Fréttablaðið - 30.06.2016, Side 46
Hér má sjá ráðhústurn Garðabæjar sem
var fyrirmyndin að afmælismerkinu.
Hér má sjá afmælismerki Garða-
bæjar sem bar sigur úr býtum
í samkeppni vegna fjörutíu ára
afmælisins. Vinningstillagan er eftir
Sighvat Halldórsson.
Garðabær fagnar fjörutíu ára
kaupstaðarafmæli sínu í ár en
bærinn fékk kaupstaðarréttindi
árið 1976. Fram að því var byggðin
kölluð Garðahreppur eftir að Álfta-
neshreppi var skipt í Bessastaða-
hrepp og Garðahrepp árið 1878.
Afmælinu verður fagnað á marg-
víslegan hátt í ár. Meðal ann-
ars var haldin samkeppni um sér-
stakt afmælismerki Garðabæjar
þar sem Ráðhústurninn er nýtt-
ur sem tákn fyrir bæinn. Sigur úr
býtum bar Sighvatur Halldórs-
son, grafískur hönnuður. Þá verð-
ur haldin afmælishátíð í miðbæ
Garðabæjar á Garðatorgi laugar-
daginn 3. september með dagskrá
fyrir alla fjölskylduna. Einnig hefur
afmælið verið fléttað inn í fasta
liði í menningarlífi bæjarins, eins
og djasshátíð og listadaga barna
og boðið upp á fjölbreyttar sögu-
og fræðslugöngur um bæjarland-
ið. Einnig verða gefin út afmælis-
blöð sem verður dreift um bæinn.
Vonast er til að viðburðir á af-
mælis árinu verði til þess að
styrkja samkennd Garðbæinga
og efla bæjarbraginn og um leið
verða tilefni fyrir kynslóðir til að
koma saman og eiga góða stundir.
Nýtt afmælismerki Garðabæjar
Siggubær er krúttlegur bær í miðbæ Hafnarfjarðar.Hönnunarsafn Íslands í Garðabæ varðveitir íslenska hönnun.
Sívertsen-hús þar sem sýnt er hvernig
yfirstéttarfjölskylda í Hafnarfirði bjó.
Í Pakkhúsinu í Hafnarfirði eru nokkrar áhugaverðar sýningar í gangi. Myndir/Hanna
Pakkhúsið
Í Pakkhúsinu eru að öllu jöfnu
þrjár sýningar í gangi í einu,
fastasýning um sögu bæjarins,
leikfangasýning og þemasýning.
sívertsen-hús
Í Sívertsen-húsi er sýnt hvern-
ig yfirstéttarfjölskylda í Hafnar-
firði bjó í byrjun 19. aldar, auk
þess sem varpað er ljósi á merki-
lega sögu Bjarna Sívertsens og
fjölskyldu hans.
bungalowið
Bungalowið var opnað eftir
endur bætur árið 2008 og er þar
að finna sýningu um tímabil er-
lendu útgerðanna í Hafnarfirði á
fyrri hluta 20. aldar auk þess sem
þar má sjá stássstofu Bookless-
bræðra.
beggubúð
Í Beggubúð er verslunarminja-
safn Byggðasafns Hafnarfjarðar.
Húsið, sem byggt var árið 1906,
stóð áður við aðalverslunargötu
bæjarins en var flutt á lóð safns-
ins, gert upp og opnað sem sýn-
ingahús árið 2008
ljósmyndasýning
Á strandstígnum meðfram höfn-
inni í Hafnarfirði eru settar upp
ljósmyndasýningar er varpa ljósi
á dagleg störf og sögu fólksins
sem bæinn byggði.
Hafnarborg
Hafnarborg er menningar- og
listamiðstöð Hafnarfjarðar. Sýn-
ingardagskrá safnsins er fjöl-
breytt og gerir skil ólíkum miðl-
um samtímamyndlistar auk þess
sem reglulega eru sýnd verk ís-
lenskra listamanna frá fyrri hluta
20. aldar.Tónleikar eru fastur
liður í starfseminni.
siggubær
Siggubær er varðveittur sem
sýnis horn af heimili verkamanns
og sjómanns í Hafnarfirði á fyrri
hluta 20. aldar.
Fjölbreytt og skemmtileg flóra safna
Í Hafnarfirði og Garðabæ er að finna fjölmörg söfn og sýningar sem gaman er að skoða. Hér má sjá upptalningu á nokkrum þeirra.
Hönnunarsafn Íslands
Hönnunarsafn Íslands er að
Garðatorgi 1 í Garðabæ. Því er
ætlað að sýna og varðveita þann
þátt íslenskrar menningarsögu
er lýtur að hönnun, einkum frá
aldamótum 1900 og til dagsins
í dag. Safnið skráir og varðveit-
ir muni svo sem húsgögn, nytja-
hluti, fatnað, listhönnun, prent-
muni og fleira.
krókur á Garðaholti
Krókur á Garðaholti er lítill báru-
járnsklæddur burstabær sem var
endurbyggður úr torfbæ árið
1923. Bærinn er í dag með þrem-
ur burstum en árið 1923 var mið-
burst bæjarins byggð og bæjar-
húsin þá aðeins baðstofa og eld-
hús auk lítils skúrs við útidyrnar.
Krókur er í nágrenni samkomu-
hússins á Garðaholti. Krókur er
opinn almenningi á sunnudögum
á sumrin (júní-ágúst) frá kl. 13-17.
Ókeypis aðgangur.
minjagarður að Hofsstöðum
Merkar fornminjar er að finna í
miðbæ Garðabæjar. Fornleifa-
rannsóknir við Hofsstaði hófust
árið 1994 og fundust þar minjar af
næststærsta landnámsskála sem
fundist hefur á Íslandi. Ákveð-
ið var að varðveita minjarnar og
fyrsti áfanginn var uppsetning á
minjagarði sem er að finna á lóð
Tónlistarskólans að Kirkjulundi.
Garðurinn er opinn allan sólar-
hringinn.
Sérfræðingar
í rafgeymum
Garðabær oG HaFnarFjörður Kynningarblað
30. júní 20164
3
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
D
E
-7
7
1
C
1
9
D
E
-7
5
E
0
1
9
D
E
-7
4
A
4
1
9
D
E
-7
3
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
2
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K