Fréttablaðið - 30.06.2016, Page 12
Á hverjum föstudegi í allt sumar fá tveir kort–/lykilhafar
Orkunnar tankinn endurgreiddan að fullu.
Í lok hvers mánaðar fær svo einn þátttakandi
í sumarleiknum 100.000 kr. eldsneytisinneign.
Skráðu þig núna á orkan.is.
Tyrkland Þjóðarsorg var um allt
Tyrkland í gær. Allt að 41 er nú tal-
inn látinn eftir skot- og sprengjuárás
á Atatürk-flugvöllinn í Istanbúl, fjöl-
mennustu borg landsins, í fyrradag.
Þar af voru 13 ferðamenn. 239 eru
særðir eftir árásina, þar af liggja
109 enn á spítala. Frá þessu greindi
Vasip Şahin, borgarstjóri Istanbúl,
í gær.
Hreingerningarstarfsfólk vann
í alla fyrrinótt við að sópa upp
glerbrotum á meðan viðhaldi var
einnig sinnt á gólfflísum og ýmsum
raftækjum. Þá gekk þungvopnað
öryggisgæslulið um flugvöllinn í
gær.
Þrír hryðjuverkamenn gerðu árás
á komusal flugvallarins og bílastæði
við salinn með byssum. Þegar lög-
gæslumenn mættu á vettvang og
skutu á mennina sprengdu þeir
sig í loft upp. Ekki hafa verið borin
kennsl á lík árásarmannanna. Þó
segist CNN hafa heimildir fyrir því
að enginn þeirra hafi verið tyrk-
neskur ríkisborgari.
Binali Yildirim, forsætisráðherra
Tyrklands, sagði við fjölmiðla í gær
að upplýsingar frá rannsóknar-
lögreglu bentu til þess að hryðju-
verkasamtökin sem kenna sig við
íslamskt ríki beri ábyrgð á árásinni.
Það sé þó ekki víst enda rannsókn
ekki lokið. „Hryðjuverkamennirnir
komu til flugvallarins í leigubíl og
réðust síðan á fólk. Fyrstu niður-
stöður rannsóknarinnar benda til
þess að þeir hafi skotið úr byssum
sínum allir þrír og síðan sprengt
sig í loft upp,“ sagði Yildirim. Þá
greinir CNN frá því að heimildar-
menn stöðvarinnar innan CIA segi
Íslamska ríkið líklega hafa staðið að
árásinni eða að minnsta kosti hóp
sem sæki innblástur til Íslamska
ríkisins.
Recep Tayyip Erdoğan, forseti
Tyrklands, kallaði í gær eftir því að
alþjóðasamfélagið sameinaði krafta
sína til að berjast gegn hryðjuverk-
um í kjölfar árásarinnar. „Í augum
hryðjuverkasamtaka er enginn
munur á Istanbúl og Lundúnum,
Ankara og Berlín, Izmír og Chicago
eða Antalya og Róm,“ sagði for-
setinn. „Ef gjörvallt mannkyn slæst
ekki í för með okkur í baráttunni
gegn hryðjuverkum munu mun
verri árásir en við getum ímyndað
okkur eiga sér stað.“
Átta hryðjuverkaárásir hafa
verið gerðar í Tyrklandi frá ára-
mótum, þar af fjórar í Istanbúl. Alls
hafa um 140 fallið í árásunum átta,
flestir í árásinni í fyrradag. Herskár
armur Verkamannaflokks Kúrda
(PKK) hefur lýst yfir ábyrgð á fimm
árásum. Íslamska ríkinu hefur verið
kennt um hinar þrjár.
thorgnyr@frettabladid.is
Íslamska ríkið grunað um árásina
Forseti Tyrklands grunar Íslamska ríkið um árás á Atatürk-flugvöll. Fjörutíu og einn fórst í árásinni. Forsetinn kallar eftir samstöðu al-
þjóðasamfélagsins í baráttunni við hryðjuverkamenn, eigi ekki að fara verr. Alls hafa 140 fallið í átta hryðjuverkaárásum frá áramótum.
Glerbrot á gólfi Ataturk-flugvallar áður en þau voru hreinsuð upp. Nordicphotos/AFp
Samfélag Akraneskaupstaður
bannar einstaklingum undir 23 ára
aldri að nýta sér tjaldstæði bæjar-
ins meðan Írskir dagar eru haldnir
hátíðlegir um næstu helgi. Gerð
er undantekning á reglunni fyrir
barnafólk.
Þessar reglur hafa verið í gildi í
nokkur ár, aðeins umrædda helgi.
Þurfti bæjarfélagið að setja sér
þessar reglur þar sem fyllirí og
hávaði truflaði gesti hátíðarinnar
að næturlagi.
Regína Ástvaldsdóttir, bæjarstjóri
á Akranesi, segir annað tjaldsvæði
fyrir lögráða fólk undir 23 ára aldri
ekki vera til í bæjarfélaginu og því
geti þessi hópur ekki tjaldað á bæj-
arhátíðinni sem hefur að mestu
farið vel fram síðustu ár. „Þessar
reglur voru settar fyrir nokkrum
árum og hefur þeim verið fylgt síð-
ustu ár. Fólki undir 23 ára aldri er
vísað frá tjaldstæðinu nema ef um
barnafólk er að ræða,“ segir Regína.
„Því miður reyndist nauðsynlegt að
setja þessar reglur á sínum tíma, en
þær eru vissulega umdeildar. Fólk
undir 23 ára aldri getur þar af leið-
andi ekki tjaldað hjá okkur á írskum
dögum.“ – sa
Undir 23 ára fá ekki að
tjalda á Írskum dögum
Írskir dagar eru árviss bæjarhátíð á Akranesi. FréttAblAðið/GVA
Átta hryðjuverkaárásir
hafa verið gerðar í Tyrklandi
frá áramótum, þar af fjórar í
Istanbúl.
Ef gjörvallt mann-
kyn slæst ekki í för
með okkur í baráttunni gegn
hryðjuverkum munu mun
verri árásir en við getum
ímyndað okkur eiga sér stað.
Recep Tayyip
Erdoğan, forseti
Tyrklands
Því miður reyndist
nauðsynlegt að setja
þessar reglur á sínum tíma,
en þær eru vissu-
lega umdeildar.
Regína Ástvalds-
dóttir, bæjarstjóri á
Akranesi
3 0 . j ú n í 2 0 1 6 f I m m T U d a g U r12 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a ð I ð
3
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
D
E
-3
1
F
C
1
9
D
E
-3
0
C
0
1
9
D
E
-2
F
8
4
1
9
D
E
-2
E
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
9
6
s
_
2
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K