Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Qupperneq 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.10. 2016 Þ eir sem eru í sviðsljósi eða standa nærri því um skeið eru gjarnan spurðir sem svo, hvaða persóna hafi orðið þeim eftirminnilegust. Þá virð- ist stundum út frá því gengið að menn sem sjást í svip, svo ekki sé talað um lendi þeir saman á mynd, jafnvel óvart, séu þar með orðnir prófdómarar hvor á persónu annars, jafnframt vinir til lífstíðar. Hver eftirminnilegastur? Fyrir ekki mörgum árum var efnilegur stjórnmála- foringi myrtur í nágrannaríki okkar og þá spratt upp fólk hér og lýsti persónunni út í hörgul og sumir réðu sér varla fyrir sorg, enda höfðu þeir einu sinni setið með viðkomandi á fundi. Hver sá sem fengið hefur að lifa fram undir eftir- launaaldur og jafnvel eitthvað lengur og halda sæmi- legri andlegri heilsu á minningar um marga. Þegar slíkur er spurður fyrirvaralítið um eftirminnilegustu persónuna ræður hending svarinu. Við svoleiðis að- stæður er oftast einhver nefndur til sögunnar, sem nokkur upphefð þykir að hafa kynnst, jafnvel ein- ungis yfirborðslega. Fólkið sem er efst í minninga- skúffu flestra kemur úr hópi hinna nánustu, ekki síst þeirra sem farnir eru. Foreldrar, forfeður, systkin, frændsystkin, bekkjarsystur og -bræður, kennarar, samstarfsmenn og vinir. En spyrjandinn á sjaldnast við það fólk. Hann er að hnusa eftir frægðarfólki. Þeir sem kynntust Gísla á Uppsölum segja hann standa framarlega í hópi eftirminnilegra. Ekki vegna þess að hann segði mikið. Þvert á móti. Hann var ein- verumaður, algjörlega ótruflaður af nútímanum. Það litla sem hann sagði var svo eftirminnilegt, af því að það var svo lítið og svo hvernig það var sagt. Gísli á Uppsölum verður seint sakaður um að hafa breytt heiminum eða gert tilraun til þess. Á lífsskeiði hans hafði veröldin ekki aðeins breyst, hún hafði umturn- ast. Það voru fréttir fyrir Gísla. En hann hafði þó engan áhuga á þeim fréttum. Breytingar eru breytilegar Lýðræðislegar kosningar fara fram einhvers staðar á jarðarkringlunni alla daga ársins. Þingkosningar, forsetakosningar, sveitarstjórnarkosningar, svæðis- bundnar kosningar og svo mætti lengi telja. Lang- flestir frambjóðenda ætla að breyta miklu, jafnvel flestu og sumir segjast ætla að breyta öllu. Obama boðaði að hann myndi gera gagngerar breytingar á bandarísku þjóðlífi. Hefur hann gert það? Nú segjast Trump og Clinton ætla að breyta og breyta. Fáir stjórnmálamenn ná samt að breyta nær- umhverfinu, hvað þá heiminum. Þær breytingar á heiminum sem sumir hafa þó náð fram hafa ekki endilega verið til bóta. En það er huggun í því tilviki, að jafnvel valdamestu menn stjórnmála breyta heim- inum sjaldnast varanlega. Lenín og Stalín og Hitler gerðu stórbrotnar breytingar á sinni tíð með hörmu- legum afleiðingum. En sem betur fer stóðu þær breytingar ekki lengi, þegar sagan er höfð til viðmið- unar, þótt hver mínúta sem þær stóðu hafi verið ógn- artíð. Stjórnmálamenn fundu ekki upp hjólið (þótt þeir í Reykjavík telji sig hafa fundið upp tvíhjólið), ekki ljósaperuna, útvarpið, kveiktu fyrsta eldinn, settu saman ryksuguna, uppþvottavélina, beisluðu kjarnorkuna og sköffuðu mannkyninu síma, svo gemsa og loks internet. Þeir sem það gerðu voru meiri breytingamenn en Napóleon og Genghis Khan. Hin manngerðin Svo eru þeir til sem ekki fóru um með eldi og brenni- steini en lögðu þó undir sig lönd og álfur. Kristur fór fetið með fáeina vopnlausa fylgjendur. Hann átti ekki annað erindi en fagnaðarerindið. Tveimur aldatugum síðar kannast flestir í mannheimi við hann, og fleiri eru nú undir merki hans en nokkru öðru. Nú fjölgar kristnum ört í Kína. Spár eru um að eftir fáein ár verði þar fjölmennasti kristni söfnuður heims. Fylgj- endur Krists kalla hann friðarhöfðingja og hann rís betur undir því heiti en aðrir. En það þýðir ekki að allir þeir sem segjast hafa skipað sér þar í sveit fari með friði. Sá örblettur jarðar sem Kristur fór um með lærisveinum sínum hefur um langa hríð verið eldfimt og umdeilt svæði. Þannig hefur það vissulega verið seinustu áratugi, þótt önnur svæði á þeim slóð- um og öðrum séu einnig þrungin átökum og illindum. Tilefnið Á þetta er minnt nú þegar horft er til andláts og út- farar Símonar Peres, eins helsta leiðtoga Ísraels um langan aldur. Bréfritari leyfir sér að segja að hann sé einn „eftirminnilegasti“ maður sem hann hafi haft kynni af. Þau fyrstu voru í borgarstjóratíð, þegar Peres forsætisráðherra Ísraels tók á móti honum og nokkrum öðrum borgarstjórum á skrifstofu sinni í Jerúsalem. Síðan hefur fundum borið víða saman, bæði í Ísrael, vestanhafs og víðar. Síðast á fundi í Suður-Afríku. Þar var í fagnaði setið við hringborð og þessi tveir sátu við hliðsett borð. Þegar nokkuð var liðið á borðhaldið sneri Peres stól sínum um 180 gráð- ur og benti bréfritra á að gera hið sama. Þannig var talað saman um drjúga stund. Eftirminnilegust var þó samveran með honum á Íslandi, er hann kom þangað sem varaforsætisráðherra. Þá voru fundir og samverustundir í Stjórnarráðinu, í Þingholti, í skoð- anaferð um Suðurlandið, meðal annars að Nesjavöll- um og ekki síst í Ráðherrabústaðnum á Þingvöllum. Í lok verunnar í bústaðnum benti gestgjafinn Peres á að uppi á lofti væru lítil herbergi og upplagt að kasta sér um stund. Peres sagðist ekki þreyttur. Gestgjaf- inn sagðist samt ætla að kasta sér og Peres gæti haft sína hentisemi niðri á meðan. Peres brosti: „Nú fyrst svo er, get ég svo sem kastað mér líka.“ Síðar gefst vonandi tóm og ástæða til að gera nán- ari grein fyrir eftirminnilegum samtölum. Í tengslum við þesssa heimsókn gerðist það að stjórnmálamenn, veikir fyrir pópúlisma, fóru fram úr sér og hrópuðu að það væri hneyksli að taka á móti Símon Peres og raunar var reynt að blása til nokkurs aðsúgs að hon- um. Var það heldur dapurlegt. Sumir „stjórnmála- skörunganna“ tilkynntu að þeir myndu ekki leggjast svo lágt að hitta þennan mann að máli. Jafnvel sumir leiðtogar jafnaðarmanna, sem voru í ríkisstjórn, neit- uðu að hitta jafnaðarmannaforingjann frá Ísrael. Of- stækið gegn Ísrael var þó fjarri því að vera orðið eins yfirgengilegt þá og það er nú. Þegar í ljós kom skömmu síðar að ferðin var að hluta til skjól fyrir þátttöku í friðarferli sem Símon Peres fékk síðar (ásamt Rabin og Arafat) Nóbels- verðlaun fyrir urðu lýðskrumararnir aumkunar- verðir. Einhverjir þeirra gerðu sig enn hlægilegri með því að fullyrða að dónaskapur þeirra hefði átt þátt í því að ýta Peres til aðgerða! Þegar bréfritari bað Peres afsökunar á ókurteisinni svaraði hann með því að segja að á Íslandi hefði hann fengið að hitta alla þá sem mest gagn væri að að hitta. Á Þingvöllum færði Peres gestgjafanum að gjöf litla marmaraskál með gylltum Jerúsalemsmúr um miðjuna. Skálinni var komið fyrir á hillu við fætur útskor- inna trémynda af Winston Churchill og Charles de Gaulle. Það er gert í táknrænu skyni. Það vill gleym- ast að forysta vestrænna ríkja, alþjóðasamfélagið eins og það var þá og Sameinuðu þjóðirnar mörkuðu þá afstöðu að stofna skyldi til Ísraelsríkis 1948. Eins og þekkt er átti Ísland þar dálítinn hlut að máli og hélt Thor Thors sendiherra á honum fyrir landsins hönd. Kveðjustund Símon Peres var nærri forystu Ísraels frá fyrstu stundu og oft helsti talsmaður þess. Hann var skjól- stæðingur David Ben-Gurion, landsföður og fyrsta forsætisráðherra, sem sótti Ísland heim í tíð Ólafs Thors sem forsætisráðherra. Fyrir skömmu fékk Peres alvarlegt hjartaáfall og andaðist hann sl. miðvikudag. Útför hans fór fram í gær að viðstöddu fjölmenni, þar á meðal þjóðar- leiðtogum víða að. Árið 1997 gaf Fjölvaútgáfan út bók um Símon Pe- res. Bréfritara var boðið að rita formála og sagði þar m.a.: „Ísraelar hafa átt undir högg að sækja í almenn- ingsáliti síðustu árin. Sjálfsagt eiga þeir þar nokkra sök. Þeir eiga svo sannarlega til að sýna ósveigjan- leika og óbilgirni og leiðtogar þeirra eru misjafnir. En staðan er þröng. Óvinirnir hafa verið margfalt fleiri. Þeir umkringja landið og hafa verið með heit- ingar um að hrekja hvern Gyðing á haf út. Ísrael hef- ur oft verið sýnd veiði, en ekki gefin. „Þið eruð öf- undsverðir,“ sagði Peres við mig á Þingvöllum. Símon Peres fór víða. Einnig hingað. Nú er hann kvaddur. ’ Jafnvel sumir leiðtogar jafnaðarmanna, sem voru í ríkisstjórn, neituðu að hitta jafnaðarmannaforingjann frá Ísrael. Ofstæk- ið gegn Ísrael var þó fjarri því að vera orðið eins yfirgengilegt þá og það er nú. Reykjavíkurbréf30.09.16

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.