Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Síða 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.10.2016, Síða 37
„Hundruð kílómetra í næsta nágranna.“ Ísrael er eina raunverulega lýðræðisríkið á öllu hinu umdeilda svæði. Því eru gerðar aðrar og meiri og oft ósann- gjarnari kröfur til þeirra en annarra þar um slóðir. Þetta vill stundum gleymast, þegar dómar eru í fljót- ræði felldir.“ Síðar segir: „„Stjórnmál nútímans skortir þá ógn og örvæntingu, sem einkenndi þau forðum tíð. Átakamennirnir, mikilmennin sækja því annað. Þeir vilja fá viðnám við afl sitt og áræði.“ Full- yrðingar af þessu tagi kunna að eiga við um háþróuð velferðarsamfélög norðursins, þar sem þéttriðið net laga og reglugerða hefur minnkað svigrúm stjórn- málamanna og dregið úr þýðingu daglegra starfa þeirra. Vettvangur Símonar Peres hefur verið annar. Tilveruréttur þjóðar hans hefur ekki verið fyllilega tryggður einn einasta dag frá sjálfstæðisyfirlýsing- unni 1948 og líf þeirra, sem þar hafa í fremstu röð farið, verið í sífelldri hættu. Við slíkar aðstæður eiga öfgamenn margar innkomur á sviðið og hinir verða að gæta sín, svo þeir verði ekki hrópaðir niður sem svikarar, hugleysingjar og jafnvel landráðamenn. Símon Peres hefur sýnt að hann er enginn flaðrandi friðkaupandi. En hann fyllist á hinn bóginn ekki skelfingu þótt friðarskilyrði séu skoðuð af alvöru. Hatur og heitstrengingar eru ekki alltaf ríkasti vott- ur um hugrekki og hetjulund. Hógværð og æðruleysi kallar oftar en ekki á meiri kjark. Peres er ríkulega vistaður af hvorutveggja. Hann hefur aldrei ráfandi leitt þjóð sína út í óvissuna. Fum og fát er ekki til. Hann veit hvert lokatakmarkið verður að vera. Hag- ur þjóðar hans og framtíðaröryggið er í fyrirrúmi. Það er leiðarljósið og ekkert annað kemst að. En Símon Peres hefur einnig nægan styrk og stærð til að átta sig á að friður og öryggi verða aldrei varanlega fengin nema með sáttargjörð, þar sem ekki er tjaldað til einnar nætur. Sanngirni verður að ríkja ofar öðru og andstæðingnum verður að sýna traust. Staðfesta Símonar Peres, yfirburða þekking og sálarró, þegar á mestu hefur gengið, eru sennilega hans helstu kostir. Það er enginn algildur mælistokkur til, sem einn ákveður, hvort einstaklingur sé mikilmenni. Sagan fer kannski á endanum næst því að kveða afgerandi úrskurð í slíkum efnum, eins og í svo mörgum öðrum. Sá hluti sögunnar, sem kallast samtímasaga, hefur þegar gefið ótvírætt til kynna, að þannig muni Símon Peres að lokum verða flokkaður.“ Þau tæpu 20 ár, sem liðin eru frá því að þessi orð voru skrifuð, reis Símon Peres myndarlega undir þeim. Hann er því kærlega kvaddur. Morgunblaðið/RAX Símon Peres og Davíð Oddsson. 2.10. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.