrykkja og fleira
hafa slæm áhrif á þarmaflóruna. Að ekki sé talað
um ýmis lyf sem gera henni ógagn. Stór hópur
fólks þarf á sýklalyfjum að halda á veturna og þá er
að mínu mati bráðnauðsynlegt að taka inn
góðgerla fyrir meltinguna, þar sem lyfin
drepa jafnt vinveitta gerla sem
óvinveittar bakteríur!
Spirulina-þörungurinn, allskyns grænar
jurtablöndur í hylkjum eða dufti,
hveitigras, rauðrófuduft og fleira í
þeim dúr hefur verið vinsælt síðustu ár
og gagnast mörgum sem orkuskot yfir
vetrartímann. Margir nýta sér að
blanda slíku í drykki en aðrir
kjósa hylki eða töflur.
Orku-
gefandi
Þó margir hugsi vel um hvað þeir láta
ofan í sig þá reynist samt oft erfitt að fá
nægilegt magn vítamína, stein og snefil-
efna úr fæðu. Ein vönduð fjölvítamíntafla
gefur ákveðinn grunn þannig að ekki ætti
að þurfa að hafa áhyggjur af að
líkamann skorti neitt af þessum
grunnefnum í vetur.
Gott fjöl-
vítamín
Bætiefni sem
gagnast
taugakerfinu
Góðar B-vítamínblöndur geta stutt vel við öflugt
taugakerfi og hjálpað í baráttunni við streitu og
ofálag. Einnig eru til styrkjandi jurtir eins og Burnirót
(Arctic root), ginseng og fleiri sem hafa góð áhrif í
skammdeginu. Margar sérhannaðar blöndur eru til
sem geta aukið gleði og bætt minni og
einbeitingu. Margir þurfa á því að halda,
sérstaklega yfir vetrartímann.