Fréttablaðið - 15.09.2016, Síða 42

Fréttablaðið - 15.09.2016, Síða 42
Í dag Pepsi-deild karla: 16.30 ÍA - KR Sport 16.50 Fylkir - FH Sport 3 19.30 Valur - Breiðablik Sport 22.00 Pepsimörkin Sport 17.00 Fjölnir - Þróttur Extra-völlur 17.00 ÍBV - Stjarnan Hásteinsvöllur 17.00 Vík. Ó. - Vík. R. Ólafsvíkurv. Evrópudeildin: 16.55 Feyenoord - Man Utd Sport 2 16.55 Maccabi - Zenit Sport 4 19.00 Southam. - Sp. Prag Sport 2 19.00 Inter - Hapoel Sport 3 Olís-deild karla: 18.00 Fram - ÍBV Framhús 19.30 Haukar - Afturelding Ásvellir 19.30 Akureyri - Grótta KA-heimili 19.30 FH - Stjarnan Kaplakriki Undankeppni EM 2017, A-riðill Ísland - Kýpur 84-62 Stig Íslands: Hlynur Bæringsson 18, Haukur Helgi Pálsson 15, Logi Gunnarsson 12, Kristófer Acox 10, Martin Hermannsson 8, Jón Arnór Stefánsson 7, Hörður Axel Vil- hjálmsson 6, Brynjar Þór Björnsson 6, Elvar Már Friðriksson 2. ásdís reyndi við metin ásdís Hjálmsdóttir, íslandsmeistarinn í spjótkasti, freist- aði þess í gær að bæta tvö íslands- met, í kúluvarpi og kringlukasti, en hafði ekki erindi sem erfiði. ásdís kastaði kúlunni 16,06 metra og var 27 sentimetrum frá því að bæta íslandsmetið. ásdís kastaði kringlunni 45,30 m og var talsvert frá því að bæta íslandsmet Guðrúnar ingólfsdóttur (53,86 m). ásdís reynir aftur við metin í Kaplakrika í dag. 1 5 . s E p t E M b E r 2 0 1 6 F I M M t U D A G U r30 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð I ð sport Öruggur sigur strákanna í Höllinni Vonin enn til staðar Ísland heldur enn í vonina um að komast á EM 2017 í körfubolta eftir öruggan sigur, 84-62, á Kýpur í Laugardalshöllinni í gær. Aðeins sex stigum munaði á liðunum í hálfleik, 42-36, en í seinni hálfleik keyrði íslenska liðið yfir það kýpverska og tryggði sér sigurinn. Ísland á einn leik eftir í undankeppninni, gegn Belgíu á laugardaginn, en liðið þarf að vinna hann til að eygja von um að komast á EM. FRéttABlAðIð/AntOn BRInK FótboLtI „Það er ekki alveg klárt að við förum á em en ef við spilum vel þá fáum við þrjú stig,“ segir dagný Brynjarsdóttir, miðjumaður íslenska kvennalandsliðsins í fót- bolta, í viðtali við Fréttablaðið en stelpunum okkar nægir eitt stig í næstsíðasta leik liðsins í undan- keppni em 2017 á föstudaginn gegn slóveníu. ísland vann slóveníu, 6-0, í fyrri leik liðanna en stelpurnar bóka engan stórsigur. „Þegar við unnum þær 6-0 í fyrra var það síðasti leikur ársins og þá vorum við að toppa, en við spil- uðum okkar besta leik. Ég held að 6-0 sigur þar gefi ekki alveg rétta mynd og segi að við eigum að rústa þeim heima en auðvitað komum við og spilum upp á sigur,“ segir dagný. Stefnt á núllið stelpurnar okkar eru efstar í riðl- inum með fullt hús stiga og hafa ekki enn fengið á sig mark. tveir leikir eru eftir og viðurkennir dagný að það væri gaman að halda sama dampi í varnarleiknum. „Ég viðurkenni alveg að ég var ekkert farin að pæla í þessu fyrr en ég las þetta í fjölmiðlum. Auð- vitað væri gaman að stefna á það í síðustu tveimur leikjunum að klára þetta á núllinu. við reynum að spila eins góðan varnarleik og við getum þannig að ég held að við séum óbeint að stefna að því að halda hreinu út mótið,“ segir hún. íslenska liðið hefur spilað stórvel og rústað næstbestu liðum riðilsins með markatölunni 10-0. Liðið hefur tekið miklum framförum undan- farin misseri. „við höfum farið stigvaxandi sem lið og liðsheild síðan Freyr tók við. núna er sami hópur búinn að vera saman í nokkur ár sem ég tel mjög mikilvægt. við erum farnar að þekkja vel hver inn á aðra og spilum bæði varnarleikinn og sóknarleik- inn sem liðsheild. við vinnum hver fyrir aðra sem er rosalega mikil- vægt,“ segir dagný. Mögnuð miðja dagný er hluti af frábærri þriggja manna miðju íslenska liðsins en ásamt henni spila þar markahæsti leikmaður íslands frá upphafi, margrét Lára viðarsdóttir, og hin eitil- harða sara Björk Gunnarsdóttir sem nýverið gekk í raðir eins besta liðs evrópu. „Það er frábært að spila með þeim. Þær eru báðar ótrúlega góðir leikmenn o g m a r g r é t Lára goðsögn í íslenskum fót- bolta. við erum búnar að spila svolítið marga leiki saman á miðjunni og erum farnar að þekkja hver aðra mjög vel. ef við höldum allar áfram að bæta okkur verður miðjan og liðið bara sterkara,“ segir dagný. lífið ljúft í Portland draumur rangæing- sins rættist í byrjun árs þegar hún gekk í raðir Portland thorns í Bandaríkjunum. Fótboltaáhuginn í Portland er einn sá allra mesti vestanhafs og liðið eitt það besta í bandarísku kvenna- deildinni. „Þetta er búið að vera frábært. Ég held að þetta sé hápunktur kvenna- knattspyrnunnar. við vorum með að meðaltali 16.000 manns á leik og vorum með fullt hús á síðasta leik. Ég get ekki ímyndað mér að einhvers staðar annars staðar sé betra að vera hvað varðar áhorf- endur, aðstöðu og leik- mannahópinn. mér finnst þetta geðveikt og er rosalega ánægð þarna úti.“ en hvernig er lífið í Portland og hvað gerir atvinnukona í fótbolta þar? „Ég bý með danskri landsliðs- konu. sumarið er búið að vera mjög gott og við höfum verið dug- legar að liggja í sólbaði á sund- laugarbakkanum. svo förum við að versla og einnig er margt að skoða þarna. Það eru margir stórir garðar og hægt að fara í fjallgöngur þann- ig að við gerum mikið af því,“ segir dagný. Ræður sér ekki sjálf Þó að dagný telji sig vera á hátindi kvennaboltans hefur hún ekkert um það að segja í raun og veru hvar hún spilar á næsta ári. Þannig virkar einfaldlega bandaríska kerfið. „Þegar ég skrifa undir samning- inn er ég að skrifa undir samning við deildina en eins og er þá er Portland með réttinn á mér. Portland má gera það sem það vill við mig eftir tímabilið hvort sem mig langar að vera þarna áfram eða ekki. Það er alltaf hægt að skipta á mér og einhverjum öðrum leikmanni sem ég hef lítið um að segja. eins og staðan er í dag þá reikna ég með því að vera áfram hjá Portland á næsta ári,“ segir dagný Brynjarsdóttir. tomas@365.is Á toppi tilverunnar í Portland Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í fótbolta, telur sig vera á hátindi kvennaknattspyrnunnar hjá Port- land Thorns. Hún fær þó engu ráðið um hvar hún spilar að ári en býst við að verða áfram hjá sama liði. portland má gera það sem það vill við mig eftir tímabilið hvort sem mig langar að vera áfram eða ekki. Dagný Brynjarsdóttir Meistaradeild Evrópu C-riðill Man City - Gladbach 4-0 1-0 Sergio Agüero (8.), 2-0 Agüero, víti (28.), 3-0 Agüero (77.), 4-0 Kelechi Iheanacho (90+1.). E-riðill tottenham - Monaco 1-2 0-1 Bernardo Silva (15.), 0-2 Thomas Lemar (31.), 1-2 Toby Alderweireld (45.). leverkusen - CSKA 2-2 1-0 Admir Mehmedi (9.), 2-0 Hakan Cal- hanoglu (15.), 2-1 Alan Dzagoev (36.), 2-2 Roman Eremenko (38.). F-riðill Real Madrid - Sporting 2-1 0-1 Bruno César (48.), 1-1 Cristiano Ronaldo (89.), 2-1 Álvaro Morata (90+4.). legia - Dortmund 0-6 0-1 Mario Götze (7.), 0-2 Sokratis Papas- tathopoulos (15.), 0-3 Marc Bartra (17.), 0-4 Raphaël Guerreiro (51.), 0-5 Gonzalo Castro (76.), 0-6 Pierre-Emerick Aubameyang (87.). G-riðill Club Brugge - leicester 0-3 0-1 Marc Albrighton (5.), 0-2 Riyad Mahrez (29.), 0-3 Mahrez, víti (61.). Porto - FCK 1-1 1-0 Otavio (13.), 1-1 Andreas Cornelius (52.). Rautt spjald: Ján Gregus, FCK (66.). H-riðill Juventus - Sevilla 0-0 lyon - D. Zagreb 3-0 1-0 Corentin Tolisso (13.), 2-0 Jordan Ferri (49.), 3-0 Maxwell Cornet (57.).. Nýjast 1 5 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 9 3 -A 9 B 0 1 A 9 3 -A 8 7 4 1 A 9 3 -A 7 3 8 1 A 9 3 -A 5 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 4 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.