Fréttablaðið - 30.06.2016, Page 25
Gyðingar segja sögu af svo hljóðandi símskeyti: „Hafðu áhyggjur. Stopp. Meira síðar.“
Þessi saga rifjast upp nú þegar
meiri hluti brezkra kjósenda hefur
ákveðið að Bretar segi sig úr Evrópu-
sambandinu. Þótt gengi brezka
pundsins hafi hríðfallið við þessi
tíðindi og hlutabréf víða um heim
hafi einnig fallið í verði og mikil
óvissa um framhaldið blasi við, þarf
úrsögn Bretlands úr ESB ekki endi-
lega að valda miklum skaða nema
þá e.t.v. helzt heima fyrir.
Sérstaða Englands
Innganga Breta í ESB 1973 stöðvaði
langvinna efnahagshnignun Bret-
lands eins og ég lýsti á þessum stað
fyrir viku og færði þeim ýmislegt
annað að auki, t.d. fágaða matar-
menningu frá meginlandinu. Bretar
hafa að ýmsu leyti verið hikandi í
Evrópusamstarfinu og haldið fast
í sérstöðu sína innan ESB, t.d. með
því að semja um undanþágu frá
upptöku evrunnar sem er inngöngu-
skilyrði fyrir önnur lönd, með því
að tengjast ekki Schengen-svæðinu
með tilheyrandi frjálsræði við landa-
mæravörzlu og einnig með því að
leggjast gegn nánara samstarfi innan
ESB á ýmsum sviðum.
Hluti skýringarinnar á þessum
sérþörfum Englendinga er að þeir
horfa gjarnan til Norður-Ameríku
af sögulegum ástæðum meðan
Skotar horfa til Norður-Evrópu.
Margir skozkir sjálfstæðissinnar
telja því að Englendingar og Skotar
myndu báðir njóta góðs af skilnaði.
Skotar þurfa nú ekki að óttast að
vera sakaðir um að kljúfa sig út úr
Sameinaða konungdæminu með
því að taka sér sjálfstæði. Skotland
og Norður-Írland greiddu atkvæði
gegn úrsögn úr ESB og það gerðu
einnig Orkneyjar og Hjaltlandseyjar
sem fylgja Skotlandi. Sumir telja að
skozka þingið í Edinborg hafi laga-
legan rétt til að beita neitunarvaldi
gegn úrsögninni og kunni að reyna
það í ljósi yfirgnæfandi andstöðu
skozkra kjósenda gegn úrsögn.
Hvort liðast frekar í sundur,
Bretland eða ESB?
Skotar geta nú með sanni sagt að
Englendingar hafi vísað þeim á dyr.
Það er sjaldgæft að ríki riðlist með
þessum hætti. Hitt er algengara að
fámennari þjóðir heimti skilnað
eins og t.d. þegar Bangladess sagði
skilið við Pakistan 1971. Líklegt
virðist að Skotar herði á sjálfstæðis-
kröfum sínum til að geta verið áfram
í ESB. Norður-Írland gæti þá e.t.v.
einnig ákveðið að sameinast Írlandi
í sama tilgangi. Eftir stæði þá Eng-
land ásamt Wales umlukið ESB-
löndum: Skotland í norðri, Írland í
vestri, Frakkland í suðri og Belgía,
Holland, Þýzkaland og Danmörk í
austri.
ESB hefur komizt ágætlega af með
Sviss í slíkri stöðu í hjarta Evrópu og
gæti trúlega með líku lagi höndlað
England utan sinna vébanda án
þess að veikjast til muna. ESB gæti
jafnvel gengið betur að styrkja inn-
viði sína þegar Englendingar með
sína sérstöðu eru horfnir frá borði.
Sviss hefur að sönnu vegnað vel á
eigin vegum utan ESB. Ekki er víst að
England njóti hliðstæðrar velgengni
þar eð Bretland gekk í ESB m.a. til að
brjótast úr fari langvinnrar efna-
hagshnignunar. Sameinaða konung-
dæmið frá 1707 gæti því liðazt í
sundur. Ólíklegt virðist að svipuð
örlög bíði ESB. Fyrstu viðbrögð við
úrslitum atkvæðagreiðslunnar á
Bretlandi benda til hiks af hálfu
Bjarta hliðin
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag þeirra sem mæltu fyrir úrsögn. Óvíst
er að svo búnu hvort kjósendur í
öðrum ESB-löndum myndu telja
ráðlegt að fara að dæmi Breta.
Tíminn sker úr því.
England og Bandaríkin
England getur reynt að halda sínu
striki með því að rækta enn frekar
sérstakt samband sitt við Banda-
ríkin. Þar er þó ekki á vísan að róa
frekar en í Evrópu. Bandaríkin hafa
dregizt aftur úr ýmsum Evrópu-
löndum sé árangur í efnahags-
málum metinn með víðtækari mæli-
kvörðum en þjóðartekjum á mann,
einkum með því að taka menntun,
heilbrigði, vinnuálag og ójöfnuð
með í reikninginn. Sameinuðu þjóð-
irnar birta lífskjaravísitölur reistar
á kaupmætti þjóðartekna á mann,
menntun og heilbrigði (e. Human
Development Index) ýmist án tillits
til misskiptingar eða með tilliti til
hennar. Sé litið fram hjá misskipt-
ingu svo sem algengast er skipuðu
Bandaríkin 8. sæti listans 2014 og
Frakkland 22. sætið. Sé misskipting
tekin með í reikninginn falla Banda-
ríkin niður í 28. sæti listans en
Frakkland heldur 22. sætinu þar eð
skipting lífsgæðanna er jafnari þar
en í Bandaríkjunum. Misskipting
dregur Bandaríkin niður.
Engum dytti í hug að meta verð-
bréf með því að skoða ávöxtunina
eina og horfa fram hjá áhættunni.
Með líku lagi virðist eðlilegt að reisa
mat á kaupmætti þjóðartekna á
mann, menntun og heilbrigði m.a. á
því hvernig þessum gæðum er skipt
milli fólks. Þarna leitast Sameinuðu
þjóðirnar við að ryðja brautina að
víðtækari og innihaldsríkari lífskjar-
akvörðum en tíðkazt hafa hingað til.
Við það batnar ásýnd Evrópu eins
og hún birtist í hagtölum. Það er
umhugsunarefni einnig handa Eng-
lendingum.
Mestu skiptir þó hitt að ESB er
friðarsamband. Það er ábyrgðarhluti
fyrir fornfrægt stórveldi að snúa
baki við sambandi sem lagt hefur
svo mikið af mörkum til að tryggja
framfarir, frið og frelsi í Evrópu frá
stríðslokum 1945.
Álagningar- og innheimtuseðlar
einstaklinga 2016
eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra
rsk.is og skattur.is.
Barnabætur, vaxtabætur og inneign vegna
álagningar verður greidd út 1. júlí.
Upplýsingar um greiðslustöðu veita
tollstjóri og sýslumenn.
Álagningarskrár liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskatt stjóra,
dagana 30. júní til 14. júlí 2016 að báðum dögum meðtöldum.
Kærufresti lýkur 31. ágúst 2016.
Álagningu skatta á
einstaklinga er lokið
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
skattur.is
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 25F i M M T u d a g u R 3 0 . j ú n Í 2 0 1 6
3
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
D
E
-5
4
8
C
1
9
D
E
-5
3
5
0
1
9
D
E
-5
2
1
4
1
9
D
E
-5
0
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
9
6
s
_
2
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K