Fréttablaðið - 22.08.2016, Page 22

Fréttablaðið - 22.08.2016, Page 22
B oðleið var stofnuð í október 2001 með samningum við NEC og Panasonic um sölu og þjónustu á símalausnum þeirra á Íslandi. Ári síðar voru starfsmenn orðnir fjórir og við- skiptavinum fjölgaði stöðugt ásamt því að þjónusta við önnur símkerfi jókst. „Boðleið byrjaði að setja upp IP-símkerfi og tölvu- síma í lok 2002 en kúvending varð árið 2010 þegar við byrjuðum að selja hugbún- aðarsímkerfi frá 3CX. Þá gátum við loks- ins boðið viðskiptavinum okkar símalausn á sanngjörnu verði og allt innifalið eins og skýrslukerfi, rauntímaupplýsingar fyrir þjónustuver, upptökukerfi, myndfundar- búnaður og margt fleira. Í framhaldi af því fengum við umboð fyrir SIP-símtæki frá Yealink sem eru með mest seldu símtækjum á Íslandi í dag og í öðru sæti á heimsvísu,“ segir Þorvaldur Harðarson, forstjóri Boð- leiðar. „Í dag hefur Boðleið á að skipa níu starfsmönnum með mikla reynslu þar sem engin verk eru of stór eða lítil og markmið okkar er að finna bestu lausnina fyrir alla viðskiptavini með hagræðingu að leiðar- ljósi.“ Þorvaldur segir ýmislegt hafa breyst á þessum sex árum frá því fyrsta hugbúnað- arsímkerfið rataði til ánægðra viðskipta- vina. „Í dag hafa viðskiptavinir okkar möguleika á að kaupa eða leigja lausnina okkar hvort sem er á staðnum eða í hýsingu. Við leggjum mikið upp úr að veita viðskipta- vinum okkar ráðgjöf og bendum á leiðir til sparnaðar. Verðskrá okkar er einföld og við gefum fst verð. 3CX-símkerfið okkar teng- ist á einfaldan hátt við sölu og viðskipta- kerfi eins og Microsdoft Dynamics, Sales Force, Sage ACT, Office 365 og Zendesk svo dæmi séu tekin og einnig útbúum við sér- lausnir eftir þörfum fyrirtækja.“ Boðleið er stærsti símkerfaþjónustu- aðili hótela á Íslandi. „Hótellausnir eru stór partur af þjónustu okkar. Fyrsti við- skiptavinur okkar var Grand hótel sem við höfum þjónustað síðan 2001 en síðan hafa bæst við Fosshótel, KEA hótel og Bláa lónið auk fjölda annarra hótela og gistiheimila,“ segir Þorvaldur sem rekur góðan árangur í hótel lausnum til mikillar reynslu, góðr- ar þjónustu og einfaldrar verðlagningar. „Einnig erum við með yfir 30 útfærslur af sérmerktum hótelsímtækjum en vel merkt símtæki á herbergjum með upplýsingum um hótelið ásamt þeirri þjónustu sem hót- elið býður upp á einfalda gestum aðgang að þjónustu.“ Hann bendir einnig á nýja lausn sem Boðleið býður viðskiptavinum sínum í hótelgeiranum. „Nú er hægt að fá snjall- tölvur á herbergin þar sem gestur getur séð allar upplýsingar um þjónustu á hóteli, stýrt ljósum og gluggatjöldum, pantað ýmsa þjón- ustu beint úr tölvunni ásamt vakningu og skráð sig úr herberginu.“ Boðleið býður hótelum einnig netlausnir ásamt þráðlausum lausnum fyrir gesti og starfsmenn, þar sem hægt er að hafa yfir- sýn og stýra hraða og niðurhali. Auk þess má nefna að Boðleið er með kallkerfi fyrir hótel og veitingastaði sem tengjast sím- kerfi, dyrasíma með myndavél og margt fleira. Auk þessarar víðtæku starfsemi á Ís- landi er Boðleið í samstarfi við fjórtán endursöluaðila í Noregi. „Þar erum við að selja og þjónusta 3CX-símkerfi og Yealink- síma sem við höfum umboð fyrir og síðan í nóvem ber 2013 höfum við aðstoðað þessa endursöluaðila við sölu- og tæknilega ráð- gjöf og þjónustu. Á meðal verkefna eru hótel og bæjar félög en til gamans má geta að stærsta uppsetning á 3CX í Noregi er bæjar félag með 5.000 símanotendur sem nota tölvusíma gegnum eitt og sama kerf- ið.“ Það er því ljóst að Boðleið er með sam- bandið inn í framtíðina. Samband inn í framtíðina Boðleið þjónusta er tæknifyrirtæki sem býður heildarlausn í net- og símamálum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Dansa saman Samdans hefur löngum verið vin- sæl skemmtun í gæsa partíum og óvissuferðum. Ástæðan er einföld. Dans losar um hömlur og býr til endorfín í líkamanum. Skemmti- legur danskennari getur verið á við besta uppistandara og þegar saman fer hlátur og hreyfing verða til góðar minningar. Leiklist Leiklistaræfingar snúast líka um að losa um hömlur og svo er mikið unnið með traust. Traust er gríð- arlega mikilvægt á vinnustað og þess vegna er leiklist afar góður samhristari. Velgjörðir Að gera vel við starfsfólk skilar sér margfalt til baka. Allt frá því að bjóða upp á ís eða köku öðru hvoru og yfir í að bjóða starfsfólk- inu á stórtónleika eða til útlanda í árs hátíðarferð getur gert gæfu- muninn. Starfsmannaferðir Skipulagðar óvissu- ferðir eru vel til þess fallnar að hrista saman mannskap- inn og ekki verra ef ratleikur fylgir með. Það er kannski ráð að hafa samband við áfangastaði ratleiksins áður en hann er settur af stað, svona ef einhver nennir ekki að fá hópa af hressu fólki inn á gafl hjá sér. Sveigjanlegur vinnutími Það getur gert gæfumuninn fyrir starfsánægju að finnast maður ekki vera þræll stimpil- klukkunnar. Og skilar sér í betri afköstum ef eitthvað er. Félagslíf innan vinnutíma Það er mikilvægt að hlakka til að fara í vinnuna. Ef gefið er svig- rúm fyrir lengra morgunkaffi sem helgað er bóka-, skák- eða prjóna- klúbbi einu sinni í mánuði gefst starfsfólki færi á að kynnast og bindast vinaböndum. Pottar Veðmál á vinnutíma eru góð skemmtun. Þetta vita allir sem hafa tekið þátt í rauð- v í n s p o t t i , k ö k u - potti, nammipotti eða hefðarsúkku laðipotti sem snýst um að kom- ast næst því hvern- ig úrslitin verða í Evrópukeppn- inni í fótbolta, Evrópusöngva- keppninni , at- kvæðagreiðslum um veru í Evrópusambandinu eða öðru sem tengist Evrópu ekki neitt. Gott mötuneyti Góður matur og gott kaffi gerir glaðara starfsfólk. Punktur. Góður andi er gulli betri Verðmætasta eign hvers fyrirtækis er starfsfólkið og mikilvægt að gæta vel að þeirri auðlind. Líðan starfsmanna í vinnunni gerir gæfumuninn hvað varðar viðhorf til vinnuveitanda og vinnustaðar og getur haft gríðarleg áhrif á afköst og framlegð fyrirtækja, vöxt og viðhald. Óánægt starfsfólk er áhugalaust, mætir verr, lendir í útistöðum á vinnustaðnum, talar illa um vinnustaðinn og skilar verkefnum seinna og verr af sér. Ýmsar leiðir eru til að efla starfsandann í fyrirtækinu og hér koma nokkrar uppástungur. Ratleikir snúast oft um að leysa verkefni. Hér hefur einhver blaðrað yfir sig. Vinnustaðahópefli getur slagað upp í meðal dimmisjón allt eftir metnaði og elju. Þorvaldur Harðarson, sölustjóri Boðleiðar, með nokkrar af þeim yfir þrjátíu tegundum símtækja sem fyrirtækið býður upp á. Potturinn í vinnunni þarf ekki alltaf að vera upp á vín. Hvað með einn góðan súkkulaðipott næst þegar Ísland keppir í einhverju? Flestir fyrirgefa ýmislegt bara ef kaffið er gott í vinnunni. Prjónaklúbbur eða leshringur í vinnunni glæðir starfsandann. FyRiRtækjaÞjónuSta kynningarblað 22. ágúst 20164 2 2 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 4 F -7 C D C 1 A 4 F -7 B A 0 1 A 4 F -7 A 6 4 1 A 4 F -7 9 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.