Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Side 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Side 33
2.10. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 Nýverið kynnti Yves Saint Laurent nýja, endurbætta útgáfu af Touche Éclat farð- anum. Áferð farðans er léttur ljómi auk þess sem farðinn hylur sérlega vel. Farðinn inniheldur E-vítamín og helst full- kominn á húðinni í allt að 8 klukkustundir. Rimmel kynnir nýja varalitalínu hannaða af ofurfyrirsætunni Kate Moss í tilefni 15 ára samstarfsafmælis þeirra. Línan samanstendur af eftirlætis, rauðu og náttúrulegu varalitum Kate Moss. Nýtt Húrra 14.990 kr. Rokkaður eyrna- lokkur frá danska hönnunarhúsinu Maria Black. Flott fataslá væri draumur í forstofuna. Net-a-porter.com 129.700 kr. Hið fullkomna leðurpils frá Isabel Marant. Net-a- porter.com 36.000 kr. Leðurhanskar með kögri frá Prada. Í þessari viku... Sigurborg Selma sigurborg@mbl.is Leður er alltaf í tísku og er sérlega viðeigandi á haustin. Leður passar vel við önnur náttúruleg efni, til að mynda ull eða silki. Í vetrarlínum stóru tískuhúsanna mátti sjá mikið af leður- fatnaði og er bundna leðurpilsið frá Isabel Marant efst á mínum óskalista þessa dagana. Snúran 10.900 kr. Fallegur velúrpúði frá Semibasic sem væri fullkominn í sófann minn. Vero Moda 8.990 kr. Kósý peysa sem hent- ar í haustlægðirnar. Zara 7.995 kr. Glæsilegir pinnahælar í einu af heitasta skósniðinu um þessar mundir. Söngkonan og tískudrottningin Rih- anna sýndi aðra línu sína fyrir Fenty Puma á tískuvikunni í París í vikunni sem leið. Línan var einstaklega áhuga- verð en söngkonan sagði helstan inn- blástur hafa verið „Marie Antoi- nette í ræktinni.“ Í línunni mátti til að mynda sjá satín-korselett, blúndur, hettu- peysur og perlufestar, sem lík- legt þætti að franska drottn- ingin Marie Antoinette hefði klæðst í ræktinni. RIHANNA HANNAR FYRIR PUMA Marie Antoinette í ræktinni Línan er sérlega áhugaverð og greinilegt undir hvaða áhrifum hún er. Instagram/badgirlriri Á tískuvikuna mætirtískuelítan eins oghún leggur sig, vopn- uð glæsilegum tískufatnaði og snjallsímum þar sem stemn- ing, fatnaður og fræga fólkið er myndað og birt samstundis. Þetta gerir það að verkum að allir fá tækifæri til að fylgast með hápunktum tískuvik- unnar beint af Instagram- reikningum skærustu stjarn- anna. @kimkardashian @strassen_gerecht @kegrand @gigihadid @Pernilleteisbaek Tískuvikan á snjallsíma September er sannkallaður tískumánuður. Tísku- vikurnar eru ávallt í september auk þess sem vetrartískan tekur þá alfarið við af sumartískunni. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is @crfashionbook @vicktoriabeckham @thesartorialist@anna_dello_russo

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.