Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Side 34
stjaksetjarinn. Vísar það til þess að
uppáhaldsrefsing hans var að stjak-
setja menn; lífláta þá með því að reka
yddaðan staur upp í afturendann á
þeim.
Ekkert grimmilegt er þó að baki
Drakúlunafninu, sem merkir sonur
drekans og vísar til þess að faðir hans
Loks kemst maður á slóðir Dra-kúlu,“ var það fyrsta sem komupp í hugann þegar ljóst var
að leiðin lá til Rúmeníu. Svipmyndir
úr Nosferatu eftir Herzog og Dansi
vampýranna eftir Polanski birtust
fyrir hugskotssjónum og spurning
vaknaði hvort ráðlegt væri að taka
hvítlauk með í förina, eða óhætt væri
að treysta því að hann fengist á
áfangastað.
Förinni var heitið til Oradea, 300
þúsund manna borgar skammt frá
landamærum Ungverjalands. Borgin
er í Bihor-héraði, sem ekki er hluti af
hinni „eiginlegu“ Transylvaníu þar
sem greifinn blóðþyrsti átti heim-
kynni sín, en telst þó til Stór-
Transylvaníu.
Drakúla á hins vegar lítil ítök í
Rúmenum, þótt saga hans í hinum
ýmsu útgáfum hafi verið margsögð í
öllum hugsanlegum miðlum. Hann er
hugarfóstur írska rithöfundarins
Brams Stoker, sem sagðist hafa leit-
að í rúmenskar þjóðsögur, en kom
aldrei til Rúmeníu og notaði einkum
sitt eigið ímyndunarafl í bók sinni,
sem kom út 1897.
Greifinn á hins vegar að vera af-
komandi Vlads Tepes Drakúlu, sem
uppi var á 15. öld. Hann var þekktur
fyrir grimmd sína og fékk viðurnefnið
var heiðraður með heitinu Drakúl og
gerður að félaga í miðaldareglu sem
kennd er við dreka.
Frægðarför Drakúlu og vampýra
almennt um heiminn á seinni hluta
20. aldar fór hins vegar að mestu
framhjá Rúmenum á meðan þeir voru
í viðjum kalda stríðsins undir ógn-
arstjórn Nicolae Ceausescu. Urmull
minjagripa um Vlad og Drakúlu er
því til að koma til móts við túrista, en
ekki tilkominn af því að Rúmenar vilji
hampa arfleifð sinni.
Oradea er greinilega að ganga í
gegnum miklar breytingar um þessar
mundir. Í miðbænum blasa við glæsi-
Á mótum menningarheima
Í hugum margra tengist
Rúmenía hrollvekjum
og hefur neikvæða
ímynd, en þegar þangað
er komið blasir við fal-
legt land með merkilega
sögu á mótum margra
menningarheima.
Texti og myndir: Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Í miðbæ Oradea eru fallegar, nýupp-
gerðar byggingar frá fyrri öldum.
Undir kvöld fylltist himinninn af garg-
andi krákum svo dimmdi um stund.
Í miðbænum eru mörg hús í niðurníðslu. Hér er gömul opinber bygging klædd
dulum þannig að hún lítur út eins og draugahús, en gömul reisn skín í gegn.
Víða mátti sjá storka í stórum og miklum hreiðrum. Allar leiðslur eru ofan-
jarðar og hlýtur oft að vera erfitt að henda reiður á þeim.
FERÐALÖG Oft er hægt að leyfa sér meira þegar helsta ferðatímanum lýkurog haustar. Þegar kemur fram í október lækkar verð á hótelum ávinsælum ferðamannastöðum allt frá Dalmatíuströnd Króatíu til
ítölsku og frönsku rívíerunnar og Costa del Sol á Spáni.
Betri kjör á haustin
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.10. 2016
Feld
u
það