Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 30.06.2016, Blaðsíða 42
„Ég byrjaði á að gera mér bol eftir fyrsta leikinn sem Ísland lék. Þá vildi ein úr saumaklúbbnum fá líka og svo komu hinar á eftir. Ég setti síðan mynd af mér í bolnum á Facebook og þá vatt þetta hratt upp á sig. Nú er ég með fjölmarg- ar pantanir sem ég þarf að klára fyrir næsta leik,“ segir Guðbjörg Bergsveinsdóttir, klæðskeri á Sel- fossi, en hún situr við saumavélina frá morgni til kvölds við að sauma dömuboli í fánalitunum. „Ég er bara á fullu að sauma, það vilja auðvitað allir fá bolinn fyrir sunnudaginn, þegar Ísland spilar á móti Frakklandi. Það eru líka nokkrar sem ætla út til Parísar á leikinn og hafa pantað boli hjá mér,“ segir Guðbjörg, enda sé ólíkt sparilegra yfirbragð á bolunum hennar en treyjunni sjálfri. „Bolinn má svo vel nota við önnur hátíðleg tilefni. Við vorum til dæmis þrjár úr vinkvennahópn- um í bolnum í vinnunni, daginn eftir að Ísland komst í átta liða úr- slitin,“ segir Guðbjörg og bætir við að þrátt fyrir fánalita klæðnaðinn sé fótboltaáhugi hennar frekar ný- tilkominn. „Ég hef aldrei fylgst neitt með fótbolta. Íþróttir eru ekki mitt áhugamál og ég hafði aldrei horft á heilan fótboltaleik. En það er ekki annað hægt en að hrífast með góðu gengi liðsins, eins og öll þjóðin og nú er maður kominn á kaf í þetta. Nú er bara öskrað og fagnað fyrir framan sjóvarpið,“ segir Guðbjörg hress. Guðbjörg kennir í grunnskólan- um í Þorlákshöfn milli þess sem hún saumar á eigin stofu, Skradd- arastofunni á Selfossi. Hún opn- aði stofuna árið 2003 og lauk klæð- skeranáminu í Iðnskólanum árið eftir. „Ég lauk svo meistaranámi 2014 og bætti svo við mig kennslu- réttindum. Ég er mest í sérsaumi og fatabreytingum og hef ekki verið að sauma eigin hönnun áður. Kannski verður þetta upphafið að einhverju svoleiðis. Ég býst svo sem ekki við að útfæra bolina neitt frekar. Ég vona bara að efnið end- ist eitthvað áfram.“ Horfði aldrei á fótbolta Guðbjörg Bergsveinsdóttir hafði engan áhuga á fótbolta áður en sigurganga íslenska landsliðsins á EM hófst. Nú öskrar hún af fögnuði fyrir framan sjónvarpið og dreif í að sauma sér viðeigandi klæðnað þegar ljóst var í hvað stefndi,bol í íslensku fánalitunum. Saumaklúbburinn tilbúinn fyrir leikinn en Guðbjörg saumaði boli á allan saumaklúbbinn eftir að þær sáu hana í bolnum eftir fyrsta leikinn. Saumaklúbburinn heitir Bolarnir og hefur hist í 17 ár. Svanlaug Kjartansdóttir, Dagný Björk Ólafsdóttir, Guð- björg Bergsveinsdóttir og Þórhildur Ingvadóttir. MynD/InGa HeIða HeIMISDÓttIr Karlar verða í buxum og kjól næsta sumar. Kjólar yfir buxur eru bæði þægilegir og klæðilegir. Það er eins og allir helstu tísku- hönnuðirnir hafi komið saman í lokuðum Facebook-hóp og sam- þykkt einróma að kjólar og síðbux- ur hafi verið aðskilin allt of lengi. Síðast sveiflaðist tískan í þessa átt í kringum aldamótin þegar eng- inn var fólk með öðru fólki nema í blómakjól utan yfir stuttum galla- buxum. Það sem er jafnvel enn þá heitara næsta sumar er að þessi tíska er ókynbundin sem þýðir að öllum er jafn frjálst að vera í kjól utan yfir buxum. Buxur og kjóll saman á ný Nú er bara öskrað og fagnað fyrir framan sjóvarpið. Guðbjörg Bergsveinsdóttir Í kringum aldamótin var enginn fólk með öðru fólki nema í blómakjól utan yfir stuttum galla- buxum. Allt sem þú þar ... Skv. prentmiðlakönnun Gallup, janúar–mars 2016 íbúa á höfuðborgarsvæðinu á aldursbilinu 12–80 ára lesa Fréttablaðið daglega.* 59,5% Sá öldi myndi fara langt með að fylla sæti Laugardalsvallar tíu sinnum. 59,5% lesa Fréttablaðið 28,6% lesa Morgunblaðið 3 0 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R10 F ó l k ∙ k y n n I n G A R b l A ð ∙ T í s k A 3 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 D E -6 8 4 C 1 9 D E -6 7 1 0 1 9 D E -6 5 D 4 1 9 D E -6 4 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 9 6 s _ 2 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.