Fréttablaðið - 30.06.2016, Side 50
„Markmiðið með leiknum er að
fá fólk til að fara út í umhverfi
Hafnar fjarðar og upplifa alla þá
fjölbreytni og fegurð sem er að
finna bæði í bænum og í kringum
hann,“ segir Guðni sem hannar leik-
inn fyrir Hafnarfjarðarbæ undir
merkjum Hönnunarhússins ehf.
Leikurinn fer þannig fram: Fólk
getur sótt vandað útivistarkort frítt
á fjölmarga staði í Hafnarfirði. Á
kortið eru merktir 27 staðir vítt og
breitt um bæjarlandið auk fróðleiks
um hvern og einn stað. Þegar komið
er á þessa staði er þar að finna
lausnarorð sem hægt er að skrá á
kortið. Þeir sem vilja geta skilað
inn kortunum fyrir 25. september
með lausnarorðunum en á sérstakri
uppskeruhátíð um haustið verður
dregið úr innsendum kortum.
„Fólk þarf ekki að fara á alla 27
staðina til að geta skilað inn kort-
inu,“ upplýsir Guðni en hægt er að
vera með í þremur mismunandi
flokkum. Léttfetar skila inn níu
stöðum, göngugarpar 18 og þrauta-
kóngar öllum 27.
Þetta er í níunda sinn sem
Guðni semur ratleikinn. „Það er
mjög gaman að þessu. Ég fæ góðan
stuðning fróðra manna og hefur
Ómar Smári Ármannsson, yfirlög-
regluþjónn, fornleifafræðingur og
leiðsögumaður, verið mér innan
handar en hann gjörþekkir Reykja-
nesið,“ segir Guðni. Þegar staðirnir
hafa verið ákveðnir fer Guðni á þá
til að finna gps-punkta sem síðan
eru merktir inn á kortið.
Síðustu ár hefur verið sérstakt
þema í hverjum leik. „Í ár ákváð-
um við að vera með landamerki
og eyktamörk,“ upplýsir Guðni en
eyktamark var fastur punktur í
landslagi sem var notaður sem við-
mið við sólargang til að vita hvað
tímanum leið.
Guðni segir þátttöku í leiknum
hafa verið mjög góða og þeim fjölgi
sífellt sem taki þátt. „Það eru alls
ekki allir sem skila kortunum en
það er samt ótrúlega stór hluti sem
klárar alla staðina,“ segir hann og
bendir á að leikurinn sé sérlega
vinsæll meðal fjölskyldufólks.
Guðni segir margar fjölskyldur
hafa fundið skemmtilegar leiðir í
gegnum ratleikinn sem þær fari á
aftur og aftur.“
„Hér í Hafnarfirði er að finna
ofboðslega fjölbreytta náttúru, allt
frá grófu og grónu hrauni til auðn-
ar eða skógi vaxinna svæða. Hér
eru líka fjölbreyttar minjar mann-
vistar sem gaman er að skoða. Það
er svo ótrúlega margt fallegt sem
við eigum hér í kringum okkur sem
við erum oft að sækja allt of langt.“
solveig@365.is
Nítjándi ratleikurinn um Hafnarfjörð
Ratleikur Hafnarfjarðar fer fram í nítjánda sinn í sumar. Líkt og átta síðastliðin sumur hefur Guðni Gíslason veg og vanda af leiknum sem
stendur til 25. sept. Þemað í ár er landamerki og eyktamörk. Leikendur fá gefins kort og geta leitað uppi allt að 27 staði í og við bæinn.
Guðni við einn af 27 áfangastöðum ratleiksins í ár. MyNd/HaNNa
Nálgast má kortin á eftirtöldum stöðum
l Ráðhúsi Hafnarfjarðar
l Bókasafni Hafnarfjarðar
l Fjarðarkaupum
l Suðurbæjarlaug
l Ásvallalaug
l Ásvöllum
l Músik og sport
l Fjallakofanum
l Altis
l Hress
l Burgerinn
og jafnvel víðar!
Við bjóðum upp á námskeið í skyndihjálp ætluð
almenningi en einnig sérhönnuð námskeið fyrir
heilbrigðisstarfsmenn.
Meðal viðskiptavina okkar eru:
• Einkareknar skurðstofur
• Læknastofur
• Tannlæknastofur
• Heilbrigðisstofnanir auk fyrirtækja og einstaklinga
ERTU VIÐBÚIN/N AÐ TAKAST Á VIÐ BRÁÐAAÐSTÆÐUR?
Bráðaskólinn býður upp á fjölda námskeiða sniðin að þínum þörfum
Bæjarhraun 12 220 Hafnafirði www.bradaskolinn.is Sími: 841–2725/898–2609
Skráning fer fram á bradaskolinn@bradaskolinn.is
Garðabær oG HafNarfjörður Kynningarblað
30. júní 20168
3
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
D
E
-6
8
4
C
1
9
D
E
-6
7
1
0
1
9
D
E
-6
5
D
4
1
9
D
E
-6
4
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
2
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K