Fréttablaðið - 30.06.2016, Síða 25

Fréttablaðið - 30.06.2016, Síða 25
Gyðingar segja sögu af svo hljóðandi símskeyti: „Hafðu áhyggjur. Stopp. Meira síðar.“ Þessi saga rifjast upp nú þegar meiri hluti brezkra kjósenda hefur ákveðið að Bretar segi sig úr Evrópu- sambandinu. Þótt gengi brezka pundsins hafi hríðfallið við þessi tíðindi og hlutabréf víða um heim hafi einnig fallið í verði og mikil óvissa um framhaldið blasi við, þarf úrsögn Bretlands úr ESB ekki endi- lega að valda miklum skaða nema þá e.t.v. helzt heima fyrir. Sérstaða Englands Innganga Breta í ESB 1973 stöðvaði langvinna efnahagshnignun Bret- lands eins og ég lýsti á þessum stað fyrir viku og færði þeim ýmislegt annað að auki, t.d. fágaða matar- menningu frá meginlandinu. Bretar hafa að ýmsu leyti verið hikandi í Evrópusamstarfinu og haldið fast í sérstöðu sína innan ESB, t.d. með því að semja um undanþágu frá upptöku evrunnar sem er inngöngu- skilyrði fyrir önnur lönd, með því að tengjast ekki Schengen-svæðinu með tilheyrandi frjálsræði við landa- mæravörzlu og einnig með því að leggjast gegn nánara samstarfi innan ESB á ýmsum sviðum. Hluti skýringarinnar á þessum sérþörfum Englendinga er að þeir horfa gjarnan til Norður-Ameríku af sögulegum ástæðum meðan Skotar horfa til Norður-Evrópu. Margir skozkir sjálfstæðissinnar telja því að Englendingar og Skotar myndu báðir njóta góðs af skilnaði. Skotar þurfa nú ekki að óttast að vera sakaðir um að kljúfa sig út úr Sameinaða konungdæminu með því að taka sér sjálfstæði. Skotland og Norður-Írland greiddu atkvæði gegn úrsögn úr ESB og það gerðu einnig Orkneyjar og Hjaltlandseyjar sem fylgja Skotlandi. Sumir telja að skozka þingið í Edinborg hafi laga- legan rétt til að beita neitunarvaldi gegn úrsögninni og kunni að reyna það í ljósi yfirgnæfandi andstöðu skozkra kjósenda gegn úrsögn. Hvort liðast frekar í sundur, Bretland eða ESB? Skotar geta nú með sanni sagt að Englendingar hafi vísað þeim á dyr. Það er sjaldgæft að ríki riðlist með þessum hætti. Hitt er algengara að fámennari þjóðir heimti skilnað eins og t.d. þegar Bangladess sagði skilið við Pakistan 1971. Líklegt virðist að Skotar herði á sjálfstæðis- kröfum sínum til að geta verið áfram í ESB. Norður-Írland gæti þá e.t.v. einnig ákveðið að sameinast Írlandi í sama tilgangi. Eftir stæði þá Eng- land ásamt Wales umlukið ESB- löndum: Skotland í norðri, Írland í vestri, Frakkland í suðri og Belgía, Holland, Þýzkaland og Danmörk í austri. ESB hefur komizt ágætlega af með Sviss í slíkri stöðu í hjarta Evrópu og gæti trúlega með líku lagi höndlað England utan sinna vébanda án þess að veikjast til muna. ESB gæti jafnvel gengið betur að styrkja inn- viði sína þegar Englendingar með sína sérstöðu eru horfnir frá borði. Sviss hefur að sönnu vegnað vel á eigin vegum utan ESB. Ekki er víst að England njóti hliðstæðrar velgengni þar eð Bretland gekk í ESB m.a. til að brjótast úr fari langvinnrar efna- hagshnignunar. Sameinaða konung- dæmið frá 1707 gæti því liðazt í sundur. Ólíklegt virðist að svipuð örlög bíði ESB. Fyrstu viðbrögð við úrslitum atkvæðagreiðslunnar á Bretlandi benda til hiks af hálfu Bjarta hliðin Þorvaldur Gylfason prófessor Í dag þeirra sem mæltu fyrir úrsögn. Óvíst er að svo búnu hvort kjósendur í öðrum ESB-löndum myndu telja ráðlegt að fara að dæmi Breta. Tíminn sker úr því. England og Bandaríkin England getur reynt að halda sínu striki með því að rækta enn frekar sérstakt samband sitt við Banda- ríkin. Þar er þó ekki á vísan að róa frekar en í Evrópu. Bandaríkin hafa dregizt aftur úr ýmsum Evrópu- löndum sé árangur í efnahags- málum metinn með víðtækari mæli- kvörðum en þjóðartekjum á mann, einkum með því að taka menntun, heilbrigði, vinnuálag og ójöfnuð með í reikninginn. Sameinuðu þjóð- irnar birta lífskjaravísitölur reistar á kaupmætti þjóðartekna á mann, menntun og heilbrigði (e. Human Development Index) ýmist án tillits til misskiptingar eða með tilliti til hennar. Sé litið fram hjá misskipt- ingu svo sem algengast er skipuðu Bandaríkin 8. sæti listans 2014 og Frakkland 22. sætið. Sé misskipting tekin með í reikninginn falla Banda- ríkin niður í 28. sæti listans en Frakkland heldur 22. sætinu þar eð skipting lífsgæðanna er jafnari þar en í Bandaríkjunum. Misskipting dregur Bandaríkin niður. Engum dytti í hug að meta verð- bréf með því að skoða ávöxtunina eina og horfa fram hjá áhættunni. Með líku lagi virðist eðlilegt að reisa mat á kaupmætti þjóðartekna á mann, menntun og heilbrigði m.a. á því hvernig þessum gæðum er skipt milli fólks. Þarna leitast Sameinuðu þjóðirnar við að ryðja brautina að víðtækari og innihaldsríkari lífskjar- akvörðum en tíðkazt hafa hingað til. Við það batnar ásýnd Evrópu eins og hún birtist í hagtölum. Það er umhugsunarefni einnig handa Eng- lendingum. Mestu skiptir þó hitt að ESB er friðarsamband. Það er ábyrgðarhluti fyrir fornfrægt stórveldi að snúa baki við sambandi sem lagt hefur svo mikið af mörkum til að tryggja framfarir, frið og frelsi í Evrópu frá stríðslokum 1945. Álagningar- og innheimtuseðlar einstaklinga 2016 eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra rsk.is og skattur.is. Barnabætur, vaxtabætur og inneign vegna álagningar verður greidd út 1. júlí. Upplýsingar um greiðslustöðu veita tollstjóri og sýslumenn. Álagningarskrár liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskatt stjóra, dagana 30. júní til 14. júlí 2016 að báðum dögum meðtöldum. Kærufresti lýkur 31. ágúst 2016. Álagningu skatta á einstaklinga er lokið 442 1000 Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is skattur.is s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 25F i M M T u d a g u R 3 0 . j ú n Í 2 0 1 6 3 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 D E -5 4 8 C 1 9 D E -5 3 5 0 1 9 D E -5 2 1 4 1 9 D E -5 0 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 9 6 s _ 2 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.