Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.08.2016, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 22.08.2016, Qupperneq 8
Innköllun á Guard Master öryggishliðum Húsasmiðjan biður viðskiptavini sem keypt hafa öryggishlið af gerðinni GuardMaster – Plastic Mesh Gate / Model 276 (sjá mynd) að taka vöruna strax úr notkun og skila henni í næstu verslun við fyrsta tækifæri þar sem hún verður endurgreidd, óþarfi er að sýna kassakvittun. Á grundvelli prófunar sem Neytendastofa lét gera á vegum Prosafe kom í ljós að varan uppfyllir ekki allar kröfur staðalsins ÍST EN 1930- 2011 „Barnavara og vara til nota við ummönnun barna – Öryggisskilrúm – Öryggiskröfur og prófunaraðgerðir“. Ekki er vitað til að slys hafi hlotist af notkun vörunnar en engin áhætta verður tekin varðandi sölu á vörunni og hún hér með innkölluð. Húsasmiðjan biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda, en öryggi er ávallt númer eitt hjá Húsasmiðjunni. Nánari upplýsingar má finna á Facebook síðu Húsasmiðjunnar, www.husa.is eða síma 525 3000. Heilsa „Ef við tölum bara um Ísland þá búum við svo vel að við erum ekki með vektorinn sem ber gulusótt í okkur, moskítóflugurnar,“ segir Guð- rún Sigmundsdóttir, yfirlæknir sótt- varna hjá embætti Landlæknis. Þar að auki segir hún að til sé árangursríkt bóluefni. Fréttablaðið greindi frá því í gær að alþjóðagóðgerðarsamtökin Save the Children vara við heimsfaraldri gulu- sóttar. Save the Children og heilbrigð- isstofnun Sameinuðu þjóðanna ráðast nú í umfangsmikil bólusetningarverk- efni í Austur-Kongó og Angóla þar sem faraldur geisar. „Á meðan við erum ekki með mosk- ítóflugur er eiginlega ómögulegt að faraldurinn komi hingað,“ segir Guð- rún og bætir við: „. Við þyrftum að vera með moskítóflugurnar til að stinga okkur. Þetta er eins og með Zika-veir- una og alla þessa sjúkdóma sem berast með moskítóflugum. Ef maður er ekki með moskítóflugur hér, og við skulum vona að það haldist svoleiðis, þá getum við andað út hérna innanlands.“ Þar sem sjúkdómurinn smitast ekki á milli manna myndi það heldur ekki valda faraldri ef maður með gulusótt kæmi til landsins. Þrátt fyrir það er sjúkdómurinn tilkynningaskyldur til sóttvarnalæknis á Íslandi þar sem hann telst geta ógnað almannaheill. Gulusótt geisar nú í Kinshasa, höf- uðborg Austur-Kongó. Það segir Guð- rún óvenjulegt. „Mér skilst að þetta sé að fara út í stórborgarumhverfi. Oftast hefur þetta haldist í frumskógunum en allt í einu kemur þetta inn í Kins- hasa, margmilljónaborg, og þá þarf að bregðast við því.“ Á þessu ári hafa 400 látist vegna gulusóttar í Angóla og Austur-Kongó. Í tilkynningu Landlæknisembættis- ins frá því í apríl segir að árlega látist um 60 þúsund af völdum gulusóttar. „Gulusótt hefur verið til lengi og mér skilst að það hafi komið upp faraldrar af og til. Kannski er þessi stærri en áður, ég veit ekki alveg um það,“ segir Guðrún. Mælst er til þess að Íslendingar sem hyggja á ferðir til landa þar sem gulusótt er láti bólusetja sig fyrir sjúk- dómnum að minnsta kosti tíu dögum áður en haldið er af stað. Það þurfi einnig að láta skrá í alþjóðlegt bólu- setningarskírteini svo ferðamenn fái að fara inn í viðkomandi land. „Ef fólk hyggur á ferðalög til þessara landa þá þarf það að athuga hvort það þurfi að láta bólusetja sig gegn gulusótt. Það hefur verið gert lengi,“ segir Guðrún. thorgnyr@frettabladid.is Ómögulegt að gulusótt komi til Íslands án moskítóflugna Yfirlæknir sóttvarna hjá Landlæknisembættinu segir ekki hættu á gulusóttarfaraldri á Íslandi. Ástæðan er sú að hér séu engar moskítóflugur. Varað er við heimsfaraldri gulusóttar sem er lífshættulegur sjúkdómur. Kongómaður fær bólusetningu við gulusótt í Kisenso-hverfi Kinshasa, höfuðborgar Austur-Kongó. Save the Children fara nú af stað með bólusetningarherferð í borginni en óttast er að sjúkdómurinn verði heimsfaraldur. NordiCphotoS/AFp Á meðan við erum ekki með moskító- flugur er eiginlega ómögulegt að faraldurinn komi hingað. Guðrún Sigmunds- dóttir, yfirlæknir sóttvarna Fyrstu einkenni gulusóttar Hiti Hrollur Vöðvaverkir Ógleði Uppköst Alvarlegri einkenni Gula Kviðverkir Blæðingar Dauði stjÓrnsýsla Vísbendingar eru um að misræmis gæti hjá sýslumanns- embættum landsins þegar kemur að hjónavígslu íslenskra og erlendra ríkis- borgara. Málið er til rannsóknar hjá innanríkisráðuneytinu og embættin hafa verið hvött til að fylgja reglum við úrvinnslu mála. Tilefni rannsóknarinnar er ósk Ragnheiðar Guðmundsdóttur og unnusta hennar Ravi Rawat um að ganga í hjónaband en Sýslumaðurinn í Reykjavík synjaði beiðni þeirra. Innan- ríkisráðuneytið hefur snúið úrskurð- inum við og heimilað hjónabandið en Ragnheiður berst við fjórða stigs lífhimnukrabbamein. Synjun Sýslu- mannsins í Reykjavík var á grundvelli þess að gögn Ravi væru ófullnægjandi. Sendiráð Indlands á Íslandi hafði þó staðfest að gögnin væru fullnægjandi. Samkvæmt upplýsingum frá innan- ríkisráðuneytinu bárust ábendingar til ráðuneytisins sem benda til þess að misræmi sé á verklagi sýslumanns- embætta. Rannsókn ráðuneytisins snýst um að fá úr því skorið hvert mat sýslumannsembætta sé á gögnum hverju sinni og málsmeðferð í hverju máli fyrir sig. Misræmið skrifist upp á starfsfólk sýslumannsembættanna, sé það á annað borð til staðar. Ólöf Nordal innanríkisráðherra tjáði sig um málið á Facebook-síðu sinni á föstudag og tilkynnti að innan- ríkisráðuneytið hefði snúið úrskurði sýslumannsembættisins við. Í tilkynn- ingu Ólafar kom fram að búið væri að senda sýslumönnum landsins bréf þar sem fram kemur að tilefni sé til að taka verkleg og reglur á þessu sviði til nánari skoðunar með samrýmda og góða stjórnsýslu að markmiði. snaeros@frettabladid.is Vísbendingar um mis- ræmi hjá sýslumönnum ragnheiður og ravi rawati hyggjast ganga í hjónaband á þriðjudag en fyrst óskuðu þau eftir heimild 1. apríl síðastliðinn. innanríkisráðuneytið sneri úrskurði Sýslu- mannsins í reykjavík við og hyggst rannsaka verkferla. MyNd/rAgNheiður ÍraK Yfirvöld í Írak hafa gefið það út að 36 hafi verið hengdir í tengslum við fjöldamorðin á hundruðum her- manna sem héldu sig fyrir norðan Bagdad fyrir tveimur árum. Þetta er mesti fjöldi sem yfirvöld hafa tekið af lífi á einum degi í Írak frá því að Íslamska ríkið tók yfir stjórn í norður- og vesturhluta landsins árið 2014. Hengingarnar fóru fram í fangelsi í borginni Nasiriya sem er í suður- hluta landsins. Talið er að allt að 1.700 hermenn hafi verið myrtir fyrir tveimur árum eftir að hafa flúið Speicher-her- stöðina, sem var áður undir stjórn bandaríska hersins. Yfirvöld í Írak höfðu verið undir mikilli pressu um að taka af skarið og aflífa þá sem báru ábyrgð á fjölda- morðunum eftir að stór sprengja sprakk á vinsælli verslunargötu fyrr í sumar og drap að minnsta kosti 324 manns. Samkvæmt Íslamska ríkinu er það mannskæðasta árás þar í landi frá árinu 2003. Eftir sprengingarnar sagði dómsmálaráðherra Íraks að 45 aftökur hefðu verið framkvæmdar frá byrjun árs. Sameinuðu þjóðirnar gagn- rýna ákvörðun yfirvalda í Írak um að drífa hengingarnar af þar sem margir saklausir borgarar gætu verið teknir af lífi sökum þess. Talið er að um 1.200 manns bíði eftir að afplána dauðadóm í Írak. Dómsmálaráð- herra gefur þó lítið fyrir þessa gagn- rýni og segir að hvert einasta mál sem tengist dauðadómum hafi verið skoðað ítarlega. Hann sagði einnig að það mætti eiga von á fleiri dauða- refsingum í náinni framtíð. 36 manns hengd á einum degi í Írak 324 létu lífið í mannskæðri hryðjuverkaárás í Írak fyrr í sumar. 2 2 . á G ú s t 2 0 1 6 M á n U D a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 2 2 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 4 F -8 6 B C 1 A 4 F -8 5 8 0 1 A 4 F -8 4 4 4 1 A 4 F -8 3 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.