Fréttablaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 4
Leiðrétting:
Í forsíðufrétt Fréttablaðsins í gær
kom fram að BIOEFFECT væri
fyrsta íslenska varan sem seld væri
í Harrods. Hið rétta er að íslenskar
vörur hafa verið seldar þarna áður.
Vörur Axis voru til sölu í Harrods
um þriggja ára skeið, frá árinu 1986.
Um var að ræða húsgagnalínu sem
hönnuð var af Pétri B. Lútherssyni,
húsgagna- og innanhússarkitekt,
og framleidd í verksmiðju Axis.
Áður en Axis hóf sölu í Harrods
seldi ullarvörufyrirtækið Hilda
vörur þar. Við biðjumst afsökunar á
þessari rangfærslu.
Þarftu að ráða starfsfólk?
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
StjórnmáL „Mér finnst þetta ótrú-
legur tvískinnungur. Það kom í
ljós að ef fleiri stjórnarandstöðu-
flokkar hefðu greitt atkvæði á móti,
og kannski einhverjir stjórnarliðar
sem sátu hjá, þá hefðum við getað
fellt búvörusamningana,“ segir Björt
Ólafsdóttir, þingmaður Bjartrar
framtíðar.
Breytingar á búvörulögum,
sem eru forsenda mjög umdeildra
búvörusamninga, voru samþykktar
á þingi á þriðjudag. Nítján þing-
menn sögðu já, sjö þingmenn sögðu
nei en sextán þingmenn sem í saln-
um voru sátu hjá. Tólf þeirra voru
þingmenn stjórnarandstöðunnar og
atkvæði hefðu fallið jöfn ef sá hópur
hefði hafnað samningunum. Fjórir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins sátu
einnig hjá, þau Birgir Ármannsson,
Guðlaugur Þór Þórðarson, Hanna
Birna Kristjánsdóttir og Ragnheiður
Ríkharðsdóttir.
„Aðrir í stjórnarandstöðunni hafa
leyft sér að gagnrýna ýmislegt varð-
andi þessa búvörusamninga en svo
kemur í ljós að þeir eru í raun með
þeim. Með hjásetu gáfu þeir málinu
brautargengi. Það kom mér svo sem
ekki á óvart með Vinstri græn því ég
heyrði á málflutningi þeirra að þau
voru ekkert á móti þessum búvöru-
samningum. En það kom mér á
óvart að ýmsir hjá Samfylkingunni
og Pírötum sem töluðu mjög digur-
barkalega sitja svo hjá. Ég skil ekki
svona afstöðuleysi í jafn stóru máli,“
segir Björt.
Sigríður Á. Andersen, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, var eini stjórnar-
þingmaðurinn sem hafnaði samn-
ingunum. „Ég tel að þarna sé engin
tilraun gerð til að draga úr þessu
ríkisstyrkta landbúnaðarkerfi. Það
er annars vegar búið að semja um
Stjórnarandstaðan hefði getað
fellt búvörusamninginn á þingi
Búvörulög hefðu fallið á þingi ef þeir þingmenn sem sátu hjá við atkvæðagreiðsluna hefðu greitt atkvæði á
móti. Atkvæði stjórnarandstöðunnar komu þingmanni Bjartrar framtíðar, sem sagði nei, mjög á óvart.
fjórtán milljarða beingreiðslur á ári
næstu tíu árin og hins vegar er verið
að tryggja, að mínu mati, hátt í þá
upphæð í formi tollmúra.“
Kjósendur hafa farið mikinn í reiði
sinni á samfélagsmiðlum síðustu tvo
daga vegna málsins. Heimildir Frétta-
blaðsins herma jafnframt að þing-
mönnum stjórnarandstöðunnar
berist ítarleg bréf og fyrirspurnir frá
reiðum kjósendum vegna afstöðu
þeirra í málinu.
„Við teljum eðlilegt að innlendur
landbúnaður sé styrktur eins og
alls staðar annars staðar er gert. Við
vorum ekki ánægð með þennan
samning en töldum breytingarnar
sem voru gerðar á honum til bóta.
Okkur fannst ekki fýsilegur kostur
að núverandi samningur yrði bara
framlengdur,“ segir Katrín Jakobs-
dóttir, formaður Vinstri grænna.
Hún segir að núgildandi samningur
hefði verið framlengdur um eitt ár ef
nýjum búvörusamningum hefði verið
hafnað.
Oddný Harðardóttir, formaður
Samfylkingar, segir að þingflokkur
sinn styðji ekki samningana. „Það er
bara mjög algengt að gera þetta. Ef þú
nærð fram einhverju eða það er eitt-
hvað í málinu sem þú vilt ekki segja
nei við, þá situr þú hjá. Við fengum í
gegnum nefndarvinnuna að það yrði
farið strax í endurskoðun.“
snaeros@frettabladid.is
Fyrsti prófsteinn forseta
Samþykkt búvörulaga á Alþingi virðist ætla að verða
fyrsti prófsteinninn á nýjan forseta lýðveldis-
ins, Guðna Th. Jóhannesson. Komin er af
stað undirskriftasöfnun þar sem skorað
er á forseta að synja lögunum undirrit-
unar og vísa til þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Það er okkar skoðun að það sé með öllu ótækt
að binda hendur þings og þjóðar næstu 10 árin
með slíkum samningi,“ segir í textanum yfir
undirskriftasöfnuninni. Þegar þetta er skrifað
hafa tæplega sex hundruð manns skrifað
undir.
Fimm litlar staðreyndir og tölur
um Búvörusamninginn
l Að meðaltali 700
milljón króna
aukaframlag til
landbúnaðarins á
ári. Samtals nemur
framlagið tæpum 14
milljörðum króna
á ári.
l Tíu ára samningur
með endurskoðun
árið 2019 og 2023.
l Niðurfelling
greiðslumarks í
sauðfjárrækt á
samningstímanum.
l Niðurfelling kvóta í
mjólkurframleiðslu á
samningstímanum.
l Háir tollar á inn-
fluttar landbúnaðar-
vörur.
SkipuLagSmáL „Við upplifum þetta
þannig að það sé að færast aukin
alvara í þessi áform,“ segir Elías
Pétursson, sveitarstjóri Langanes-
byggðar, um heimsókn fulltrúa
Bremen ports sem hafa verið að
skoða uppbyggingu stórskipahafnar
í Finnafirði.
Haldnir hafa verið fundir með
íbúum, landeigendum og sveitar-
stjórnarfulltrúum Langanesbyggðar
og Vopnafjarðar undanfarna daga.
„Fundirnir hafa verið mjög upp-
lýsandi,“ segir Elías sem kveður
góðan róm hafa verið gerðan að
málinu. „En ég legg á það ríka
áherslu að það er enginn viðskipta-
vinur kominn en trú þeirra á verk-
efninu virðist vera að aukast.“ – gar
Aukin trú á
höfn í Finnafirði
Íbúafundur á Þórshöfn á þriðjudags-
kvöld. Mynd/ElÍas Pétursson
minjar Skemmdir hafa orðið á
gamla Grindavíkurveginum vegna
framkvæmda við gatnamót núver-
andi Grindavíkurvegar og Norður-
ljósavegar að sögn Minjastofnunar
Íslands.
Gamli Grindavíkurvegurinn var
lagður á árum fyrri heimsstyrjald-
arinnar, frá 1914 til 1918. Hann var
greiddur að hálfu úr ríkissjóði og að
hálfu af Grindvíkingum. Vegurinn
er enn sýnilegur á köflum og rústir
gerða og búða vegagerðarmanna
eru varðveittar. Notaðir voru hest-
ar við byggingu vegarins.
„Rör sem „skotið“ var undir
Grindavíkurveginn kemur upp í
miðjum gamla veginum. Um það
bil 50 metrum norðar lá gamli veg-
urinn yfir klöpp. Búið er að brjóta
klöppina niður á um 35 metra kafla
og raska þar með gamla veginum,“
segir Minjastofnun í bréfi til Vega-
gerðarinnar.
Fram kemur að við vettvangs-
skoðun hafi fulltrúi verktakans sagt
að hann hefði engar upplýsingar
haft um minjarnar eftir gamla veg-
inn. „Gamla veginum verður ekki
raskað meira en orðið var og ætl-
unin er að fjarlægja grjót ofan af
þeim hluta vegarins sem hulinn
var,“ segir ennfremur. Minjastofn-
un segist gera „alvarlegar athuga-
semdir“ við málið og frístunda- og
menningarnefnd Grindavíkur, sem
fjallaði um málið á fundi sínum,
kveðst taka undir þær athuga-
semdir. – gar
Vegagerðarmenn raska minjum um hundrað ára veg
Framkvæmdir við gatnamót norðurljósavegar og Grindavíkurvegar.
Mynd/siGGEir F. Ævarsson
Það kom mér á
óvart að ýmsir hjá
Samfylkingunni og
Pírötum, sem töluðu
mjög digurbarka-
lega, sitja svo hjá. Ég
skil ekki svona
afstöðuleysi í jafn
stóru máli.
Björt Ólafsdóttir,
þingmaður
Bjartrar framtíðar
1 5 . S e p t e m b e r 2 0 1 6 F i m m t u D a g u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b L a ð i ð
1
5
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
3
-7
D
4
0
1
A
9
3
-7
C
0
4
1
A
9
3
-7
A
C
8
1
A
9
3
-7
9
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K