Fréttablaðið - 22.08.2016, Síða 2

Fréttablaðið - 22.08.2016, Síða 2
Flísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is Gæði og glæsileik i endalaus t úrval af hágæða flísum Finndu okkur á facebook Veður Eftir hæglætisveður fer aðeins að hreyfa vind, spáð er austan 5 til 10 metrum á sekúndu, en 13 til 18 í vind- strengjum allra syðst og einnig við Öræfajökul. Bjart veður norðan- og vestanlands, en þykknar upp og fer að rigna sunnanlands síðdegis og einnig á Austfjörðum í kvöld. Á höfuðborgar- svæðinu er bjartur dagur. sjá síðu 20 Komu fjölskyldunni til bjargar og buðu þeim gistingu stjórnmál Tvö kjördæmisþing Framsóknarflokksins um helgina samþykktu tillögu þess efnis að boða ætti til flokksþings fyrir kosn- ingar þar sem ný forysta verður kosin. Sams konar tillaga var felld í kjördæmi formannsins þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson greiddi atkvæði gegn tillögu um að halda flokksþing fyrir kosningar. Eygló Harðardóttir velferðar- ráðherra segir mjög marga í gras- rót flokksins vilja sjá flokksþing fyrir kosningar og mikilvægt sé að forystan endurnýi umboð sitt. Eygló er sammála þeim aðilum sem hafa talað fyrir því að boða til flokksþings fyrir kosningar. „Fram- sóknarflokkurinn hefur alltaf haft gott af því að halda flokksþing fyrir kosningar þar sem línur eru lagðar,“ segir Eygló. „Ég er í forystusveit flokksins og verði boðað til flokksþings þarf hver og einn að meta stöðu sína og hlusta á grasrótina,“ segir Eygló þegar hún er spurð að því hvort hún ætli að bjóða sig fram til formanns komi til flokksþings. „Nú er fókusinn á hús- næðismálunum og ég mun fara á Vesturland til að ræða húsnæðismál og þyrfti líka að fara til Akureyrar að ræða húsnæðismál,“ bætir Eygló við. Formaður Framsóknarflokksins er með útspili sínu á kjördæmaþingi flokksins í norðausturkjördæmi að hugsa um eigin hag og sé í ferð að bjarga sínu eigin pólitíska lífi með því að komast hjá flokksþingi fyrir kosningar. Það sé svo álitamál hvort sú ferð fari saman við hagsmuni flokksins, segir Grétar Þór Eyþórs- son, prófessor í stjórnmálafræðum við Háskólann á Akureyri. Ljóst er að staða hans sé ekki mjög sterk á landsvísu. „Það er alveg á hreinu að Sig- mundur og stuðningsmenn hans vilja ekki flokksþing fyrir kosningar. Þess vegna er hann væntanlega að þæfa mál þannig að það verði ekki haldið flokksþing fyrr en eftir kosn- ingar,“ segir Grétar Þór. „Þarna eru uppi átök og er Sigmundur Davíð að bjarga sínum pólitíska heiðri með því að hrökklast ekki frá völdum sem formaður á flokksþingi.“ sveinn@frettabladid.is Segir formann reyna að bjarga eigin skinni Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir formann Framsóknar- flokksins reyna að bjarga eigin pólitíska lífi með því að komast hjá flokksþingi í haust. Sigmundur Davíð greiddi atkvæði gegn því að flokksþing yrði haldið fyrir kosningar. Velferðarráðherra vill flokksþing sem fyrst. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson greiddi atkvæði gegn tillögu um flokksþing í haust. Það er alveg á hreinu að Sigmund- ur og stuðningsmenn hans vilja ekki flokksþing fyrir kosningar. Grétar Þór Eyþórs- son, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst Hjónin Einar Magnússon og Bryndís Sævarsdóttir komu fyrst að slysinu í Vattarfirði á fimmtudag þar sem Calara-fjölskyldan, Francisco, Elma og Matthew hafði lent úti í sjó. Um það leyti sem Einar og Bryndísi bar að var Elmu, sem er ósynd, að takast að klöngrast upp í fjöru. Eftir að fjölskyldan hafði hvílst í Búðardal buðu Bryndís og Einar henni að gista hjá sér í Reykjanesbæ þar til þau kæmust heim til Bandaríkjanna. Einar segir að sterkur vinskapur sé að myndast með fjölskyldunni sem hefur boðið þeim hjónum að heimsækja sig til Bandaríkjanna við fyrsta tækifæri. Fréttablaðið/SteFán slys Banaslys varð á Þingskálavegi, við Geldingalæk í Rangárvallasýslu, á laugardag. Maðurinn sem lést hét Óli Jóhann Klein og var 71 árs að aldri. Í tilkynningu frá lögreglu segir að tvær bifreiðar, fólksbifreið og lítil sendibifreið, hafi skollið saman um klukkan hálf tvö á laugardag. Maðurinn sem lést ók fólksbifreið- inni en ökumaður sendibílsins var fluttur með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar á bráðamóttöku í Fossvogi. Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi fer með rannsókn á til- drögum slyssins en engar upplýs- ingar hafa verið gefnar út um þau enn sem komið er. Fjölmennt lið lögreglu, lækna, rannsóknarnefnd samgönguslysa, sjúkraflutninga- manna og sérfræðings í bíltækni- rannsóknum var kallað á vettvang til að hlúa að hinum slasaða og hefja rannsókn. - snæ Banaslys á Þingskálavegi sjávarútvegsmál Bjóða á upp allan kvóta, handfæraveiðar verða gerðar frjálsar og allur afli fer á markað ef Píratar setjast í ríkisstjórn á næsta kjörtímabili. Ný sjávarútvegsstefna flokksins var samþykkt af flokks- mönnum um helgina. Í sjávarútvegsstefnunni kemur fram að Píratar telja mikilvægt að breyta fiskveiðikerfinu hér á landi og færa eigi auðlindir í nátt- úru Íslands aftur í hendur fólksins í landinu. Með það að markmiði vilja þau gera handfæraveiðar frjálsar þeim sem kjósa að stunda þær  sem atvinnu. „Allur afli skal fara á markað til að gera viðskipti með sjávarútvegsafurðir eðlilegri og bæta hag sjómanna, minni sjávarút- vegsfyrirtækja og annarra fyrirtækja sem vinna með afleiddar afurðir,“ segir í stefnunni. Stærsta breytingin yrði að öllum líkindum sú að aflaheimildir yrðu boðnar upp til leigu á opnum mark- aði og renni leigugjaldið í ríkissjóð. „Þetta er stefnan og það verður gert,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata. „Ég hef lagt ríka áherslu á það hjá mínum félögum að við setjum ekkert fram sem við getum ekki staðið við. Þetta verður ekki gert á einni nóttu heldur í áföngum,“ bætir Birgitta við. - sa Píratar samþykkja kvóta- uppboð Þetta verður ekki gert á einni nóttu heldur í áföngum Birgitta Jónsdóttir 2 2 . á g ú s t 2 0 1 6 m á n u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 2 2 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 4 F -4 B 7 C 1 A 4 F -4 A 4 0 1 A 4 F -4 9 0 4 1 A 4 F -4 7 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.